Hundruð manna handtekin í Grikklandi 8. desember 2009 04:00 Óeirðir í Aþenu. Lögreglan hefur beitt táragasi á mótmælendur.fréttablaðið/AP
Nokkur þúsund ungmenni hafa safnast saman í miðborg Aþenu tvo daga í röð til að minnast óeirðanna fyrir ári, sem hófust eftir að unglingspiltur féll fyrir skoti úr byssu lögregluþjóns. Sumir mótmælendurnir hafa kastað grjóti í lögregluna, sem hefur svarað með því að beita táragasi. Brotnar hafa verið rúður í bönkum og kveikt í ruslatunnum úti á götu. Lögreglan segir að á sunnudaginn hafi sextán lögreglumenn og fimm mótmælendur særst í átökunum, sem stóðu langt fram á nótt. Hundruð manna hafa verið handteknir, bæði í Aþenu og í Þessaloniku, þar sem einnig brutust út óeirðir. Einnig hafa orðið átök mótmælenda og lögreglu í borgunum Patras og Ioannina. Á sunnudaginn var ár liðið frá því að hinn fimmtán ára gamli Alexis Grigoropolous lét lífið. Réttarhöld yfir tveimur lögregluþjónum hefjast 20. janúar næstkomandi vegna láts drengsins. Annar þeirra er ákærður fyrir morð, hinn fyrir morðtilraun. Tveggja vikna óeirðir brutust út í kjölfar þessa atviks. Þær óeirðir voru þær verstu sem orðið hafa í landinu áratugum saman.- gb
Mest lesið Hvað er vitað um manndrápið á Kársnesi? Innlent Nokkrir handteknir vegna mannsláts Innlent Óttast að stefni í kreppuverðbólgu Innlent Ætlar að hafa lokað þrátt fyrir tífaldan íbúafjölda Innlent Ákærður fyrir að nauðga stúlku í heitum potti fyrir rúmum áratug Innlent Íslendingur og útlendingur í gæsluvarðhaldi vegna mannsláts í Kópavogi Innlent Fundu níu skipsflök og ummerki um snjóflóð á hafsbotni við Siglufjörð Fréttir Þrír handteknir á Þingvöllum Innlent Þurfa dýr að vera með sólmyrkvagleraugu þann 12. ágúst? Innlent Ætlar að láta frysta egg sín og útilokar ekki forsetaframboð Erlent Fleiri fréttir Brutu reglur þegar þau tilkynntu óvart andlát konungsins Harður jarðskjálfti skók Kólumbíu og Ekvador Mannfall í drónaárás á olíuhreinsistöð í Tatarstan Frederiksen og Meloni taka höndum saman gegn innflytjendum Heitustu sumarmánuðir í Vestur-Evrópu í sögunni Ætlar að láta frysta egg sín og útilokar ekki forsetaframboð Segir allt að 50 þúsund hermenn frá Norður-Kóreu á leið til Rússlands Handtekinn eftir að kona og barn drukknuðu við Frelsissyttuna Netanjahú hafnar friðaráætlun Trumps Ríflega hundrað og sextíu ungmenni handtekin Forstjórinn ræður hvort upptökur úr búkmyndavélum verði birtar Gefur aftur í skyn að hann vilji embættið á ný Rússar taldir bera ábyrgð á sjálfsprengjudrónanum Heitir því að herða byssulöggjöf í kjölfar árásar Spánverjar taka upp landamæraeftirlit gagnvart Ítalíu Blanche staðfestur sem dómsmálaráðherra Sonur Bidens segir náðunina ekki góða ákvörðun Kampavínið klárt þegar hann beið eftir að morðingjar létu til skarar skríða Gert að greiða tugi milljarða fyrir að passa ekki öryggi barna Sjö látnir eftir skotárás í grunnskóla Biður fjársterka stuðningsmenn um að styðja Vance 2028 Íranir segja viðræður á lokametrunum Vísa máli Fauci til dómstóla Sakar lekamenn um landráð vegna „rangra“ frétta „Fagmenn“ smíðuðu og flugu sjálfsprengidrónanum í Leipzig Áhrifavaldur myrtur í beinni Ebóla að stinga viðbragðsaðila í verkfalli af Tómar hillur í vopnabúrum Bandaríkjanna Rússneskur drónasmiður á gjörgæslu vegna bílsprengju Kona stakk fjóra í Lundúnum Sjá meira