Vegagerðin stendur við áform um Vestfjarðaveg 24. október 2009 12:08
Vegagerðin hyggst standa við fyrri áform um að þjóðvegurinn um sunnanverða Vestfirði verði lagður um Teigsskóg og þvert yfir Gufufjörð og Djúpafjörð. Vegamálastjóri segir að nýfallinn dómur Hæstaréttar komi ekki í veg fyrir þessa umdeildu vegarlagningu.Eigendur sumarbústaða við utanverðan Þorskafjörð hafa lengi barist hart gegn áformum Vegagerðarinnar og fengið til liðs við sig náttúruverndarsamtök. Í fyrradag felldi Hæstiréttur úr gildi úrskurð Jónínu Bjartmars þáverandi umhverfisráðherra um að heimila vegarlagninguna.Hreinn Haraldsson vegamálastjóri segir að tvennt sé í stöðunni, annarsvegar að hætta við og leggja veginn í staðinn yfir hálsana, sem hann telur ólíklegt, eða að fara í nýtt umhverfismat með leiðina um Teigsskóg og yfir firðina, sem hann telur að verði ofaná, en næstu skref verði ákveðin á næstu dögum.Vegamálastjóri segir að dómur Hæstaréttar lúti að því að umhverfisráðherra hafi ekki verið heimilt að nota umferðaröryggi sem rökstuðning. Það hafi verið formleg atriði sem felldu málið og Hæstiréttur hafi verið ósammála héraðsdómi um að frekari rannsókna væri þörf vegna vegarlagningar yfir firðina.Kristján L. Möller samgönguráðherra kveðst eftir helgi ætla að ræða við sveitarstjórnarmenn á Vestfjörðum og Vegagerðina um hvernig brugðist verði við hæstaréttardómnum og um næstu skref.
Mest lesið Sé ekki „stóri maðurinn“ sem lagði á ráðin um „að sjálfsmorða hann“ Innlent Kristrún skýtur fimmtíu milljarðana niður Innlent Hættu við ADHD-greiningu vegna vímuefnaneyslu barnsins Innlent Hækka verð hádegismatar eldri borgara um sjötíu prósent Innlent Áfram Ísland vísar fullyrðingum Kristrúnar á bug Innlent Hafi aldrei farið í Reykholt Innlent Stolinn bíll fannst úti í á Innlent „Dýrslegt“ morð í grænlensku smáþorpi Erlent Færsla vínbúðarinnar „galin“ en skemmdi ekki miðbæinn Innlent Tek mark á því að þetta sé fallegasta hús Íslands Innlent Fleiri fréttir Ráðuneytið segir kostnaðinn átta til þrettán milljarða Andstæðingar segja að Áfram Ísland hafi úr allt að 300 milljónum að spila Hafi ekki hótað með keðjusög og að henda þolanda útbyrðis við Grænlandsstrendur Lag Gunnars og Davíðs hljómar þegar hringt er í borgina Óvissustigi í Öskju aflýst Dómsmálaráðherra valdi Ásgerði í Hæstarétt Grunuðum þjófum vísað úr landi og meinuð endurkoma í 7 ár Áfram Ísland vísar fullyrðingum Kristrúnar á bug Heiðrún Lind á toppnum hjá hagsmunasamtökum Kvikuhlaup frá Svartsengi enn líklegasta sviðsmyndin Tíu af tuttugu efstu embættismönnunum hjá orkufyrirtæki Hafi aldrei farið í Reykholt Kristrún skýtur fimmtíu milljarðana niður Óttast að þeir tekjulægstu dragi úr kaupum á mat Verðhækkanir hjá Reykjavíkurborg og Kristrún á fundaferðalagi Sé ekki „stóri maðurinn“ sem lagði á ráðin um „að sjálfsmorða hann“ Hitnar í kolunum: Já og nei í Pallborði Stolinn bíll fannst úti í á Vilja bæta umferðarflæði með hraðari snjallljósavæðingu Hækka verð hádegismatar eldri borgara um sjötíu prósent Erlendir ríkisborgarar flestir í Mýrdalshrepp og fæstir í Kjósarhrepp Aðalmeðferðin heldur áfram í Reykholtsmálinu Meirihluti telur hitamet og gróðurelda vegna loftslagsbreytinga Bandero dregið úr höfn og flutt til Akraness Hættu við ADHD-greiningu vegna vímuefnaneyslu barnsins Færsla vínbúðarinnar „galin“ en skemmdi ekki miðbæinn Tek mark á því að þetta sé fallegasta hús Íslands Gott að Trump hafi opnað á umræðuna Fólk hélt í sér á meðan sólmyrkvinn gekk yfir Hljóðupptökur, ný vínbúð og færri sturtuðu niður yfir almyrkva Sjá meira