Óheppileg auglýsingamennska í Alabama Atli Steinn Guðmundsson skrifar 1. desember 2009 07:54 Skiltið. Frekar óheppileg samsetning.
Tveimur yfirmönnum sjónvarpsstöðvar í Alabama hefur verið sagt upp störfum eftir heldur óheppilega framsetningu á auglýsingaskilti. Flennistór auglýsing frá WPMI-sjónvarpsstöðinni, sem reyndar tilheyrir NBC-sjónvarpsrisanum bandaríska, birtist á auglýsingaskilti við þjóðveg í Mobile í Alabama fyrir fáeinum dögum. Um er að ræða tvískipt skilti þar sem öðru megin er auglýsingapláss en á hinum helmingnum rúlla helstu fréttafyrirsagnir af samskiptamiðlinum Twitter. Á meðan auglýsingin frá WPMI sýndi stærðarinnar myndir af andlitum tveggja annáluðustu fréttaþulanna og vinsælasta veðurfræðings stöðvarinnar sló Twitter því upp með stríðsfyrirsögn á hinum helmingnum að þrír aðilar hefðu verið ákærðir fyrir hópnauðgun í Monroeville. Í augum þeirra vegfarenda sem þutu fram hjá í bílum sínum leit málið í meira lagi grunsamlega út enda engu líkara en að myndin af þrenningunni fylgdi fréttafyrirsögninni af Twitter. Athugull vegfarandi náði að smella mynd af skiltinu um leið og hann ók hjá og ekki leið á löngu uns Netið logaði af kjaftagangi með tilheyrandi myndasendingum. Málið þykir hrein skelfing fyrir WPMI-stöðina og hefur tveimur yfirmönnum þar, sem ku bera ábyrgð á birtingu auglýsingarinnar, verið gert að taka poka sína.
Mest lesið Það helsta úr fyrsta skammti Epstein-skjalanna Erlent Tvær íslenskar konur létust í umferðarslysinu í Suður-Afríku Innlent Epstein-skjölin birt Erlent Svona á að raða í uppþvottavélina Innlent Nemandi réðst á kennara á jólaskemmtun í Ingunnarskóla Innlent Snorkstelpan snýr aftur eftir ágreining um höfundarrétt Innlent Langtímaleigan 23 þúsund krónum dýrari á ári Innlent Talinn hafa komið til landsins til að stela Innlent Enn fleiri myndir úr safni Epsteins: „En hún vill þúsund dali fyrir hverja stúlku“ Erlent Grenjandi rigning og hífandi rok á aðfangadag Innlent Fleiri fréttir Gerðu umfangsmiklar árásir gegn ISIS í Sýrlandi Það helsta úr fyrsta skammti Epstein-skjalanna Epstein-skjölin birt Draga tilvist neðanjarðarhafs á Títan í efa Réðust á skip úr skuggaflotanum þúsundir kílómetra frá Úkraínu Enn fleiri myndir úr safni Epsteins: „En hún vill þúsund dali fyrir hverja stúlku“ Trump vill til tunglsins fyrir 2028 Herða reglur og ráðast í endurkaup á skotvopnum Morðinginn í Brown háskóla fannst látinn Evrópa samþykkir 90 milljarða evra lán til Úkraínu Rannsaka tengsl skotárásarinnar við annað morð Sex um borð í einkaþotu sem hrapaði Beita dómara ICC refsiaðgerðum vegna Ísrael Taka á kvenfyrirlitningu með sérstöku námskeiði fyrir drengi Hæðist að og smánar fyrrverandi forseta á „frægðargangi“ Frú Macron í klandri eftir ósmekkleg ummæli um femínista „Dr. Dauði“ í lífstíðarfangelsi fyrir að myrða tólf Ekki hafi verið rétt að benda á Skandia-manninn sem morðingja Palme Myndskeið birt af Reiner eftir morðin og fyrir handtöku Sér eftir að hafa ekki sagt Eli oftar hve heitt hann elskaði hann Segir „evrópsk svín“ vilja hagnast á falli Rússlands Auðgaðist ævintýralega á svikum og prettum Eldur í Tívolí Meina fólki frá fjölda ríkja að ferðast til Bandaríkjanna Nuddari gerði dóttur Reiner-hjónanna viðvart Bondi morðinginn formlega ákærður í 59 liðum Trump setur hafnbann á olíuskip á leið til og frá Venesúela Nick Reiner ákærður fyrir að myrða foreldra sína Segir Trump hafa persónuleika alkóhólista Brestir í MAGA-múrnum Sjá meira