Kannabisræktun í glæsiíbúð 17. desember 2009 06:00 Kannabis Lögreglan hefur stöðvað tvær ræktanir á undanförnum dögum.
Fíkniefnadeild lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði kannabisræktun í fjölbýlishúsi í Gerðunum í Reykjavík í fyrradag. Ræktunin var í 120 fermetra glæsiíbúð sem var meira og minna undirlögð af kannabisplöntum. Þær reyndust vera um 160 talsins. Einnig fann lögregla um 25 grömm af maríjúana í íbúðinni, auk tveggja kílóa af þurrkuðum laufum sem ræktendur nota til að búa til hassolíu. Karlmaður á þrítugsaldri var handtekinn á staðnum. Hann virtist hafa búsetu í smákytru í íbúðinni. Á sunnudag tók fíkniefnadeildin kannabisræktun á Laugavegi. Hún var ekki stór, um 35 plöntur, en þær voru þeim mun öflugri. Ræktunin var á annarri hæð í húsi á miðjum Laugaveginum. Leigutaki húsnæðisins, rétt rúmlega tvítugur maður, er grunaður um að hafa staðið að ræktuninni en hann hafði ekki verið yfirheyrður um hádegisbil í gær. Að sögn lögreglu virðast kannabisræktanir nú hafa breyst. Ræktanirnar eru smærri í sniðum innan höfuðborgarsvæðisins, sem talið er gert til að dreifa áhættunni. Ræktendur verði þá fyrir minna „tjóni“ þegar lögreglan bankar upp á.- jss
Mest lesið Gular viðvaranir og allt að tuttugu og sjö stig Veður Þrjú kynferðisbrot á tónleikasvæðinu til rannsóknar Innlent „Þetta mál er náttúrulega bara einn harmleikur“ Innlent Lindsey Graham er látinn Erlent Heilbrigðiseftirlitið ekki áður séð mengun í fjörunni við vinnslustöð Hvals Innlent Stutt í að beint flug til Kína fari í sölu Innlent Íran og Bandaríkin skiptast á árásum Erlent Þrír gistu í fangageymslu og töluvert um fölsuð skilríki Innlent Rannsaka kynferðisbrot og líkamsárás á Landsmóti Innlent Ríkissaksóknari telur að Margrét eigi ekki að fá að áfrýja til Landsréttar Innlent Fleiri fréttir Atvinnulausum í byggingariðnaði fjölgar gríðarlega Þrjú kynferðisbrot á tónleikasvæðinu til rannsóknar Brotist inn og peningaskápur tekinn Þrír gistu í fangageymslu og töluvert um fölsuð skilríki Hitabylgjur, fullveldi og Megas Þrír handteknir grunaðir um líkamsárás Heilbrigðiseftirlitið ekki áður séð mengun í fjörunni við vinnslustöð Hvals Unnið að hrunvörnum við Holtsnúp Hluti af þriðja vinningi lenti á Íslandi Stutt í að beint flug til Kína fari í sölu Ríkissaksóknari telur að Margrét eigi ekki að fá að áfrýja til Landsréttar Túlka verði niðurstöðurnar af varfærni Breiðholtsbrú opin fyrir umferð Vonar að verslanir hafi lært af reynslunni Rannsaka kynferðisbrot og líkamsárás á Landsmóti Gefur engin fyrirheit um lækkun áfengisgjalda Kynferðisbrot á Hólum og gular viðvaranir Konan sem fannst meðvitundarlaus í tjaldi látin „Ef þú ætlar austur verður þú að fara norðurleiðina“ „Þetta mál er náttúrulega bara einn harmleikur“ Þrír handteknir fyrir brot á lögreglusamþykkt Erfitt að stöðva umfangsmikla sölu Var illa sofin og endaði á bíl úr gagnstæðri átt Hvað er best að gera þegar maður er bitinn? Bandero yfirgefur Íslandsmið vegna veikinda Hryðjuverkamálið, Landsmót hestamanna og neytendur „hafðir að fíflum“ með Lite-bjórum „Vinalegt“ spjall í bílakjallara sem varð að manndrápstilraun „Svimandi“ bótakröfur á leiðinni frá Sindra Snæ og Ísidóri Strandamenn klárir í almyrkvann Hryðjuverkamálinu lokið fjórum árum eftir handtöku Sjá meira