Ljúka fleiri málum með sátt 2. apríl 2009 04:45
Hægt verður að ljúka fleiri og alvarlegri málum með lögreglustjórasátt eftir að breyting á reglugerðum tók gildi. Breytingin ætti að leiða til þess að álag á dómstóla vegna minni háttar brota verði minna, segir Valtýr Sigurðsson ríkissaksóknari. Það eru einkum umferðarlagabrot sem lögreglustjórar ljúka með sátt, og eingöngu ef sá sem brotið fremur samþykkir að fara þá leið, segir Valtýr. Brotin eru yfirleitt þannig að viðkomandi hefur verið staðinn að verki, til dæmis af lögreglumönnum í umferðareftirliti. Fyrir breytinguna var hámarkssekt sem heimilt var að beita 300 þúsund krónur og hámarkstími ökuleyfissviptingar eitt ár. Eftir breytingarnar hafa hámörkin hækkað í 500 þúsund krónur og fjögurra ára sviptingu. Það þýðir að hægt verður að ljúka til dæmis málum einstaklinga sem aka endurtekið, eða verulega, undir áhrifum áfengis eða undir áhrifum fíkniefna, án atbeina dómstóla. Þetta ætti einnig að stytta þann tíma sem tekur að ljúka málunum verulega og minnka kostnað þess sem brotið fremur. Auk umferðarlagabrota er til dæmis hægt að ljúka minni háttar þjófnaðar- og auðgunarbrotum með lögreglustjórasátt, sem og minni háttar eignaspjöllum og minni háttar fíkniefnabrotum.- bj
Mest lesið Eldur í sumarbústað við Suðurlandsveg Innlent Áfram geisar innbrotahrinan Innlent Enginn alvarlega slasaður eftir bílveltuna Innlent Björgólfur Thor flýr breska skatta til Ítalíu Innlent Breikkun á Kjalarnesi boðin út eftir margra ára seinkun Innlent Vegir og gatnamót í Hvalfirði komnir að þolmörkum Innlent Miklar bikblæðingar við Jökulsárlón Innlent Hryðjuverkamálið frá upphafi til enda Innlent Veðrið haggist ekki að neinu ráði Innlent Ferðaþjónustan, fullveldið og fullt af forsætisráðherrum Innlent Fleiri fréttir Flúðu heimili sitt vegna gróðurelda: „Þetta verður ekki fallegt, fjallið er allt brunnið“ Þúsund sjúkraflug á árinu: „Fyrsta skipti sem við brjótum þann múr“ Bráð veikindi og alelda bíll við Kambana Komst undan ásamt fjölskyldunni „Við ákváðum að snúa bara vörn í sókn“ Fæðingardeildin hafi gleymst í hita leiksins Eldur í sumarbústað við Suðurlandsveg Þúsund ára gömul mynt fannst í gamalli verbúð Íslendingur í grennd við Madríd og met í sjúkraflugferðum Fleiri en þeir sem tókust á lentu í átökum ungmenna Áttu eitthvað vantalað við manninn sem endaði fram af svölunum Ari úrskurðaður í gæsluvarðhald á Kýpur Fleygt fram af svölum á fyrstu hæð fjölbýlishúss Eigi ekki að kosta milljónir króna að klæðast landsliðsbúningnum Skynet langt undan en íslensk stjórnvöld þurfa að vera undirbúin „Klappað eins og það væri stórstjarna að koma inn“ Óttast að „bottar“ muni ýta undir ágreining í aðdraganda atkvæðagreiðslu Íslensk hjón þurft að flýja undan gróðureldum á Spáni Báti var siglt yfir kajakræðara Kvöldfréttir í heild sinni „Ég hef aldrei lent í öðru eins“ Fimm fluttir til aðhlynningar eftir árekstur Skipverjarnir áttu að fá 2,5 milljónir króna á haus Endurkoma Herjólfs vekur upp ýmsar spurningar Standa með félagsmanni sem var sviptur frelsi Íslendingur á Benidorm stöðvaður eftir tíu daga svikahrinu Halda samráðsfund vegna innbrotahrinu Auka nákvæmni rauntímaupplýsinga Vara við hviðum á landinu suðaustanverðu Sólmyrkvinn ógnar fjarskiptum og Mærudagar ganga í garð Sjá meira