Lífið

Fawcett sögð liggja banaleguna

Farrah Fawcett
Farrah Fawcett MYND/AP
Bandaríska leikkonan Farrah Fawcett er sögð liggja banaleguna en hún hefur barist við krabbamein í rúmlega þrjú ár. Þetta er fullyrt í People magazine og þar kemur jafnframt fram að hún hafi verið lögð inn á sjúkrahús í Los Angeles á fimmtudaginn í seinustu viku.

Fawcett skaust upp á stjörnuhimininn í Hollywood þegar hún hlaut hlutverk í Charlie's Angels þáttaröðinni árið 1976.

Leikkonan er 62 ára gömul.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.