InDefence: Óvíst hvort fyrirvarar hafi gildi 21. ágúst 2009 12:28
InDefence hopurinn hefur eftir sérfræðingi í alþjóðarétti við Cambridge háskóla að hann telji óvíst að fyrirvararnir hafi nokkurt gildi samkvæmt breskum lgöum. Því telur InDefance hópurinn að afgreiðsla málsins með fyrirvörum, feli í sér mikla áhættu fyrir Íslendinga. „Þar sem bresk lög gilda um Icesave samningana er afar mikilvægt að fyrirvarar sem Alþingi setur við ríkisábyrgðina hafi ótvírætt gildi gagnvart þeim. Um það ríkir óvissa," segir í yfirlýsingu frá InDefence. Hópurinn segist hafa borið fyrirvarana undir Dr. Michael Waibel, sérfræðing í alþjóðarétti við Cambridge háskóla og er bráðabirgðaálit hans að að óvíst sé hvort fyrirliggjandi fyrirvarar hafi gildi samkvæmt breskum lögum. „Slík afgreiðsla málsins beri því í sér mikla áhættu fyrir Íslendinga. Sé það raunin að fyrirvarar Alþingis hafi ekki gildi samkvæmt breskum lögum eru Alþingismenn í raun að samþykkja Icesave samningana óbreytta, samninga sem meirihluti þjóðarinnar og þingmanna telur óviðunandi," benda forsvarsmenn hópsins á. „Í ljósi þessarar óvissu er nauðsynlegt að Alþingi afli formlegs álits óháðra sérfræðinga í breskum lögum til að fá úr því skorið hvort fyrirvararnir við ríkisábyrgð hafi gildi fyrir breskum dómstólum. Slíkt sérfræðiálit þarf að berast Alþingi áður en frumvarp um ríkisábyrgð á Icesave samningnum er afgreitt. Að hundsa þessa grundvallarspurningu gætu reynst afdrifarík afglöp, því um er að ræða óvissu sem getur kostað Íslensku þjóðina hundruð milljarða. InDefence hópurinn skorar á Alþingismenn þjóðarinnar að eyða óvissu um lagalegt gildi fyrirvaranna með því að kalla tafarlaust eftir formlegu áliti óháðra sérfræðinga í breskum lögum," segir að lokum.
Mest lesið Snjóflóð hrifsaði með sér göngugarpa Innlent „Opnið djöfulsins sundið, sjúku fantarnir ykkar“ Erlent Flugliðanum bjargað eftir hættulega björgunaraðgerð Erlent Viðvaranirnar appelsínugular og hviður yfir 40 metrum á sekúndu Veður Sautján ára drengur lést í snjóflóði Erlent Féll fyrir borð í Norðursjó í ofsaveðri Erlent „Vatnsbólið er nánast tómt, það er að tæmast“ Innlent Flugliðinn nú „alvarlega særður“ Erlent Karlmenn þurfa leyfi til að ferðast lengur en í þrjá mánuði Erlent Upplausn í Borgaraflokknum og formaðurinn sakaður um alræði Erlent Fleiri fréttir Lýstu eftir manni á níræðisaldri „Skynsamlegt að spyrja þjóðina“ Snjóflóð hrifsaði með sér göngugarpa Fólk stillt að mestu á Akureyri „Stórslysalaust“ á Ísafirði í nótt Hvernig greiðir Ragnar Þór atkvæði í ágúst? Gefur skít í helvítishótanir Trumps Viðreins býður fram sinn fyrsta lista á Akranesi Unnið að tillögum um lengingu brimvarnargarða Landeyjahafnar „Vatnsbólið er nánast tómt, það er að tæmast“ Hleypt inn í hollum í Vesturbæjarlaug Eldri borgarar einmana en eigi erfitt með að rífa sig upp á ný Segir stjórnvöld vinna gegn ferðaþjónustunni „Það er munur á karllíkama og kvenlíkama“ Mæla gegn því að ganga ofar en að Steini í Esjunni Óvissa í ferðaþjónustu og stuð á Aldrei fór ég suður Þrír vistaðir í fangaklefa og einn fluttur á bráðamóttöku Fyrsti innflytjandinn til að lesa Passíusálmana í kirkju skáldsins „Enginn ætti að þurfa að fara í annað land til þess að fá viðeigandi heilbrigðisþjónustu“ Lögregla lét loka þremur afhendingarstöðum áfengis „Þetta hlýtur að verða metdagur“ Snjóruðningstæki sat fast Göngin lokuð á næturnar í sjö vikur: „Hélt að þetta væri aprílgabb“ Sjúkrahúsið skilar ekki páskagjöf Smáríkisins Glórulaust að veginum hafi ekki verið lokað fyrr Brotist inn og gert sig heimakominn Ljósmyndarinn lifir ekki á „tagginu“ einu saman Framsókn næði ekki inn á þing Þáttaskil í sögu Lýðskólans á Flateyri Innanlandsflugi aflýst vegna veðurs Sjá meira