Ný bílaleiga býður áður óþekkt verð á bílaleigubílum Gunnar Örn Jónsson skrifar 9. júlí 2009 13:35 Stöð 2 greindi frá því að vikuleiga á Land Rover jeppum kosti röska hálfa miljón.
Í ljósi fréttar Stöðvar 2 í vikunni af gríðarlega háu verði á bílaleigubílum á Íslandi, hefur nýja bílaleigan Thrifty, í samstarfi við Brimborg, ákveðið að bjóða verð á bílaleigubílum í sumar sem þeir segja að sé áður óþekkt. Eins og fram kom í fréttum Stöðvar 2, getur leiguverð fyrir almennan fólksbíl í viku numið ráðstöfunartekjum venjulegrar fjölskyldu á Íslandi. Sumartilboð Thrifty og Brimborgar er nýr kostur í ferðamöguleikum landsmanna sem ætti að gera fleiri fjölskyldum fært að skoða landið sitt. Hægt verður að leigja bílana í 30 daga á tilboðsverði. Dýrasti bílaleigubíll sem Thriftys bíður er Ford Expedition jeppi, en þrjátíu daga leiga á honum kostar tæpar 125 þúsund krónur. Þrjátíu daga leiga á Ford Escape sportjeppa kostar 75 þúsund krónur og hægt er að leigja smábíl á innan við 40 þúsund krónur í þrjátíu daga. Þeir bílar sem hér um ræðir eru frá árinu 2006 og eldri. Eins og fram kom í fréttum Stöðvar 2 í vikunni getur vikuleiga á nýjum og nýlegum Land Rover jeppa hjá öðrum bílaleigubílum farið upp í ríflega 500 þúsund krónur. Vísir hafði í dag samband við Avis bílaleigu og kostar vikuleiga á Land Rover jeppa hjá bílaleigunni tæpar 400 þúsund krónur. Þeirra bílaleigubílar eru hins vegar frá árinu 2008 og yngri. „Að auki verður boðið uppá þá nýbreytni að gefa viðskiptavinum kost á að láta leiguverðið ganga að fullu upp í kaupverð á bílnum sem leigður var. Leiguverðið verður sem sagt dregið frá ásettu markaðsvirði viðkomandi bíls," segir Guðný Camilla Aradóttir, hjá almannatengslafyrirtækinu cohn&wolf sem sér um málið fyrir hönd Brimborgar. Thrifty bílaleigan er ný á Íslandi, en fyrsta Thrifty bílaleigan tók til starfa í Bandaríkjunum árið 1958 og nú eru Thrifty bílaleigur um allan heim. Leyfishafi Thrifty á Íslandi er Brimborg.
Tengdar fréttir Vikuleiga fyrir hálfa milljón Þótt Ísland sé víða kynnt sem ódýrt ferðamannaland í efnahagskreppunni kostar það sitt. Til dæmis duga ráðstöfunartekjur venjulegra heimila í heilan mánuð varla til að leigja eins og einn skóda í viku til að fara hringinn. Vilji menn spreða, má leigja sér vikuafnot af Land Rover fyrir röska hálfa milljón. 6. júlí 2009 19:12 Mest lesið Telur að barátta Ólafs muni koma í bakið á honum Innlent Þorgerður beygði af í Bítinu Innlent Segir Katrínu sparka í konuna sína Innlent Vaktin: Hákon tekur við af föður sínum Erlent Nafn mannsins sem lést í Stuðlagili Innlent Voru á Íslandi þegar maðurinn var drepinn Innlent Mættu í skólann og beittu nemanda ofbeldi Innlent „Verkinu er haldið í gíslingu“ Innlent Haraldur V Noregskonungur er látinn Erlent Uppsagnirnar hafi komið eins og reiðarslag Innlent Fleiri fréttir Hnífjafnt í síðustu könnuninni Umræðan hafi verið ruglingsleg og á lágu plani Skálmöld brá í óleyfi fyrir í „vandræðalegu þjóðrembumyndbandi“ Símtöl almennt málefnaleg en dónaskapur inni á milli Aldrei komið í þvílíkt fjölmenni þar sem er svona mikil þögn Jákvæð „sjálfsmyndarkrísa“ í Brussel Forystukonum ríkisstjórnarinnar brugðið vegna alvarlegra hótana Líflátshótanir, þandar taugar og bein útsending frá norsku konungshöllinni Voru á Íslandi þegar maðurinn var drepinn Missti öxi sem hann hafði inni á sér og var handtekinn Uppsagnirnar hafi komið eins og reiðarslag Telur að barátta Ólafs muni koma í bakið á honum Brynjar tekur við af Líf Jón Hrói nýr sveitarstjóri í Langanesbyggð Efast um að skylt verði að hefja aðildarviðræður þótt já verði ofan á Armslengd eigi sérstaklega vel við um Fjölmiðlanefnd Inga segir já Örfáir töldu Ingu hafa staðið sig best Tuttugu prósent búin að greiða atkvæði „Mér fannst ég þekkja hann strax og ég hitti hann í fyrsta sinn“ Bíða enn niðurstöðu varðandi vatnslögnina Brotist inn í Hygge á Barónsstíg Vélstjóra sem átti að sigla Bandero meinuð innganga Tuttugu prósent þegar greitt atkvæði og andlát Noregskonungs „Verkinu er haldið í gíslingu“ Reyndi að smygla fíkniefnum í vínflöskum Nafn mannsins sem lést í Stuðlagili Þorgerður beygði af í Bítinu Segir Katrínu sparka í konuna sína Ungir vinstrimenn takast á um ESB: „Enginn að ráðast á fjallkonuna á nokkurn hátt“ Sjá meira
Vikuleiga fyrir hálfa milljón Þótt Ísland sé víða kynnt sem ódýrt ferðamannaland í efnahagskreppunni kostar það sitt. Til dæmis duga ráðstöfunartekjur venjulegra heimila í heilan mánuð varla til að leigja eins og einn skóda í viku til að fara hringinn. Vilji menn spreða, má leigja sér vikuafnot af Land Rover fyrir röska hálfa milljón. 6. júlí 2009 19:12