Flytja boðskapinn um nær allt Úganda 25. júní 2009 02:15 Teknir í bakaríið Apegu Eolu Julius Nelson er hér við hlið Jóhanns Felixsonar í Bakaríi Jóa Fel í gær, ásamt samlöndum sínum og samnemendum. fréttablaðið/anton „
Ég er mjög spenntur fyrir þessari heimsókn því sjálfur hef ég hug á því að koma á laggirnar bakaríi í Úganda,“ segir Apegu Eolu Julius Nelson, en hann var ásamt tólf manna hópi frá Úganda í fyrirtækjaheimsókn hjá Bakaríi Jóa Fel í gær. Hópurinn situr tveggja vikna frumkvöðlanámskeið í Háskólanum í Reykjavík (HR) en því lýkur í lok þessarar viku. Þá heldur hópurinn á heimaslóðir en síðan mun hann fara vítt og breitt um Úganda til að kenna og miðla af þekkingu sinni. „Launin eru afar lág í Úganda og félagsleg aðstoð af skornum skammti,“ segir Apegu Eolu Julius. „Þannig að margir reyna að hefja einhvers konar rekstur meðfram starfi sínu til að drýgja tekjurnar. En þar sem fólk hefur ekki fengið neina tilsögn við það hvernig á að koma fyrirtæki af stað fara flest þessara fyrirtækja fljótlega á hausinn. Svo eru stjórnvöld að reyna að fá erlenda fjárfesta til að láta til sín taka í Úganda en þá ríður á að heimamenn tileinki sér vinnubrögð sem erlendir fjárfestar þekkja, eins og til dæmis að vinna að viðskiptaáætlunum og svo framvegis þannig að það er mikil þörf fyrir þessa þekkingu í Úganda.“ Apegu Eolu Julius hefur gefið út bók í heimalandi sínu um frumkvöðlafræði en hann á og rekur einnig útgáfufyrirtækið Mastermind Publishers Limited. „Ég fékk engan til að gefa bókina út svo ég stofnaði útgáfufyrirtæki og gerði það sjálfur en fékk þó stórfyrirtæki til liðs við mig.“ En hann segist vera rétt að byrja. „Ég ætla að opna bakarí sem yrði aðeins fyrsta skrefið á miklum veitingarekstri,“ segir hann. „Ég er í sambandi við bændur sem geta skaffað mestallt hráefnið.“ Vonir standa til að það verði opnað í ágúst en síðan vill hann opna veitingastaði sem eru opnir lengur og bjóða upp á betri þjónustu en almennt þekkist í Úganda. Lóa Ingvarsdóttir, forstöðumaður Opna háskólans í HR, segir hópinn þegar hafa farið í heimsóknir í Bláa lónið og Kaffitár. „Það er mjög gaman að sjá hvernig þau virðast sjá tækifæri í öllum mögulegum hlutum svo þessi neisti á eflaust eftir að tendra mörg bál í viðskiptalífinu,“ segir hún. Hópurinn kemur til landsins á vegum Þróunarsamvinnustofnunar Íslands sem styrkir verkefnið. jse@frettabladid.is
Mest lesið Fólk að skila sér heim eftir rassskellingu Innlent „Stefnum að því að koma meira en tvíefld til baka“ Innlent Gluggar þaktir klósettpappír og túrblóð í lakinu: „Aldrei séð annað eins“ Innlent Alltaf jafn óþægilegt að heyra af nálægri árás Innlent Nýja brúin átti að bæta flæðið: Mislæga lausnin vék fyrir ljósum Innlent Þungt högg í magann með tvíburastelpur á vökudeild Innlent Kvöldfréttir Sýnar í beinni Innlent Tjaldsvæðisgestir vöknuðu við að þyrla lenti á vellinum Innlent „Mér finnst þau komin í ansi mikla meðvirkni með þessu félagi“ Innlent Ferðamaðurinn fundinn heill á húfi á Suðurlandi Innlent Fleiri fréttir Utanríkisráðherra svarar og kona stórslasaðist á hlaupahjóli Ekki um „týndar skýrslur“ að ræða Hart tekist á um ESB Burðardýr Stúarts litla dæmd í sex ára fangelsi Tekinn úr umferð vegna ótrúlegrar brotahrinu Góðu fréttirnar þær að innlend verðbólga sé á undanhaldi Druslur ganga í fjórtánda sinn: „Aldrei verið meiri þörf á því heldur en núna“ Tveir af þremur í fangelsi vegna eldri dóma Air China setur beint flug í sölu Verðbólgan eykst enn og borgarstjóri boðar aðgerðir gegn innbrotum Kynna nýtt varanúmer fyrir Neyðarlínuna Vara við hviðum sunnan við Vatnajökul Pallborðið: Nei eða já? Hvalavinir lýsa eftir týndum skýrslum Leggur til breytingar á útivistartíma barna Mikil óhreinindi í ólöglegum peptíðum Fólk að skila sér heim eftir rassskellingu Austurfrétt liggur niðri vegna netárásar Tekið fram að svipting starfsleyfis eigi ekki að vera refsing Umræðan hafi „aftur og aftur snúist um getgátur, misskilning og útúrsnúninga“ Stúlkan fannst heil á húfi „Við hlaupum bara hraðar eftir því sem gestunum fjölgar“ Lögreglan á Norðurlandi eystra lýsir eftir fjórtán ára stúlku Bleikjuvinnslunni breytt í brugghús Lögregla og björgunarsveitir leita að manneskju á Akureyri „Þarf að hafa afleiðingar ef fólki er lógað af heilbrigðisstofnun“ Mikilvægt að draga lærdóm af gerð gatnamótanna „Vald flugstjórans er náttúrulega alveg klárt“ Segir málið verða að hafa afleiðingar fyrir Skúla Tómas Vestmannaeyjabær áfrýjar til Landsréttar Sjá meira