Bíða svara frá Alcan fyrir álverskosningu 12. desember 2009 06:45 Kosið var um það vorið 2007 hvort álverið í Straumsvík fengi að stækka athafnasvæði sitt austur fyrir núverandi Reykjanesbraut eins og sést á þessari mynd, þar sem stækkun álversins hefur verið bætt inn á hægra megin.Mynd/Arkís
Lúðvík Geirsson, bæjarstjóri í Hafnarfirði, segir að þrátt fyrir að nægum fjölda undirskrifta hafi verið safnað sé ekki hægt að efna til nýrrar íbúakosningar um stækkun álversins í Straumsvík vafningalaust. „Þetta er ekki ákvörðun sem er bara á milli bæjarins og íbúanna heldur er þetta mál sem snýr að skipulagi þriðja aðila – sem er fyrirtækið Rio Tinto. Næsta skrefið er að taka upp viðræður við álverið um skipulagið,“ segir Lúðvík. Eins og kunnugt er felldu Hafnfirðingar naumlega í íbúakosningu deiliskipulagstillögu sem fól í sér stækkun álversins. Stuðningsmenn stækkunar söfnuðu undirskriftum til að fá kosninguna endurtekna og fyrir liggur undirskriftalisti sem uppfyllir viðmið þar að lútandi í samþykktum bæjarins. En Lúðvík segir að áður ný kosning geti farið fram þurfi að fá á hreint hvernig álverið vilji haga skipulagsmálunum. Skipulagsstjóri bæjarins hafi þegar rætt við fulltrúa álversins. „Hann gerði okkur grein fyrir því í bæjarráði um daginn og í framhaldi af því var honum falið að ganga frá formlegum spurningum sem snúa að þessu máli þannig að þá komi formleg og efnisleg svör við þessum atriðum sem liggja þá fyrir til grundvallar þegar næstu ákvarðanir verða teknar um væntanlega kosningu og tímasetningu á henni. Það þarf að liggja fyrir alveg á hreinu á hvaða forsendum það er lagt fyrir og kynnt sem íbúarnir eiga þá að kjósa um,“ segir bæjarstjórinn. Ólafur Teitur Guðnason, upplýsingafulltrúi Alcan á Íslandi, segist hins vegar telja að varðandi íbúakosninguna sé boltinn meira hjá bænum en álverinu. Í raun hafi álverið enn ekki fengið formlegt svar við ósk sinni um breytinguna á deiliskipulaginu sem kosið var um vorið 2007. „Við hittumst og fórum yfir stöðuna með skipulagsfulltrúanum og það eru engar frekari spurningar frá þeim, held ég. Við sögðum við þá eins og við höfum sagt við alla að við getum í sjálfu sér ekki svarað því hér og nú hvort að af þessu geti orðið. Verkefnið er engu að síður spennandi. Ein af forsendunum fyrir því að taka það aftur til alvarlegrar skoðunar er að það liggi þá fyrir að það sé einhver möguleiki,“ segir upplýsingafulltrúi Alcan. gar@frettabladid.is Lúðvík Geirsson
Mest lesið Inga kemur Ingó til varnar Innlent Íslendingurinn var nemandi í lýðháskóla Innlent Maðurinn fannst látinn í gilinu Innlent Furðar sig á þögn yfir „einu helsta áhyggjuefni Íslands“ Innlent Ísland kunni að kreista veski ríkra ferðamanna Innlent Óvenjulegu tímabili að ljúka Innlent Inga vill ekki setja „tugi milljarða í loftslagsmál“ Innlent Konan ákærð fyrir manndráp á Edition Innlent Barist gegn lúsmýinu: „Einhvers staðar eru þær að fjölga sér“ Innlent „Var þetta einhver skets?“ Innlent Fleiri fréttir Yfirgefa húsið fyrir fullt og allt á fimmtudag „Við verðum að fá fólk heim aftur“ „Komið þá með allt það sem gerðist síðast“ Fyrstu íslensku GPS-heiðlóurnar komnar heim Harmleikurinn á Edition og umdeild bifreiðarstöð Óvenjulegu tímabili að ljúka Jón Pétur segir enga feðraveldisrembu í „árþúsunda náttúruvali“ Heimilt að nota rafrænt eftirlit í nálgunarbannsmálum „Það þarf að taka í handbremsuna strax“ „Var þetta einhver skets?“ Inga kemur Ingó til varnar Íbúar funda aftur um stöðu Kaffistofunnar Konan ákærð fyrir manndráp á Edition Eden Mining vill ekki sjá málið fyrir dómstólum Ísland kunni að kreista veski ríkra ferðamanna Íslendingurinn var nemandi í lýðháskóla „Mér finnst þetta ákaflega dapurleg framganga“ Sjö þúsund störf gætu verið unnin af gervigreind Vill hætta veiðum en græna ljós Bjarna gildi Hitafundur í utanríkismálanefnd og ráðherra boðar breytingar á hvalveiðilögum Inga vill ekki setja „tugi milljarða í loftslagsmál“ Beitir sér ekki sérstaklega fyrir því að spurningunni verði breytt Stjórnarþingmaður segir Hafró í bullandi pólitík Handteknu hafa komið áður við sögu hjá lögreglu Bein útsending: Kristrún svarar spurningum um þjóðaratkvæðagreiðslu Tveir handteknir í tengslum við stórfellda líkamsárás Furðar sig á þögn yfir „einu helsta áhyggjuefni Íslands“ Krónu kastað fyrir aurinn í fjármögnun skóla Maðurinn fannst látinn í gilinu Sást til einstaklings ofan í gili við Háafoss Sjá meira