Aldrei fór ég suður í gröfuskemmu 2. apríl 2009 07:30 Ný skemma. Nýja skemman sem verður notuð á tónlistarhátíðinni Aldrei fór ég suður. „
Þetta er fjórða húsið sem við erum í. Við höfum aldrei verið lengur en tvö ár á sama staðnum,“ segir Hálfdán Bjarki Hálfdánsson, rokkstjóri hátíðarinnar Aldrei fór ég suður sem verður haldin á Ísafirði um páskana í sjötta sinn. Hálfdán og félagar hafa náð samkomulagi við verktakafyrirtækið KNH á Ísafirði um afnot af nýju húsnæði þess fyrir hátíðina. „Þetta er mjög vítt og glæsilegt verkstæði með stórum hurðum. Það er hátt til lofts og vítt til veggja,“ segir hann. „Við vorum í fínni skemmu síðustu tvö árin og við þökkum kærlega fyrir afnotin af henni. Þetta er nýtt og KNH-verktakar eru þarna með aðstöðu fyrir sínar gröfur. Við höldum okkur í því þema að vera í iðnaðarhúsnæði við sjóinn. Það er reyndar flest við sjóinn á Ísafirði.“ Hátíðin verður haldin á föstudaginn langa, 10. apríl, og laugardaginn ellefta. Alls hafa 32 hljómsveitir skráð sig til leiks, þar á meðal Dr. Spock, FM Belfast, múm, Mugison og Hemmi Gunn og Kraftlyfting. „Það hefur aldrei, að mínu mati, verið eins gott framboð af góðum heimaatriðum og núna. Helmingurinn er héðan úr héraði, meðal annars þrjár unglingahljómsveitir sem eru allar mjög frambærilegar. Það verður gaman að sjá þær spreyta sig,“ segir Hálfdán. „Það er upprunalega hugmyndin að baki hátíðinni, að landsþekktar poppstjörnur skemmti með minna þekktum mönnum.“- fb
Mest lesið Kavinsky fannst látinn á heimili sínu Lífið Vann með fimm poppstjörnum á einni viku Lífið Sonurinn fékk nafnið Isaiah Ellason Fox Lífið Sjóðheitur Patrekur Jaime með stórstjörnuteiti Lífið Fjórar konur ásaka Leto um refsiverða háttsemi í nýrri heimildarmynd Lífið Patrik hættur að gigga: „Mér líður eins og apa í búri“ Tónlist Glen Hansard látinn eftir mótorhjólaslys Lífið Hvað veistu um… skák? Lífið „Ég hef aldrei brotið kynferðislega á neinum á ævi minni“ Lífið Skímó á skikkanlegum tíma fyrir ömmur og afa Tónlist Fleiri fréttir Kíkti í kaffi til kanslarans Hvað veistu um… skák? „Ég hef aldrei brotið kynferðislega á neinum á ævi minni“ Madison Beer trúlofast NFL-kappa Sonurinn fékk nafnið Isaiah Ellason Fox Glen Hansard látinn eftir mótorhjólaslys Kavinsky fannst látinn á heimili sínu Fjórar konur ásaka Leto um refsiverða háttsemi í nýrri heimildarmynd Vann með fimm poppstjörnum á einni viku Sjóðheitur Patrekur Jaime með stórstjörnuteiti Tilraunakennd tískusýning í bílakjallara Safna fjármagni með múrmeldýrum á OnlyFans Gurrý komin aftur á markaðinn Förðunardrottning selur á Framnesvegi „Heimurinn er betur staddur með Höllu sem forseta“ Tíu ár frá greiningunni: „Ég var alltaf ákveðin í að sigrast á meininu“ „Hélt ég myndi aldrei upplifa ást sem þessa“ Bogi Ágústsson á fjölunum sem Sigurjón digri Guðný Ljósbrá og Katrín Björk eignuðust dreng Þýðandi Ódysseifskviðu segir að Nolan eigi að skammast sín Carly Simons lærir að lifa með Parkinson Daði og Árný eiga von á sínu þriðja barni Japanskir sjóliðar troða upp fyrir utan Hörpu Edda Falak og Kristján Helgi selja íbúð í 101 Seyfried syrgir Finn sinn Elegans í hæstu hæðum í fimmtugsafmæli ársins Stjörnulífið: „Heppnasta stelpa allra tíma“ Fundu hvor aðra á ný eftir erfiða reynslu Emma Roberts gengin í það heilaga „Maður getur ekki falið sig á sama hátt þegar allt hárið er farið“ Sjá meira