Alfreð: Við tókum þá bara á þeirra eigin bragði Ómar Þorgeirsson skrifar 31. ágúst 2009 21:15 Alfreð Finnbogason var á skotskónum fyrir Blika í kvöld. Mynd/Stefán „
Eigum við ekki að segja að við höfum bara jarðað þá í fyrri hálfleik og siglt þessu svo rólega í höfn í síðari hálfleik," sagði markahrókurinn ungi Alfreð Finnbogason hjá Breiðabliki eftir 1-3 sigur liðsins gegn Stjörnunni á Stjörnuvelli í kvöld. Blikar fóru langt með að gera út um leikinn á átta mínútna kafla í lok fyrri hálfleiks þegar þeir skoruðu þrjú mörk en Alfreð skoraði einmitt tvö þeirra. „Við tókum þá bara á þeirra eigin bragði. Við lágum aftarlega og sóttum svo hratt á þá og það virkaði vel. Við komumst í 0-3 og ég veit hvað margir sem horfðu á leikinn hafa eflaust velt því fyrir sér hvort að við myndum missa aftur niður forystuna eins og á móti Fram en við vorum einbeittir og héldum haus. Við höfum unnið vel í okkar málum undanfarið og nú tekið þrettán stig af síðustu fimmtán mögulegum og þetta slys á móti Fram kemur ekki fyrir aftur. Mér fannst við annars stjórna leiknum vel og sigurinn var aldrei í hættu fannst mér þótt þeir hafi minnkað muninn," sagði Alfreð sem er kominn með ellefu mörk í deildinni með tvennunni í kvöld og í hörku baráttu um gullskóinn. „Ég er ekkert að spá í þetta og hugsa bara um að spila minn leik og vinna leiki. Allt annað er bara bónus en ég hefði viljað ná þrennunni í kvöld og veit ekkert hvað Óli þjálfari var að spá með að skipta mér útaf. Við þurfum að ræða það aðeins," sagði Alfreð á léttum nótum.
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Furðar sig á verðlaunafénu eftir úrslit bikarsins Íslenski boltinn Andri Lucas svaraði fautaskap með marki Enski boltinn Harðvítugar deilur og tómur völlur hjá nýju liði Alberts Fótbolti Grindavík/Njarðvík - Þróttur R. 1-2 | Þróttur bikarmeistari í fyrsta sinn Íslenski boltinn „Öll tækifæri sem ég hef fengið eru frá Íslandi“ Sport Arsenal sótti þrjú stig í hitaleik Enski boltinn Bragðdauft og svekkelsi á Anfield Enski boltinn Valshjartað slær enn hjá hetju KR Íslenski boltinn Neitar að hafa tekið þátt í mannráni Enski boltinn Landsliðskona opnar sig um áfall: „Hefði geta farið mun verr“ Fótbolti Fleiri fréttir Stöðvaði leikinn og skutlaði sér á eftir gæs Grindavík/Njarðvík - Þróttur R. 1-2 | Þróttur bikarmeistari í fyrsta sinn Valshjartað slær enn hjá hetju KR KR upp í Bestu deildina MSK Zilina að kaupa Dag Orra frá Val Þetta verður spennuleikur í Laugardalnum KR með örlögin í sínum höndum og sæti í Bestu deildinni í boði Töpin sitja ekki í leikmönnunum fyrir úrslitaleikinn Alþjóðadómarinn verður yfirþjálfari Furðar sig á verðlaunafénu eftir úrslit bikarsins Myndasyrpa: Gleðin við völd í Laugardal „Ef ég hefði fengið að velja þá hefði ég alltaf valið eldinguna“ „Maður er í þessu til þess að vinna titla“ „Getur vel verið að ég sé bara með Aftureldingargleraugu“ „Við náðum einum af þessum stóru í ár“ „Maður skal brennimerkja þessa stund í hjarta sínu og sál“ Breiðablik - Afturelding 2-1 | Blikar bikarmeistarar í annað sinn Spenntur að sjá rauða hafið í stúkunni Meðvitaðir um pressuna „Hljóta allir að sjá á hverjum pressan er í þessum leik“ Ólafur skilur Magga en er ekki sammála „Vona að það verði enginn munur á vellinum“ Góðar og slæmar fréttir fyrir íslensku liðin sem ætla í Evrópudeildina Á ekki að snúast um karla gegn konum Pressa á Blikum og skipulagið gagnrýnt „Gríðarleg vonbrigði“ Víkinga en stór áfangi í augsýn Þessir dómarar dæma bikarúrslitin Dramatískt sigurmark lærisveina Heimis í umspilinu Með innanbúðarupplýsingar um gífurleg áhrif Eiðs Smára Þróttarar komnir yfir í einvígi sínu gegn Njarðvík Sjá meira