Með barn á brjósti í kosningaslag 14. mars 2009 08:09 Sigríður Ásthildur Andersen og Áslaug nýfædd dóttir hennar sem kom í heiminn 7. mars síðastliðinn.
Sigríður Ásthildur Andersen, sem sækist eftir einu af fjórum efstu sætunum á lista Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík, eignaðist sitt annað barn fyrir viku og það í miðri kosningabaráttu. Vísir hafði samband við Sigríði til að kanna hvort hún treysti sér í slaginn og hvernig fæðingin gekk. „Ég starfa sem héraðsdómslögmaður og hef gert ráð fyrir því að taka mér leyfi frá lögmennskunni út þetta ár. Það er hins vegar með lögmennskuna eins og örugglega mörg önnur störf að það getur verið erfitt að slíta sig alveg frá verkunum. Það er nú heldur kannski ekki nauðsynlegt þegar um barnsburð er að ræða ef allt hefur gengið vel, - þetta er nú ekki sjúkdómur heldur einn jákvæðasti hluti lífsins," segir Sigríður. „Fæðingin gekk voða vel, þó mun hraðar en ég bjóst við, svona express útgáfa af fæðingu eldri dóttur okkar. Við hjónin eigum eina dóttur fyrir, þriggja og hálfs árs, sem tekur litlu systur sinni afar vel," svarar Sigríður. Ertu með kraftaverkið á brjósti og ertu vel frísk og til í slaginn? „Já, það er allt komið á fulla ferð hér í fjósinu. Það þarf nokkra tækni við þetta." „En það eru nú að rifjast upp fyrir mér gamlir taktar frá því fyrir þremur árum," svarar Sigríður. „Verði ég kjörin á þing geri ég ráð fyrir að stytta þetta orlof eitthvað. Nýtt þing kemur trúlega ekki saman fyrr en í september. Jú, jú, rétt er að gera ráð fyrir einhverju sumarþingi að þessu sinni og ég treysti mér vel til að sitja það. Annars er þingmennskan þannig að hún fer ekki nema að litlu leyti fram á þingfundum." „Við erum svo heppin að eiga ömmur og afa sem hjálpa okkur mikið, sérstaklega með stóru systur. Þau skutla og sækja stundum í leikskólann," segir Sigríður. „Annars hafa fjölskyldur okkar, sem og nánustu vinir, verið afar hjálplegar lika í prófkjörsbaráttunni. Það eru allir venslaðir manni virkjaðir í pólitíska slaginn." „Ætli þetta blessaða fólk sé ekki manna fegnast því að þessum slag er nú að ljúka, - og bíður nú eftir næsa stormi," segir nýbökuð mamman að lokum.
Mest lesið Tekjuhæstu listamennirnir árið 2025 Lífið Sunneva Einars áfram langtekjuhæsti áhrifavaldurinn Lífið Stórglæsilegt Sigvaldahús á sölu Lífið Nicole er fyrir norðan Lífið Sannkallað stjörnubrúðkaup Katrínar Tönju og Brooks Lífið Hemma Gunn-stytta og heitur pottur í 192 milljóna króna raðhúsi Lífið Frank Beard er látinn 77 ára að aldri Lífið Lofar að minnast Panettiere ávallt af virðingu Lífið „Ógleymanlegt söngævintýri“ með Nicole Kidman Lífið „Ég vildi verða þrítug í Pucci“ Lífið Fleiri fréttir Frank Beard er látinn 77 ára að aldri „Ég vildi verða þrítug í Pucci“ Sannkallað stjörnubrúðkaup Katrínar Tönju og Brooks Tekjuhæstu listamennirnir árið 2025 Sunneva Einars áfram langtekjuhæsti áhrifavaldurinn „Ógleymanlegt söngævintýri“ með Nicole Kidman Prjóna á klúbbnum án þess að prjóna yfir sig Hemma Gunn-stytta og heitur pottur í 192 milljóna króna raðhúsi Verjendur Davis segja ekkert að marka skjólstæðing sinn Lofar að minnast Panettiere ávallt af virðingu Stórglæsilegt Sigvaldahús á sölu Leikkonan var úrskurðuð látin á vettvangi Hvað veistu um... frjálsar íþróttir? Galvaskt gelludjamm hjá Guggu og guggunum Nicole er fyrir norðan Egill Heiðar og Kittý selja Garðabæjarslotið Helstu samsæriskenningarnar um Evrópusambandið „Ein miðaldra kona að tala um að hún hefði viljað mæta“ Barnalán hjá Brynju Dan Herra og frú Crivello hamingjusöm hjón Svana á tímamótum og selur slotið Auðunn tilkynnir nýja kærustu Salka Sól tekur við af óléttri Jóhönnu Guðrúnu Stjörnulífið: Stjörnur í snípstuttu Leikkonan Hayden Panettiere er látin Eliza Reid var meðal gesta í brúðkaupinu Þórdís Elva er gengin út Efna til söfnunar í minningu Hennings Dorrit vill biðja eigendurna afsökunar Hunter Schafer alsæl eftir Íslandsför Sjá meira