Króna með fyrstu tónleikana 2. apríl 2009 05:30 Hljómsveitin Króna heldur sína fyrstu tónleika í Listasafni Reykjavíkur annað kvöld. Meðlimir sveitarinnar eru Birgir Örn Steinarsson, Hjalti Jón Sverrisson og Jón Valur Guðmundsson.
Birgir Örn Steinarsson hefur stofnað hljómsveitina Króna ásamt þeim Hjalta Jóni Sverrissyni úr Miri og Jóni Vali Guðmundssyni, sem einnig kemur fram sem Bubble Boy. Fyrstu tónleikar sveitarinnar verða annað kvöld í VIP-partíi á undan tónlistarhátíðinni Nokia on Ice í Listasafni Reykjavíkur. Birgir Örn, eða Biggi í Maus, segist hafa saknað þess að vera í hljómsveit en hann lét síðast að sér kveða sem sólótónlistarmaður. „Það er gaman að vinna sólóefni en það er einmanalegra og hægvirkara,“ segir hann. „Ég virka mjög vel í svona tónsmíðasamstarfi, þegar allir eru að semja tónlistina saman. Ég var orðinn þreyttur á að bíða eftir því að Maus myndi gera þetta en aðstæður hafa ekki leyft það.“ Biggi ætlar að leita aftur til upprunans með Krónu. „Þetta er rokk af ýmsum toga og sungið á íslensku. Það er ekki verið að reyna að finna upp hjólið. Þetta er aðeins ákafari tónlist en hjá Maus en ekkert endilega þyngri. Þeir eru náttúrlega svo ungir strákarnir og það er svo mikil gredda í þeim. Þetta er ekki eins slípað og Maus var orðið,“ segir hann. Króna er á leiðinni í hljóðver, enda eru sjö til átta lög þegar komin í púkkið. Biggi vill þó ekki gefa það upp hvenær fyrsta platan er væntanleg. Hann er mjög spenntur fyrir tónleikunum annað kvöld. „Þetta er dálítið skrítið fyrir mig. Ég hef ekki spilað á Íslandi síðan með sólóverkefninu mínu 2006 í Listasafninu og ekki með rokksveit síðan í október 2004. Það er mikil tilhlökkun en maður finnur að feimnin og sviðsskrekkurinn eru komin aftur.“- fb
Mest lesið Hvað veistu um... fræga menn sem heita Robert? Lífið „Bakkus nær ekki þeim verstu af okkur, virðist helst velja þá bestu“ Lífið „Það tók viku að vinna í Rúriki“ Tónlist Ísak Bergmann og Agnes Perla eiga von á barni Lífið Barnastjarnan orðin tveggja barna móðir Lífið Ef þú ert í þessum hópi ættir þú ekki að taka lýsi Lífið Skorar á Kraft að jafna framlag sitt til neyðaraðstoðar á Gasa Lífið Írar ekki með í Eurovision annað árið í röð Tónlist Systur skapa heilsusamfélag fyrir konur á öllum æviskeiðum Lífið samstarf Próteinskammtur alltaf með í töskunni Lífið samstarf Fleiri fréttir Barnastjarnan orðin tveggja barna móðir Hvað veistu um... fræga menn sem heita Robert? Ísak Bergmann og Agnes Perla eiga von á barni „Bakkus nær ekki þeim verstu af okkur, virðist helst velja þá bestu“ Skorar á Kraft að jafna framlag sitt til neyðaraðstoðar á Gasa Ef þú ert í þessum hópi ættir þú ekki að taka lýsi Karl Th. Birgisson er látinn Lena Dunham orðin mamma með hjálp staðgöngumóður Fóru áttatíu prósent fram úr áætlun Leiðir skilja hjá Siggu Dögg og Sævari Eyjólfs Kampakát yfir kampavíni og kavíar Amanda Seyfried og Thomas Sadoski skilin Hafi ekki sjálfur sparkað Macklemore: „Ég myndi aldrei bregðast aðdáendum“ Hundrað ára virðulegt setur með grænu baði og gufu Bob Mackie er látinn Friðrik Þór og Jóna Vigdís ástfangin Macklemore tjáir sig: „Fólk er drepið í dag og fólk verður drepið á morgun“ Æstir í nektarmyndir Mörthu Stewart Vakna við Star Wars-lagið alla morgna Hvað veistu um… Titanic? Húðdrottning bauð í gellugusu Ed Sheeran sparkar Macklemore Hið alræmda „Epstein drap sig ekki“-samsæri Ein pilla dró Panettiere til dauða Heldur sig til hlés og lifir skírlífi Vala Matt kom heljarinnar búslóð fyrir í sextíu fermetra íbúð Stjörnulífið: Í fyrsta skipti í bikiníi í útlöndum „Ég byrjaði að lesa kaflann og fór bara að gráta“ Skúli Jón og Jennifer gengin í hnapphelduna Tekur árásum á samfélagsmiðlum fagnandi Sjá meira