Fleiri síldartorfur finnast á sundum við Stykkishólm 25. október 2009 11:19
Rannsóknaskipið Dröfn hefur staðfest að miklar síldartorfur eru nú við innanverðan Breiðafjörð á sundunum við Stykkishólm. Tvö síldveiðiskip eru á leið þangað. Menn bíða hins vegar milli vonar og ótta niðurstaðna um hversu alvarleg sýking er í síldinni.Síldveiðiskipin Súlan EA og Börkur NK eru á leið á Breiðafjörð, þar sem Sighvatur Bjarnason VE fann miklar síldartorfur í fyrradag. Þar er fyrir rannsóknaskipið Dröfn. Páll Reynisson, leiðangurstjóri um borð, staðfestir að miklar torfur sjáist allt í kringum Stykkishólm, einkum á Breiðasundi, en einnig inni á Hofsstaðavogi og innan við Kiðey.Ef allt er með felldu virðist því blasa við að síldveiðiflotinn geti á næstu vikum mokað þarna upp milljarðaverðmætum. Menn óttast hinsvegar að síldin kunni enn að vera sýkt, sem gerir hana mun verðminni. Sýni hafa verið tekin úr síldinni til að meta hversu alvarleg sýkingin er og verða þau send til Reykjavíkur í kvöld til rannsókna hjá Hafrannsóknastofnun.Skipverjar á Sighvati köstuðu á síldina í gær við Stykkishólm en rifu nótina, að sögn Jóns Eyfjörðs skipstjóra. Nótin nam við botn og festist, að sögn Jóns, en þarna er mjög grunnt. Kom Sighvatur Bjarnason til Eyja nú fyrir hádegi til að gera við nótina.Síldveiðar eru enn takmarkaðar og aðeins búið að gefa út 15 þúsund tonna rannsóknarkvóta. Síld hefur einnig fundist út af Suðausturlandi og landaði Jóna Eðvalds í gær um 80 tonnum á Hornafirði sem veiddust á Breiðamerkurdýpi.
Mest lesið Sé ekki „stóri maðurinn“ sem lagði á ráðin um „að sjálfsmorða hann“ Innlent Kristrún skýtur fimmtíu milljarðana niður Innlent Hættu við ADHD-greiningu vegna vímuefnaneyslu barnsins Innlent Hækka verð hádegismatar eldri borgara um sjötíu prósent Innlent Áfram Ísland vísar fullyrðingum Kristrúnar á bug Innlent Hafi aldrei farið í Reykholt Innlent Stolinn bíll fannst úti í á Innlent „Dýrslegt“ morð í grænlensku smáþorpi Erlent Færsla vínbúðarinnar „galin“ en skemmdi ekki miðbæinn Innlent Tek mark á því að þetta sé fallegasta hús Íslands Innlent Fleiri fréttir Ráðuneytið segir kostnaðinn átta til þrettán milljarða Andstæðingar segja að Áfram Ísland hafi úr allt að 300 milljónum að spila Hafi ekki hótað með keðjusög og að henda þolanda útbyrðis við Grænlandsstrendur Lag Gunnars og Davíðs hljómar þegar hringt er í borgina Óvissustigi í Öskju aflýst Dómsmálaráðherra valdi Ásgerði í Hæstarétt Grunuðum þjófum vísað úr landi og meinuð endurkoma í 7 ár Áfram Ísland vísar fullyrðingum Kristrúnar á bug Heiðrún Lind á toppnum hjá hagsmunasamtökum Kvikuhlaup frá Svartsengi enn líklegasta sviðsmyndin Tíu af tuttugu efstu embættismönnunum hjá orkufyrirtæki Hafi aldrei farið í Reykholt Kristrún skýtur fimmtíu milljarðana niður Óttast að þeir tekjulægstu dragi úr kaupum á mat Verðhækkanir hjá Reykjavíkurborg og Kristrún á fundaferðalagi Sé ekki „stóri maðurinn“ sem lagði á ráðin um „að sjálfsmorða hann“ Hitnar í kolunum: Já og nei í Pallborði Stolinn bíll fannst úti í á Vilja bæta umferðarflæði með hraðari snjallljósavæðingu Hækka verð hádegismatar eldri borgara um sjötíu prósent Erlendir ríkisborgarar flestir í Mýrdalshrepp og fæstir í Kjósarhrepp Aðalmeðferðin heldur áfram í Reykholtsmálinu Meirihluti telur hitamet og gróðurelda vegna loftslagsbreytinga Bandero dregið úr höfn og flutt til Akraness Hættu við ADHD-greiningu vegna vímuefnaneyslu barnsins Færsla vínbúðarinnar „galin“ en skemmdi ekki miðbæinn Tek mark á því að þetta sé fallegasta hús Íslands Gott að Trump hafi opnað á umræðuna Fólk hélt í sér á meðan sólmyrkvinn gekk yfir Hljóðupptökur, ný vínbúð og færri sturtuðu niður yfir almyrkva Sjá meira