Lamaðist á Kárahnjúkum og fær 56 milljónir 9. júlí 2009 16:13
Kínverjanum Yushan Shao voru dæmdar 56 milljónir króna í skaðabætur af hálfu Impregilo eftir að hann fékk hundrað kílóa steypuklump ofan á sig í jarðgöngum við Kárahnjúkavirkjun og lamaðist í kjölfarið. Atvikið átti sér stað í desember árið 2006. Steypa sem samkvæmt lögregluskýrslu vó 80-100 kg, hrundi úr lofti gangnanna og lenti á baki Yushan. Fallhæð steypunnar var um það bil 7,2 metrar. Yushan féll á brautarteina á gangnagólfinu og lenti með andlitið ofan í vatni, en eftir göngunum rann straumvatn. Samstarfsmenn stefnanda drógu hann upp úr vatninu og báru hann á nærliggjandi járnbrautarvagn. Hann var fluttur út úr göngunum og með sjúkrabifreið á Egilsstaði og þaðan með sjúkraflugi til Reykjavíkur. Yushan skaddaðist alvarlega á mænu í slysinu og lamaðist frá brjósti. Í niðurstöðu dómsins kemur fram að slysið hafi verið tilkynnt Vinnueftirliti ríksins tveimur sólahringum eftir að lögreglu var tilkynnt um slysið. Þegar eftirlitsmennirnir komu á vettvang var búið að breyta slysstaðnum. Því var ekki mögulegt að rannsaka málið til fulls. Að auki er fyrirtækjum skylt samkvæmt lögum að tilkynna um slys innan við sólarhring til Vinnueftirlitsins. Því segir í dómsorði: Hefði slysið verið tilkynnt með þeim hætti sem mælt er fyrir um, og vettvangi ekki breytt, hefði verið unnt að rannsaka hvaða steypa það var sem féll á stefnanda og hvort hann kom sér fyrir undir steypu sem hann var sjálfur nýbúinn að sprauta. Þetta var hins vegar ekki athugað frekar en að framan er lýst. Því var niðurstaða dómsins að Yushan hafi ekki borið nokkra ábyrgð á slysinu. Sjálfur er hann metinn sem 90 prósent öryrki. Honum voru því dæmdar 56 milljónir í skaðabætur.
Mest lesið Fólk að skila sér heim eftir rassskellingu Innlent Stúlkan fannst heil á húfi Innlent „Stefnum að því að koma meira en tvíefld til baka“ Innlent Gluggar þaktir klósettpappír og túrblóð í lakinu: „Aldrei séð annað eins“ Innlent Alltaf jafn óþægilegt að heyra af nálægri árás Innlent Nýja brúin átti að bæta flæðið: Mislæga lausnin vék fyrir ljósum Innlent Þungt högg í magann með tvíburastelpur á vökudeild Innlent Kvöldfréttir Sýnar í beinni Innlent Tjaldsvæðisgestir vöknuðu við að þyrla lenti á vellinum Innlent „Mér finnst þau komin í ansi mikla meðvirkni með þessu félagi“ Innlent Fleiri fréttir Pallborðið: Nei eða já? Hvalavinir lýsa eftir týndum skýrslum Leggur til breytingar á útivistartíma barna Mikil óhreinindi í ólöglegum peptíðum Fólk að skila sér heim eftir rassskellingu Austurfrétt liggur niðri vegna netárásar Tekið fram að svipting starfsleyfis eigi ekki að vera refsing Umræðan hafi „aftur og aftur snúist um getgátur, misskilning og útúrsnúninga“ Stúlkan fannst heil á húfi „Við hlaupum bara hraðar eftir því sem gestunum fjölgar“ Lögreglan á Norðurlandi eystra lýsir eftir fjórtán ára stúlku Bleikjuvinnslunni breytt í brugghús Lögregla og björgunarsveitir leita að manneskju á Akureyri „Þarf að hafa afleiðingar ef fólki er lógað af heilbrigðisstofnun“ Mikilvægt að draga lærdóm af gerð gatnamótanna „Vald flugstjórans er náttúrulega alveg klárt“ Segir málið verða að hafa afleiðingar fyrir Skúla Tómas Vestmannaeyjabær áfrýjar til Landsréttar Segir Dag plata með úreltri skýrslu Leiðrétting fréttar: Það sem Þorgerður sagði í raun Íslenskt sumarveður verðmæt auðlind Vara við hættulegum aðstæðum við Sólheimajökul Ari „eltihrellir“ eftirlýstur og handtekinn á Kýpur Hálfs árs hrakfallasögu Herjólfs virðist lokið „Ef læknir myndi skjóta sjúkling þá mætti ekki ákæra hann“ Undirbúa sig fyrir töluvert fleiri gesti á Einni með öllu Bakkakotsvelli lokað vegna rigninga: Grjótharðir golfarar láta í minnipokann Fimmtán ár frá hryðjuverkunum í Útey og Ósló Landlæknir hafi í raun sakfellt Skúla Tómas Óttast um fleiri kindur eftir að tík týndist Sjá meira