Hefur ekki áhrif á íslensk fyrirtæki Bónusfjölskyldunnar 11. mars 2009 19:01
Gjaldþrot Baugs Group mun ekki hafa teljandi áhrif á rekstur fyrirtækja í eigu Jóns Ásgeirs og fjölskyldu hans á Íslandi. Eins og komið hefur fram verður Baugur Group tekið til gjaldþrotaskipta, en Gaumur, fjölskyldufélag Jóns Ásgeirs, var þar stærsti hluthafinn. Gaumur á einnig Haga, sem rekur meðal annars Bónus, Hagkaup, 10/11, auk þess að eiga stóran hluta í Teymi. Velta menn því fyrir sér hvort niðurstaða héraðdsóms muni hafa áhrif á þau fyrirtæki. Jón Ásgeir segir að vissulega blasi við milljarða tap vegna Baugs Group, en það eigi ekki að hafa áhrif á fyrrnefnd félög hérlendis. Hann óttast því ekki um framtíð Haga, sem hann segir að sé vel rekið fyrirtæki og hann trúi að muni áfram blómstra undir handleiðslu föður síns, Jóhannesar Jónssonar. Undir þessar fullyrðingar tekur forstjóri fyrirtækisins. ,,Niðurstaða héraðsdóms í dag hún á ekki að hafa nein áhrif á Haga. Ekki nein," segir Finnur Árnason forstjóri Haga. Jón Ásgeir, er einnig, ásamt eiginkonu sinni, aðaleigandi fjölmiðlafyrirtækisins 365 miðla, en undir það heyrir meðal annars Stöð 2, Bylgjan, Fréttablaðið og Vísir.is. Hann segir fyrirtækið ekki í neinni hættu vegna málefna Baugs Group. Það staðfestir Ari Edwald, forstjóri 365, sem segir enda engar beinar tengingar á milli félaganna, þar sem Baugur hafi ekki verið hluthafi.
Tengdar fréttir Jón Ásgeir: Hefðum betur haldið okkur bara í smásölunni „Mér líður hræðilega eftir þessi tíðindi,“ segir Jón Ásgeir Jóhannesson, aðaleigandi Baugs, um þá staðreynd að beiðni áframhaldandi greiðslustöðvun Baugs Group var hafnað í dag. Tíðindin þýða að Baugur er gjaldþrota og Jón Ásgeir segir að þessi niðurstaða muni kosta hluthafa og kröfuhafa mikið fé. 11. mars 2009 16:27 Baugur vildi bíða betri tíðar Baugur, sem var hafnað um áframhaldandi greiðslustöðvun í hádeginu, skuldar 148 milljarði umfram eignir samkvæmt úrskurði Héraðsdóms Reykjavíkur. Þá segir í dómsorði að þeir hafi viljað áframhaldandi greiðslustöðvun til þess að bíða betri tíðar. Þar kemur einnig fram að ekki hafi verið raunhæfur möguleiki hjá Baugi að koma nýrri skipan á fjármál sín. 11. mars 2009 12:52 Stjórn Baugs óskar eftir gjaldþrotaskiptum Héraðsdómur Reykjavíkur synjaði í dag beiðni Baugs Group um framlengingu greiðslustöðvunar. Í framhaldinu hefur stjórnin félagsins ákveðið að óska eftir því að félagið verði tekið til gjaldþrotaskipta. 11. mars 2009 18:11 Sjö milljarða tjón ef Baugur fer í þrot Nái beiðni skilanefndar Glitnis fram að ganga að greiðslustöðvun Baugs verði ekki framlengd mun það kosta þjóðina sjö milljarða. Stjórn Baugs og skilanefnd Landsbankans hafa að undanförnu unnið að því að tryggja að verðmætin glatist ekki. 11. mars 2009 09:00 Jón Gerald: Dapurleg endalok Baugs „Mín fyrstu viðbrögð eru að það er mjög dapurt að þetta skuli enda svona," segir Jón Gerald Sullenberger athafnamaður, um úrskurð Héraðsdóms Reykjavíkur þar sem Baugi var synjað um áframhaldandi greiðslustöðvun. Jóni þykir örlög Baugs sorgleg, þá sérstaklega í ljósi þess að þeir fóru vel af stað í upphafi að hans mati. 11. mars 2009 13:45 Skiptir engu hver fer með forræði yfir Baugi Skilanefnd Glitnis segir engu máli skipta hvort Baugur sé undir forræði núverandi eigenda eða skiptastjóra fyrir hönd kröfuhafa. Eins og greint var frá á Vísi í morgun halda forráðamenn Baugs því fram að verði ekki fallist á áframhaldandi greiðslustöðvun Baugs muni ríkið tapa sjö milljörðum í formi bréfa í Debenhams verslunarkeðjunni sem eru í vörslu breska bankans HSBC. 11. mars 2009 11:21 Mest lesið Gekk blóðugur í bakarí og sagðist hafa verið skotinn Innlent Sérsveitin bregst við „alvarlegu atviki“ á Kársnesi Innlent „Hamast í því að koma í veg fyrir að Miðflokkurinn komist að“ Innlent Óttast um framtíð dóttur sinnar þegar þau geta ekki