Friðrik Þór plataður 25. apríl 2009 07:00
Fyrsta árshátíð Félags íslenskra kvikmyndagerðarmanna var haldin á Hótel Loftleiðum á miðvikudagskvöld. Um 120 mann létu sjá sig og þótti hátíðin vel heppnuð í alla staði. Á árshátíð kvikmyndagerðarmanna voru í fyrsta skipti veitt ný verðlaun, Friðrikinn. Er stefnt að því að verðlaunin verði afhent á hverju ári hér eftir. Meðal þeirra sem fengu verðlaun voru Gagga Jónsdóttir, sem kjörin var vinsælasta stúlkan, og Goði Már Guðbjörnsson aðstoðartökumaður sem verðlaunaður var sem North Face-andlitið. Aðalskemmtiatriðið var þó grín sem Andrea Brabin hjá Eskimo stóð fyrir. Nokkur þekkt andlit úr bransanum voru plötuð í prufur fyrir auglýsingu erlends stórfyrirtækis. Þar voru þau látin fara með línur úr handriti og vonuðust væntanlega eftir því að fá háar fjárhæðir greiddar ef þau fengju hlutverkið. Í raun var þetta allt saman plat og afraksturinn var sýndur á árshátíðinni. Meðal þeirra sem létu gabbast voru leikstjórinn Friðrik Þór Friðriksson, Aron Bergmann, Ómar Jabali og Finnur Jóhannsson. Þótti þetta grín afar vel heppnað. hdm@frettabladid.is Búi, Hreinn Beck og Jónsi voru prúðbúnir. Kjartan, Ingvar og Sigurður skáluðu í fordrykknum. Goði og Hinrik skemmtu sér vel þetta kvöld og hlaut Goði meðal annars Friðrikinn. Bjarni Grímsson og Bergur Hinriksson.
Mest lesið Vaktin: Komast Væb-bræður áfram? Lífið Komast ekki áfram nema þeir séu á skjánum Lífið Formleg spá og ítarleg greining á keppendum kvöldsins Lífið Tom Cruise stökk úr þyrlu með myndavél Íslendinga Bíó og sjónvarp „Mökkurinn var þéttur og við fórum í gegnum hann“ Lífið Egill í SuitUp keypti glæsiíbúð undir fasteignamati Lífið Íslendingarnir gleymdu mikilvægu hráefni á lokadeginum Lífið Þessi lönd komust áfram í úrslit Lífið María Birta og Elli orðin tveggja barna foreldrar Lífið Sögulegt parhús í Hlíðunum Lífið Fleiri fréttir Þessi lönd komust áfram í úrslit „Ég fæ það bara strax og ég set hann inn“ Vaktin: Komast Væb-bræður áfram? Einar og Milla eiga von á dreng Egill í SuitUp keypti glæsiíbúð undir fasteignamati „Ég fæddist fyrir þessa stund“ Sögulegt parhús í Hlíðunum Íslendingarnir gleymdu mikilvægu hráefni á lokadeginum Komast ekki áfram nema þeir séu á skjánum María Birta og Elli orðin tveggja barna foreldrar Innlit í best skipulögðu íbúðina á Selfossi Fögur fljóð og töfrandi stund í Haukadal Formleg spá og ítarleg greining á keppendum kvöldsins „Mökkurinn var þéttur og við fórum í gegnum hann“ Pussy Riot og Páll Óskar troða upp til stuðnings flóttafólki Skrýtið að sjá mannfjöldann syngja með á íslensku Halla á hátíðarsýningu Attenborough Norðurljósin séu svalasta undur veraldar Arnar og Sara gáfu syninum nafn Atriðin sem Ísland vill ekki fá áfram Í kossaflensi á Beyoncé Ísrael sendir kvörtun til EBU Aðal gellur landsins saman í epískri hestaferð Stjörnulífið: Seiðandi ofurskvísur og mæðradagurinn Elskar fallega hælaskó og Prettyboitjokkó Fréttamaður í næstlélegasta flokknum en Væb stórstjörnur Næsta lag fjalli um hið íslenska gufubað „Ég varð stjörf af hræðslu“ Krakkatían: Reikistjörnur, regnbogar og kengúrur „Og ég varð snargeðveikur“ Sjá meira