Erlent

Hvetur Írani til að hætta mótmælum vegna kosninganna

Khamenei, æðstiklerkur í Íran, hvetur landa sína til að hætta mótmælum vegna forsetakosninganna í síðustu viku. Haldi mótmæli áfram verði blóðbað vegna þeirra á ábyrgð frambjóðenda sem játi sig enn ekki sigraða.

Æðstiklerkurinn ávarpaði tugi þúsunda Írana í höfuðborginni Teheran í morgun. Þetta var í fyrsta sinn sem þessi æðsti leiðtogi þjóðarinnar kom fram og ávarpaði landa sína eftir að úrslit forsetakosninganna fyrir viku lágu fyrir. Hann bað Írana um að sýna stillingu og sagði að úrslit kosninganna yrðu samkvæmt því sem kæmi upp úr kjörkössunum en ekki byggð á mótmælum á götum úti.

Að hans mati væri útilokað að Mahmoud Ahmadinejad, endurkjörinn Íransforseti, og stuðningsmenn hans hefðu gerst sekir um kosningasvik líkt og Mir Hussein Mousavi, sem varð annar í kosningunum, hefði fullyrt.

Khamenei hvatti Mousavi og aðra frambjóðendur sem hefðu beðið ósigur um að fá stuðningsmenn sína til að hætta mótmælum sem staðið hafa síðan á laugardaginn og verið þau umfangsmestu í Íran frá stofnun klerkaveldisins í byltingunni 1979. Khamenei sagði að ef þeir gerðu það ekki bæru þeir ábyrgð á því blóðbaði sem kynni að verða.

Khamenei sagði að frambjóðendur yrðu að fara með kvartanir sínar fyrir þartilgerð ráð eins og þeir hefðu þegar gert með kærum til byltingarráðsins.

Í ræðu sinni réðst Khamenei harkalega að erlendum ríkjum og fordæmdi afskipti þeirra af kosningunum og úrslitum þeirra. Sér í lagi vék hann máli sínu að Bandaríkjamönnum og sagði að í ljósi aðgerða þeirra í Írak og Afganistan hefðu þeir ekkert erindi í að kenna öðrum þjóðum um mannréttindi. Hann sagði Breta sviksamasta óvin Írans. Áheyrendur óskuðu Bandaríkjamönnum, Ísraelum og Bretum öllu illu og helst dauða.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×