Sveppi settur í einangrunarklefa á Litla-Hrauni 2. apríl 2009 09:15 Á litla-Hrauni. Sveppi og Auddi kíktu á Litla-Hraun í vikunni, gerðu „Innlit/Útlit“-úttekt á vistarverunum og spiluðu fótbolta við Hrottana, knattspyrnufélag fangelsins. Þá tóku þeir viðtal við mann sem hefur setið inni í tíu ár en er að losna á næstu dögum. „
Þetta var kannski of lítill tími til að finna það á eigin skinni hvernig það er að vera fangi en þetta er samt ekki eitthvað sem ég myndi vilja prófa,“ segir sjónvarpsmaðurinn Sverrir Þór Sverrisson. Hann fór ásamt samstarfsfélaga sínum Auðuni Blöndal á Litla-Hraun og kynnti sér hvernig lífið gengur sinn vanagang á bak við lás og slá. „Ég hafði ekki séð fangaklefa áður og þetta var óneitanlega mjög sérstök upplifun. Ég held samt að ég myndi frekar þola þetta en Auðunn,“ bætir Sverrir við. Sverrir og Auðunn fóru um fangelsið í fylgd myndavéla og tóku upp hálfgert „Innlit/Útlit“-innslag um vistarverur fanganna. Sverrir lét meira að segja loka sig inni í einangrunarklefa og fór í sturtu, svo eitthvað sé nefnt. Hann segir að lífið á Litla-Hrauni sé töluvert frábrugðið því sem hann hafði gert sér í hugarlund. „Maður er kannski eins og flestir aðrir, heldur að fangelsið sé eitthvað í líkingu við Shawshank eða Prison Break og sumar spurningarnar urðu kannski svolítið barnalegar fyrir vikið,“ segir Sveppi og hlær. Jafnframt var blásið til knattspyrnuleiks þar sem hið víðfræga knattspyrnulið Litla-Hrauns, Hrottarnir, atti kappi við þjóðþekkta fjölmiðlamenn. Sverrir segir að þeir hafi verið ágætlega mannaðir en vill lítið gefa upp um úrslit leiksins, þau eigi þó eftir að koma á óvart. „Við vorum með nokkra góða og aðra ekki eins góða,“ segir Sverrir en í síðarnefnda hópnum nefnir Sverrir sérstaklega Loga Bergmann Eiðsson. „Hann er stór og sterkur en hefði mátt vera duglegri að mæta á æfingar þar sem boltameðferðin var lögð til grundvallar.“ Af öðrum í sjónvarpsliðinu má nefna Þorstein J. Vilhjálmsson, Ara Edwald og Atla Albertsson. Auk Auðuns og Sverris. „Auðunn er mikill keppnismaður og þolir ekki að tapa, hann gleymdi þess vegna stundum við hverja hann var að spila.“ En ferðin var ekki eingöngu grín og glens enda segir Sverrir að ekki megi gleyma því að menn eru á Litla-Hrauni af einhverri ástæðu. „Þetta eru auðvitað dæmdir menn og þó svo að menn geti verið léttir á því er það nú samt alltaf þannig að klefunum er lokað klukkan tíu á kvöldin,“ útskýrir Sverrir en meðal viðmælenda í þættinum á föstudagskvöld er maður sem hefur setið inni í tíu ár. „Hann er að losna bráðum og sagði okkur frá dvöl sinni á Litla-Hrauni, hann kemur ekki fram undir nafni enda er hann að hefja nýtt líf.“ freyrgigja@frettabladid.is
Mest lesið Hefur þegar fengið starfstilboð Lífið Mig langaði til að öskra: „Ég skal segja allt af létta!“ Gagnrýni Þráhyggja ástarinnar og dulúð bakherbergjanna Gagnrýni Allt að 200 ára veggjakrot fannst við framkvæmdir Lífið Marteinn Helgi Sigurðsson er látinn Lífið Harbour rýfur þögnina Bíó og sjónvarp Ung húð þarf ekki tíu skrefa húðrútínu Lífið samstarf Lífseigustu mýturnar um offitu: „Það er ekki sjúkdómur að fitna“ Lífið Swae Lee heldur tónleika á Íslandi Tónlist „Það má herma“ Tíska og hönnun Fleiri fréttir Allt að 200 ára veggjakrot fannst við framkvæmdir Marteinn Helgi Sigurðsson er látinn Hefur þegar fengið starfstilboð Hvað veistu um… árið 2010? Lífseigustu mýturnar um offitu: „Það er ekki sjúkdómur að fitna“ Sjö heitustu brúðkaupstrendin í sumar „Ég var löngu tilbúin að giftast honum“ Rassaumhirða karla í sókn Leggja áherslu á liti, gleði og glimmer Segir Weinstein hafa bannað sér að vera lesbía Hætt saman en ennþá vinir Varð ástfanginn á sama tíma og móðir hans kvaddi Lára Clausen lýsir eftir stolnum Mustang Blendnar tilfinningar að fara á vinnumarkað á ný Lofuðu svörtu fólki lækningu en blekktu það til dauða „Ég passaði mig sérstaklega á því að tala ekki um Evrópusambandið“ Vigdís Häsler og Sveinn Andri gengu í hnapphelduna Huggulegustu hommar landsins „loksins“ giftir Adam Páls fann ástina í örmum Moniku Stjörnulífið: Rapparar ástfangnir upp fyrir haus Myndaveisla: Líf og fjör úti á Granda Hringdi strax í pabba og sagði honum frá Bond-leiknum Krakkatía vikunnar: Jónas, þjóðardýr og einmanalegt áhugamál Verður yngsta skvettan í þingflokki Sjálfstæðismanna Vesturbæingar kvöddu sögufræga bensínstöð Allt að verða klárt fyrir Sjómannadaginn í Reykjavík Allir og amma þeirra senda kónginum afmæliskveðju Fann ástina á Tinder og endaði í Texas Þegar tónlistin heltók lögmanninn Fréttatía vikunnar: Dua, Danir og Carpenter Sjá meira