Breytingar hjá Birtíngi - Mannlíf í útgáfuhlé 16. janúar 2009 11:24 Sigurjón M. Egilsson ritstjóri Manlífs
Forsvarsmenn Birtíngs útgáfufélags segjast í ljósi aðstæðna neyðast til þess að gera skipulagsbreytingar á útgáfustarfsemi félagsins. Kostnaður á pappír og öðrum aðföngum er sagður hafa hækkað meira en nokkrun gat órað fyrir auk þess sem sala hefur dregist saman hjá félaginu. Í pósti frá Elínu Ragnarsdóttur, framkvæmdarstjóra félagsins segir að sú blanda sé banvæn ef ekkert sé að gert. Litið er á breytingarnar sem tímabundnar og beðið er eftir betri tíð. Mannlíf sem verið hefur undir ritstjórn Sigurjóns M. Egilssonar fer í útgáfuhlé og verður endurhannað, en stefnt er að því að koma aftur inn á markað með blaðið í vor. „Tímaritið er 25 ára á þessu ári og mikil verðmæti eru fólgin í nafni blaðsins sem við viljum ekki að fari forgörðum. Því munum við endurhugsa blaðið og koma fram með nýtt blað með vorinu," segir í pósti frá Elínu sem Vísir hefur undir höndum. „Golfblaðið fer einnig í útgáfuhlé. Golfblaðið er gefið út í samvinnu við breskt útgáfufélag og á meðan pundið kostar hvítuna úr augunum verður þetta blað að bíða betri tíma. Við vonumst til þess að gefa 3-4 Golfblöð út á árinu en ekkert er þó víst í þeim efnum." Þá segir að Skakki Turninn og Sagan Öll sem hafa komið út verði sameinuð í eitt blað og ritstjóri þess verði Ragnheiður Gyða Jónsdóttir, en blaðið mun koma út á þriggja vikna fresti framvegis. „Illugi [Jökulsson]verður áfram í útgáfustjórn þessara tímarita auk þess sem hann vinnur nú sem forleggjari Skugga og bókaútgáfu Birtíngs. Hann mun auk þess vera með fasta þætti í helgarblaði DV sem ég tel að eigi eftir að vekja athygli." Þá segir að ekki séu fyrirhugaðar breytingar á annarri útgáfu félagsins.
Mest lesið Stærstu rauðu flöggin á stefnumótaforritum Lífið Stórslasaðist átján ára eftir ölvaðan ökumann: „Braut öll bein á vinstri hliðinni minni“ Lífið David Hockney er látinn Menning Ósk um öfgafulla ást og bæling í bakherbergjunum Gagnrýni Hefur þegar fengið starfstilboð Lífið Myndaveisla: Veðrið leikur við íbúa höfuðborgarsvæðisins Lífið Mig langaði til að öskra: „Ég skal segja allt af létta!“ Gagnrýni Marteinn Helgi Sigurðsson er látinn Lífið Fann ástina í örmum snyrtifræðings frá Staffordshire Bíó og sjónvarp Allt að 200 ára veggjakrot fannst við framkvæmdir Lífið Fleiri fréttir Stórslasaðist átján ára eftir ölvaðan ökumann: „Braut öll bein á vinstri hliðinni minni“ Myndaveisla: Veðrið leikur við íbúa höfuðborgarsvæðisins Stærstu rauðu flöggin á stefnumótaforritum Gestir geti fengið innsýn í skapandi samfélag Hafnar.hauss Backstreet Boys frumsýna lag nýrrar Hvolpasveitarmyndar Allt að 200 ára veggjakrot fannst við framkvæmdir Marteinn Helgi Sigurðsson er látinn Hefur þegar fengið starfstilboð Hvað veistu um… árið 2010? Lífseigustu mýturnar um offitu: „Það er ekki sjúkdómur að fitna“ Sjö heitustu brúðkaupstrendin í sumar „Ég var löngu tilbúin að giftast honum“ Rassaumhirða karla í sókn Leggja áherslu á liti, gleði og glimmer Segir Weinstein hafa bannað sér að vera lesbía Hætt saman en ennþá vinir Varð ástfanginn á sama tíma og móðir hans kvaddi Lára Clausen lýsir eftir stolnum Mustang Blendnar tilfinningar að fara á vinnumarkað á ný Lofuðu svörtu fólki lækningu en blekktu það til dauða „Ég passaði mig sérstaklega á því að tala ekki um Evrópusambandið“ Vigdís Häsler og Sveinn Andri gengu í hnapphelduna Huggulegustu hommar landsins „loksins“ giftir Adam Páls fann ástina í örmum Moniku Stjörnulífið: Rapparar ástfangnir upp fyrir haus Myndaveisla: Líf og fjör úti á Granda Hringdi strax í pabba og sagði honum frá Bond-leiknum Krakkatía vikunnar: Jónas, þjóðardýr og einmanalegt áhugamál Verður yngsta skvettan í þingflokki Sjálfstæðismanna Vesturbæingar kvöddu sögufræga bensínstöð Sjá meira