22 með þroskahömlun útskrifuðust úr HÍ 20. júní 2009 23:00 Aðalbygging Háskóla Íslands. Mynd/Stefán
Í dag brautskráðust 22 nemendur úr diplómanámi fyrir fólk með þroskahömlun frá Menntavísindasviði Háskóla Íslands að því er kemur fram í tilkynningu. Námið hófst haustið 2007, en þá var í fyrsta sinn boðið upp á háskólanám fyrir fólk með þroskahömlun hér á landi. Um var að ræða námsleið á þroskaþjálfabraut sem var skipulögð sem tveggja ára rannsóknartengt þróunarverkefni. Tilgangur námsins var að veita fólki með þroskahömlun möguleika til fullgildrar samfélagsþátttöku og tóku nemendur þátt í námskeiðum með öðrum nemendum háskólans. Í þeim tilgangi var þróað stuðningskerfi, svonefnt mentorakerfi, þar sem samnemendur veittu diplómanemendum stuðning eftir þörfum og óskum hvers og eins. Námið var afar fjölbreytt og sem dæmi um námskeið má nefna fötlunarfræði, siðfræði í starfi með fötluðum, upplýsingatækni og miðlun, þjóðsögur, goðsögur og ævintýri, framsögn og leikræna tjáningu, matreiðslu og málun. Í náminu var lögð áhersla á að tengja saman fræðilegt nám og starfsnám og stunduðu nemendur starfsnám á fjölbreyttum vettvangi, s.s. í skólum, leikskólum, bókasöfnum, félagsmiðstöðvum og þar sem fatlað fólk sækir þjónustu. Nemendur hafa lýst ánægju sinni með að fá tækifæri til að stunda nám með ófötluðum jafnöldrum sínum og telja það afar mikilvægan þátt í náminu.
Mest lesið Reið en þakklát fyrir lífsbjörgina Innlent „Stefnum að því að koma meira en tvíefld til baka“ Innlent Gluggar þaktir klósettpappír og túrblóð í lakinu: „Aldrei séð annað eins“ Innlent Alltaf jafn óþægilegt að heyra af nálægri árás Innlent Nýja brúin átti að bæta flæðið: Mislæga lausnin vék fyrir ljósum Innlent Þungt högg í magann með tvíburastelpur á vökudeild Innlent Kvöldfréttir Sýnar í beinni Innlent Tjaldsvæðisgestir vöknuðu við að þyrla lenti á vellinum Innlent „Mér finnst þau komin í ansi mikla meðvirkni með þessu félagi“ Innlent Ferðamaðurinn fundinn heill á húfi á Suðurlandi Innlent Fleiri fréttir Á sjúkrahús eftir að hafa flogið af mótorhjólinu Eldur kviknaði á Fiskislóð Reið en þakklát fyrir lífsbjörgina Kominn til Akureyrar eftir alvarlegt slys á skemmtiferðaskipi „Það er verið að dreifa athyglinni, það er verið að auka óvissu“ „Gott og vel við skulum trúa ráðherranum“ Utanríkisráðherra svarar og kona stórslasaðist á hlaupahjóli Ekki um „týndar skýrslur“ að ræða Hart tekist á um ESB Burðardýr Stúarts litla dæmd í sex ára fangelsi Tekinn úr umferð vegna ótrúlegrar brotahrinu Góðu fréttirnar þær að innlend verðbólga sé á undanhaldi Druslur ganga í fjórtánda sinn: „Aldrei verið meiri þörf á því heldur en núna“ Tveir af þremur í fangelsi vegna eldri dóma Air China hefur sölu á flugmiðum frá Íslandi til Kína Verðbólgan eykst enn og borgarstjóri boðar aðgerðir gegn innbrotum Kynna nýtt varanúmer fyrir Neyðarlínuna Vara við hviðum sunnan við Vatnajökul Pallborðið: Nei eða já? Hvalavinir lýsa eftir týndum skýrslum Leggur til breytingar á útivistartíma barna Mikil óhreinindi í ólöglegum peptíðum Fólk að skila sér heim eftir rassskellingu Austurfrétt liggur niðri vegna netárásar Tekið fram að svipting starfsleyfis eigi ekki að vera refsing Umræðan hafi „aftur og aftur snúist um getgátur, misskilning og útúrsnúninga“ Stúlkan fannst heil á húfi „Við hlaupum bara hraðar eftir því sem gestunum fjölgar“ Lögreglan á Norðurlandi eystra lýsir eftir fjórtán ára stúlku Bleikjuvinnslunni breytt í brugghús Sjá meira