Burton þögull um Lísu í Undralandi 2. apríl 2009 04:30 Burton í Undralandi Tim Burton vinnur nú að gerð myndarinnar Lísu í Undralandi sem byggð er á samnefndri sögu Lewis Carroll. Johnny Depp er að venju í stóru hlutverki.
Súrealískur ævintýraheimur Lewis Carroll, Lísa í Undralandi, ratar brátt á hvíta tjaldið á nýjan leik. Og hver annar en meistari Tim Burton gæti leikstýrt þessu furðuverki. Burton er þögull sem gröfin um hvernig myndin mun líta út en þrívídd og tölvugrafík eru þó talin eiga að leika lykilhlutverk í þessari kvikmyndaútfærslu. Burton ræddi stuttlega við Empire-kvikmyndatímaritið um gerð myndarinnar þegar tímaritið útnefndi þá bestu á árlegri verðlaunahátíð sinni. Eina haldbæra svarið frá Burton var: „Djúpt niður í kanínuholuna.“ Burton virtist ekki einu sinni sjálfur vera viss um hvernig endanlegt útlit yrði, sagðist bara njóta þess að búa til jafn dýra mynd og Lísa í Undralandi verður. „Sú staðreynd gefur mér tækifæri til að prófa mig aðeins áfram.“ Burton er þó samur við sig þegar kemur að leikaravali því Johnny Depp kemur að sjálfsögðu fyrir. Burton hefur varla mátt hreyfa kvikmyndatökuvél án þess að Depp komi nærri með einum eða öðrum hætti. Leikarinn verður í hlutverki brjálaða hattarans en meðal annarra góðkunningja Burtons má nefna eiginkonuna Helenu Bonham-Carter. Þá fer Stephen Fry með stórt hlutverk í myndinni, en hin tvítuga Mia Wasikowska leikur Lísu. Reiknað er með að myndin verði frumsýnd í apríl á næsta ári.- fgg
Mest lesið Eins og að vera með kláða sem hverfur aldrei Lífið „Erum enn að ná utan um allt sem gerðist“ Lífið Taylor Swift og Travis Kelce eru gift Lífið „Þegar þið eignist ykkar fyrsta barn, má ég þá fá það?“ Lífið Fréttatía vikunnar: EBU, aftaka og Love Island Lífið Allir og amma þeirra á Ítalíu Lífið „Það er gaman að gera erfiða hluti“ Lífið „Þú ert greinilega manneskja sem hefur strögglað mikið andlega“ Lífið Kyssti ekki Maguire heldur tottaði rafrettu Lífið „Klukkan er fimm einhvers staðar“ Lífið Fleiri fréttir „Þú ert greinilega manneskja sem hefur strögglað mikið andlega“ „Það er gaman að gera erfiða hluti“ Taylor Swift og Travis Kelce eru gift Eins og að vera með kláða sem hverfur aldrei „Erum enn að ná utan um allt sem gerðist“ Fréttatía vikunnar: EBU, aftaka og Love Island „Klukkan er fimm einhvers staðar“ „Þegar þið eignist ykkar fyrsta barn, má ég þá fá það?“ Snæddi með furstanum af Mónakó Kyssti ekki Maguire heldur tottaði rafrettu Allir og amma þeirra á Ítalíu Brúðkaupshátíð Taylor Swift og Travis Kelce hafin Bubbi, Herra og þeir allra rauðhærðustu á Írskum dögum Helga Þóra og Óli Sig ástfangin á Grikklandi Muniz skilinn Tveggja ára dóttir Nöru Smith með krabbamein Hvað veistu um… götur í Reykjavík sem byrja á S? „Mér var sagt að segja ekki eitt fokking orð“ Weinstein á spítala eftir hjartabilun Segir Depp hafa sturlast úr afbrýðissemi Kanada tekur þátt í Eurovision Erna Mist og Þorleifur Örn eignuðust son Leikarapar selur í 101 Grætti nánast alla í athöfninni „Fór fram úr mínum ýktustu björtustu vonum“ Logi fór á skeljarnar við Como-vatn Endaði einn í Færeyjum í sögulegri steggjun Mormónastjarna kemur út úr skápnum Fann ástina og tók sénsinn í New York Lést af völdum alnæmis Sjá meira