Íslensk mannæta á hvíta tjaldið 11. mars 2009 07:00 Útgáfusamningi fagnað. Þórarinn Leifsson og Auður Jónsdóttir fagna útgáfusamningi í Þýskalandi með kampavíni. Þau skrifa nú kvikmyndahandrit eftir bókinni Leyndarmálið hans pabba.mynd/Björk „
Ég er ekki alveg búinn að ákveða hvort þetta verði leikin mynd eða teiknimynd. Ég hallast frekar að því að þetta verði teiknimynd,” segir Þórarinn Leifsson en hann, ásamt konu hans Auði Jónsdóttur, ætlar að skrifa kvikmyndahandrit upp úr bók Þórarins, Leyndarmálið hans pabba. Bókin vakti töluverða athygli þegar hún kom út 2007 en hún segir frá systkinum sem glíma við töluverðan vanda; pabbi þeirra sporðrennir nefnilega manneskjum í tíma og ótíma. Þórarinn er auk þess að skrifa handrit að næstu bók sinni sem ráðgert er að komi út í haust. Hann vildi ekkert gefa upp um innihald hennar að svo stöddu. Þórarinn var staddur í Berlín þegar Fréttablaðið hafði upp á honum en hann verður viðstaddur næststærstu bókahátíð Þýskalands í Leipzig enda er Leyndarmálið hans pabba að koma út á þýsku undir nafninu Papas Geheimnis. „Ég er mjög spenntur fyrir þessu, það er þýskt barnaleikhús í Leipzig sem er að leiklesa bókina og hún hefur fengið fína dóma,“ útskýrir Þórarinn en einn gagnrýnandinn sagði að svona bók hefði aldrei verið skrifuð. Varla er hægt að sleppa Þórarni án þess að spyrja hvernig honum hafi verið tekið, skuldugum Íslendingnum, í Þýskalandi. „Ég fór á barinn í gær og sagði að við Íslendingar værum mestu taparar í heimi. Þeim fannst það bara fyndið og spurðu hvort ég væri ekta Íslendingur,“ segir Þórarinn. „Ég held að þetta sé bara miklu heilbrigðara svona en þegar við vorum uppasvín, núna erum við bara Íslendingar á okkar eigin forsendum.“ - fgg
Mest lesið Ekkert náð að æfa sig en ætlar að kýla á Bakgarðshlaupið Lífið „Bakkus nær ekki þeim verstu af okkur, virðist helst velja þá bestu“ Lífið Hvað veistu um... fræga menn sem heita Robert? Lífið „Það tók viku að vinna í Rúriki“ Tónlist Barnastjarnan orðin tveggja barna móðir Lífið Ef þú ert í þessum hópi ættir þú ekki að taka lýsi Lífið Ísak Bergmann og Agnes Perla eiga von á barni Lífið Skorar á Kraft að jafna framlag sitt til neyðaraðstoðar á Gasa Lífið Systur skapa heilsusamfélag fyrir konur á öllum æviskeiðum Lífið samstarf Írar ekki með í Eurovision annað árið í röð Tónlist Fleiri fréttir Ekkert náð að æfa sig en ætlar að kýla á Bakgarðshlaupið Barnastjarnan orðin tveggja barna móðir Hvað veistu um... fræga menn sem heita Robert? Ísak Bergmann og Agnes Perla eiga von á barni „Bakkus nær ekki þeim verstu af okkur, virðist helst velja þá bestu“ Skorar á Kraft að jafna framlag sitt til neyðaraðstoðar á Gasa Ef þú ert í þessum hópi ættir þú ekki að taka lýsi Karl Th. Birgisson er látinn Lena Dunham orðin mamma með hjálp staðgöngumóður Fóru áttatíu prósent fram úr áætlun Leiðir skilja hjá Siggu Dögg og Sævari Eyjólfs Kampakát yfir kampavíni og kavíar Amanda Seyfried og Thomas Sadoski skilin Hafi ekki sjálfur sparkað Macklemore: „Ég myndi aldrei bregðast aðdáendum“ Hundrað ára virðulegt setur með grænu baði og gufu Bob Mackie er látinn Friðrik Þór og Jóna Vigdís ástfangin Macklemore tjáir sig: „Fólk er drepið í dag og fólk verður drepið á morgun“ Æstir í nektarmyndir Mörthu Stewart Vakna við Star Wars-lagið alla morgna Hvað veistu um… Titanic? Húðdrottning bauð í gellugusu Ed Sheeran sparkar Macklemore Hið alræmda „Epstein drap sig ekki“-samsæri Ein pilla dró Panettiere til dauða Heldur sig til hlés og lifir skírlífi Vala Matt kom heljarinnar búslóð fyrir í sextíu fermetra íbúð Stjörnulífið: Í fyrsta skipti í bikiníi í útlöndum „Ég byrjaði að lesa kaflann og fór bara að gráta“ Skúli Jón og Jennifer gengin í hnapphelduna Sjá meira