Innlent

Eltingarleikur við ölvaðan ökumann

Lögregla á Suðurnesjum handtók í morgun mjög ölvaðan ökumann eftir eftirför um götur Reykjanesbæjar. Maðurinn sinnti ekki stöðvunarmerkjum lögreglu og ók utan í lögreglubifreiðina við eftirförina.

Ökumaðurinn, sem reyndist hafa verið sviptur ökuréttindum, gistir nú fangageymslur lögreglunnar og bíður yfirheyrslu þegar rennur af honum áfengisvíman. Tveir aðrir ökumenn voru stöðvaðir í Reykjanesbæ í nótt grunaðir um ölvun við akstur. Annar aðilinn er einnig grunaður um akstur undir áhrifum ávana- og fíkniefna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×