Atli samdi fyrir Nixon/Frost 19. janúar 2009 03:00 Atli Örvarsson var hluti af teymi Hans Zimmer sem semur tónlistina við stórmyndina Frost/Nixon en líklegt þykir að hún hreppi tilnefningu til Óskarsins.
Íslenska tónskáldið Atli Örvarsson kom að gerð tónlistarinnar við kvikmyndina Nixon/Frost. Lærimeistari Atla, Hans Zimmer, er opinberlega skráður fyrir tónlistinni en Atli var í hópnum sem samdi hana. Nixon/Frost hefur fengið lofsamlega dóma, var meðal annars tilnefnd til Golden Globe sem besta mynd ársins. Tapaði þar fyrir Slumdog Millionaire í leikstjórn Danny Boyle. Hún er engu að síður sögð líkleg til að hljóta Óskarstilnefningu þegar þær verða tilkynntar 22. janúar. Atli hefur áður unnið með Hans Zimmer við gerð tónlistar við vinsælar myndir. Ber þar helst að nefna síðustu myndina í sjóræningja-þríleiknum Pirates of the Caribbean og Simpsons: The Movie auk hinnar ofurvinsælu Iron Man með Robert Downey Jr. í aðalhlutverki. „Allir þessir stóru karlar í þessum geira hafa heilan her af aðstoðarmönnum í kringum sig en fæstir af þeim gefa lærlingunum einhverja viðurkenningu. Zimmer er hins vegar mikill snillingur og gefur öllu sínu starfsfólki kredit,“ sagði Atli við Fréttablaðið þegar hann hafði nýlokið við að semja tónlist með Zimmer við sjóræningjamyndina. Atli hefur að undanförnu unnið að gerð sinnar eigin tónlistar við kvikmyndir á borð við Vantage Point, Babylon AD og nú síðast Thick as Thieves en hún skartar hjartaknúsaranum Antonio Banderas í aðalhlutverki auk óskarsverðlaunahafans Morgan Free-man. Samkvæmt vef imdb.com fæst Atli nú við tónlist kvikmyndarinnar The 4th Kind en aðalhlutverkið í þeirri mynd er í höndunum á Millu Jovovich. - fgg
Mest lesið „Þú ert greinilega manneskja sem hefur strögglað mikið andlega“ Lífið Eins og að vera með kláða sem hverfur aldrei Lífið „Erum enn að ná utan um allt sem gerðist“ Lífið Fólk eigi ekki að vera feimið við sleipiefnið Heilsa Taylor Swift og Travis Kelce eru gift Lífið Allir og amma þeirra á Ítalíu Lífið „Þegar þið eignist ykkar fyrsta barn, má ég þá fá það?“ Lífið Fréttatía vikunnar: EBU, aftaka og Love Island Lífið Melabúðin fagnar sjötíu árum Lífið „Það er gaman að gera erfiða hluti“ Lífið Fleiri fréttir Melabúðin fagnar sjötíu árum „Þú ert greinilega manneskja sem hefur strögglað mikið andlega“ „Það er gaman að gera erfiða hluti“ Taylor Swift og Travis Kelce eru gift Eins og að vera með kláða sem hverfur aldrei „Erum enn að ná utan um allt sem gerðist“ Fréttatía vikunnar: EBU, aftaka og Love Island „Klukkan er fimm einhvers staðar“ „Þegar þið eignist ykkar fyrsta barn, má ég þá fá það?“ Snæddi með furstanum af Mónakó Kyssti ekki Maguire heldur tottaði rafrettu Allir og amma þeirra á Ítalíu Brúðkaupshátíð Taylor Swift og Travis Kelce hafin Bubbi, Herra og þeir allra rauðhærðustu á Írskum dögum Helga Þóra og Óli Sig ástfangin á Grikklandi Muniz skilinn Tveggja ára dóttir Nöru Smith með krabbamein Hvað veistu um… götur í Reykjavík sem byrja á S? „Mér var sagt að segja ekki eitt fokking orð“ Weinstein á spítala eftir hjartabilun Segir Depp hafa sturlast úr afbrýðissemi Kanada tekur þátt í Eurovision Erna Mist og Þorleifur Örn eignuðust son Leikarapar selur í 101 Grætti nánast alla í athöfninni „Fór fram úr mínum ýktustu björtustu vonum“ Logi fór á skeljarnar við Como-vatn Endaði einn í Færeyjum í sögulegri steggjun Mormónastjarna kemur út úr skápnum Fann ástina og tók sénsinn í New York Sjá meira