lengur hjálpað Innlent Lögregluaðgerð á Laugavegi Innlent Myndskeið: Leiddur út í járnum eftir sérsveitaraðgerð á Kársnesi Innlent „Aulalegasti bófinn í bænum“ Innlent Icelandair aflýsir fimm brottförum í dag Innlent Gleði á flöskuborði endaði með ásökun um nauðgun Innlent Stígur fram sem „alræmdur faðir“ í Vesturbænum Innlent Fleiri fréttir „Svona eldur kviknar ekkert af sjálfu sér“ Kvarta til ESA og Umboðsmanns Alþingis vegna milliverðlagningar útgerðarfyrirtækja Gleði á flöskuborði endaði með ásökun um nauðgun Hafni hundruðum þúsunda fyrir frídaga í fyrsta sinn frá 2014 Níutíu milljóna tjón á nokkrum vikum „Ekki í lífshættu“ Flugáætlun Icelandair hafi fallið á álagsprófi Myndskeið: Leiddur út í járnum eftir sérsveitaraðgerð á Kársnesi Gekk blóðugur í bakarí og sagðist hafa verið skotinn Sérsveitin bregst við „alvarlegu atviki“ á Kársnesi „Hamast í því að koma í veg fyrir að Miðflokkurinn komist að“ „Hvað hafa þau að fela?“ Enn öðru flugi aflýst Lögregluaðgerð á Laugavegi Sprengisandur: Páll stýrir þéttpökkuðum þætti Skjálftahrina úti af Reykjanesi Maðurinn er fundinn „Aulalegasti bófinn í bænum“ Hefja formlegar viðræður og senda væna pillu í leiðinni D og B endurnýja heitin í Fjarðabyggð Tómas tjáir sig um dóminn Á sýklalyfjum í 120 daga: „Þetta er enginn brandari“ Gæti dregið til tíðinda á næstu dögum eða stundum Sérsveitarmenn flugu til Ísafjarðar vegna vopnaðs manns „Einhvers konar toppur á ísjakanum“ Tvö mál ráði úrslitum Icelandair aflýsir fimm brottförum í dag Almennur borgari veitti bílnum eftirför Óttast um framtíð dóttur sinnar þegar þau geta ekki lengur hjálpað Flúðu eftir að hafa ekið á gangandi vegfaranda Sjá meira
Jón Ásgeir: Hefðum betur haldið okkur bara í smásölunni „Mér líður hræðilega eftir þessi tíðindi,“ segir Jón Ásgeir Jóhannesson, aðaleigandi Baugs, um þá staðreynd að beiðni áframhaldandi greiðslustöðvun Baugs Group var hafnað í dag. Tíðindin þýða að Baugur er gjaldþrota og Jón Ásgeir segir að þessi niðurstaða muni kosta hluthafa og kröfuhafa mikið fé. 11. mars 2009 16:27
Baugur vildi bíða betri tíðar Baugur, sem var hafnað um áframhaldandi greiðslustöðvun í hádeginu, skuldar 148 milljarði umfram eignir samkvæmt úrskurði Héraðsdóms Reykjavíkur. Þá segir í dómsorði að þeir hafi viljað áframhaldandi greiðslustöðvun til þess að bíða betri tíðar. Þar kemur einnig fram að ekki hafi verið raunhæfur möguleiki hjá Baugi að koma nýrri skipan á fjármál sín. 11. mars 2009 12:52
Stjórn Baugs óskar eftir gjaldþrotaskiptum Héraðsdómur Reykjavíkur synjaði í dag beiðni Baugs Group um framlengingu greiðslustöðvunar. Í framhaldinu hefur stjórnin félagsins ákveðið að óska eftir því að félagið verði tekið til gjaldþrotaskipta. 11. mars 2009 18:11
Sjö milljarða tjón ef Baugur fer í þrot Nái beiðni skilanefndar Glitnis fram að ganga að greiðslustöðvun Baugs verði ekki framlengd mun það kosta þjóðina sjö milljarða. Stjórn Baugs og skilanefnd Landsbankans hafa að undanförnu unnið að því að tryggja að verðmætin glatist ekki. 11. mars 2009 09:00
Jón Gerald: Dapurleg endalok Baugs „Mín fyrstu viðbrögð eru að það er mjög dapurt að þetta skuli enda svona," segir Jón Gerald Sullenberger athafnamaður, um úrskurð Héraðsdóms Reykjavíkur þar sem Baugi var synjað um áframhaldandi greiðslustöðvun. Jóni þykir örlög Baugs sorgleg, þá sérstaklega í ljósi þess að þeir fóru vel af stað í upphafi að hans mati. 11. mars 2009 13:45
Skiptir engu hver fer með forræði yfir Baugi Skilanefnd Glitnis segir engu máli skipta hvort Baugur sé undir forræði núverandi eigenda eða skiptastjóra fyrir hönd kröfuhafa. Eins og greint var frá á Vísi í morgun halda forráðamenn Baugs því fram að verði ekki fallist á áframhaldandi greiðslustöðvun Baugs muni ríkið tapa sjö milljörðum í formi bréfa í Debenhams verslunarkeðjunni sem eru í vörslu breska bankans HSBC. 11. mars 2009 11:21