Hvatt til mótmæla á fundi Leikskólaráðs 27. maí 2009 11:53
Leikskólaráð Reykjavíkurborgar tekur ákvörðun um það eftir hádegi hvort leikskólagjöld verða hækkuð hjá þeim börnum sem eru lengur en átta tíma á dag í skólanum. Tveggja barna móðir hvetur foreldra til að mæta og mótmæla við upphaf fundarins. Tillagan þess efnis verður lögð fram á fundi leikskólaráðs sem hefst klukkan tvö en það er meirihlutinn í borgarstjórn sem stendur á bak við hana. Gert er ráð fyrir að leikskólagjöldin hækki mest hjá foreldrum sem eru í sambúð eða í hjónabandi. Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir, formaður leikskólaráðs, segir hækkunina mismunandi eftir stétt og stöðu foreldra. Að jafnaði sé hækkunin 30-50% fyrir fyrsta hálftímann en 40-100% eftir það. Þannig hækkar gjaldið um tvö þúsund krónur hjónum sem eru með barn í vistun í átta og hálfan tíma. Þá gerir tillagan jafnframt ráð fyrir að framlag borgarinnar til sjálfstætt starfandi leikskóla og dagmæðra lækki. Þorbjörg segir algengast að foreldrar séu með börn sín skráð í vistun í átta og hálfan tíma en kannanir sýni að þau dvelji að meðaltali rúma sjö tíma á dag á leikskólanum. Sigrún Erla Sigurðardóttir er tveggja barna móðir. Hún er með barn á leikskóla í borginni. Hún biður fólk að taka þátt í mótmælastöðu vegna fyrirhugaðra hækkana. Mótmælastaðan hefst við Miðbæjarskóla klukkan hálf tvö en þar fer fundur leikskólaráðs fram.
Mest lesið „Ef við fáum enga ferðamenn, verðum við að skjóta hundana“ Innlent Reið en þakklát fyrir lífsbjörgina Innlent Slasaðist alvarlega við heyskap Innlent Brotist inn í þrjá gáma og dýr verkfæri tekin ófrjálsri hendi Innlent Ferðamaðurinn fundinn heill á húfi á Suðurlandi Innlent Drykkurinn komi úr flösku ráðherra Innlent Sjötugur maður tapað hundrað og átta milljónum til fjárkúgara Innlent Mótorhjól og bíll skullu saman Innlent Stórbruni í Drammen og dularfull staða moskítóflugunnar Innlent Einbreiðar brýr við Berufjörð og Reyðarfjörð líklega næstar Innlent Fleiri fréttir Standa með félagsmanni sem var sviptur frelsi Lögreglan bauð fimmtugum Íslendingi „gistingu með öllu inniföldu“ í fangaklefa Halda samráðsfund vegna innbrotahrinu Auka nákvæmni rauntímaupplýsinga Vara við hviðum á landinu suðaustanverðu Sólmyrkvinn ógnar fjarskiptum og Mærudagar ganga í garð Úttekt landlæknis á Hraunbúðum: Fagmenntað starfsfólk langt undir lágmarksviðmiðum „Ef við fáum enga ferðamenn, verðum við að skjóta hundana“ Ekið á dreng á hjóli og aðrir fluttir á slysadeild eftir hjólaslys Á sjúkrahús eftir að hafa flogið af mótorhjólinu Eldur kviknaði á Fiskislóð Reið en þakklát fyrir lífsbjörgina Kominn til Akureyrar eftir alvarlegt slys á skemmtiferðaskipi „Það er verið að dreifa athyglinni, það er verið að auka óvissu“ „Gott og vel við skulum trúa ráðherranum“ Utanríkisráðherra svarar og kona stórslasaðist á hlaupahjóli Ekki um „týndar skýrslur“ að ræða Hart tekist á um ESB Burðardýr Stúarts litla dæmd í sex ára fangelsi Tekinn úr umferð vegna ótrúlegrar brotahrinu Góðu fréttirnar þær að innlend verðbólga sé á undanhaldi Druslur ganga í fjórtánda sinn: „Aldrei verið meiri þörf á því heldur en núna“ Tveir af þremur í fangelsi vegna eldri dóma Air China hefur sölu á flugmiðum frá Íslandi til Kína Verðbólgan eykst enn og borgarstjóri boðar aðgerðir gegn innbrotum Kynna nýtt varanúmer fyrir Neyðarlínuna Vara við hviðum sunnan við Vatnajökul Pallborðið: Nei eða já? Hvalavinir lýsa eftir týndum skýrslum Leggur til breytingar á útivistartíma barna Sjá meira