Lífið

Hefur ekki fundið þá einu réttu

Ingólfur Þórarinsson.
Ingólfur Þórarinsson.

Ingólfur Þórarinsson, 22 ára, betur þekktur sem Ingó úr Veðurguðunum, komst áfram í undankeppni Júróvisjón um helgina með lagið Undir regnboganum eftir Hallgrím Óskarsson.

Vísir hafði samband við Ingólf, óskaði honum til hamingju og spurði hann meðal annars um stelpurnar sem fluttu með honum sigurlagið og ástina.

„Nei þær spila ekki á hljóðfærin, " svarar Ingólfur aðspurður hvort dökkhærðu stelpurnar sem dilluðu sér á meðan hann söng sigurlagið spiluðu í raunveruleikanum á hljóðfærin.

MYND/Fréttablaðið.

„Þetta var sameiginleg hugmynd hjá mér og Hallgrími. Lúkkar þetta ekki?" spyr Ingólfur og bætir við:

„Ég held að miklu leyti skipti máli að atriðið sé sjónvarpsvænt og hvernig það lúkkar. Þær hefðu ekki passað við lagið hans Páls Rósinkrans því það er menningarlegra atriði. Okkar er meira svona grín og gleði. Það hefði ekki lúkkað eins vel ef menntaðir hljófæraleikarar hefðu spilað með mér eða ég flutt það einn."

MYND/Fréttablaðið.

Hvað með rauðu strigaskóna sem þú varst í? Er einhver pæling á bak við þá? „Nei engan veginn. Hann Tommi vinur minn reddaði þeim klukkutíma áður en ég flutti lagið. Ég átti enga rauða skó en okkur fannst rauðir skór vera málið við rautt bindi. Mér var eiginlega alveg sama. Ég fór í það sem mér var sagt að fara í."

„Ég verð ekki aftur í þeim ef mamma fær að ráða. Já, hún fylgist með þessu. Jú, jú hún er ánægð með þetta," segir Ingólfur.

„Auðvitað reynir maður að vinna en persónulega þá leið mér hálfóþægilega á sviðinu. Ég var hrikalega stressaður. Ég verð aldrei stressaður nema þegar ég fer í sjónvarp. Eins og þegar ég var í Idolinu. Ég er aldrei stressaður nema í þessum aðstæðum."

Að lokum má ég spyrja hvort þú ert lofaður? „Nei, ég hef ekki fundið þá réttu ennþá," svarar Ingólfur sallarólegur yfir spurningunni áður en kvatt er.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.