Endurspegla breytingar á VR 26. maí 2009 04:15 Kristinn Örn Jóhannesson
Stjórn VR ákvað í gær að skipta út fulltrúum félagsins í stjórn Lífeyrissjóðs verzlunarmanna. Þar með mun stjórnarformaðurinn, Páll Gunnar Pálsson, fyrrverandi formaður VR, fara úr stjórn lífeyrissjóðsins. „Við viljum endurspegla þær breytingar sem orðið hafa á stjórn VR í kjölfar kosninganna [til stjórnar VR] í stjórn lífeyrissjóðsins,“ segir Kristinn Örn Jóhannesson, formaður VR. Hann segir að ekki megi skilja skipti á stjórnarmönnum sem gagnrýni á störf fráfarandi stjórnarmanna. Inn í stjórnina koma þau Ragnar Önundarson, Stefanía Magnúsdóttir, Ásta Rut Jónasdóttir og Benedikt Vilhjálmsson. Stjórn lífeyrissjóðsins skiptir með sér verkum, en Kristinn segist vonast til þess að sátt verði um að Ragnar verði stjórnarformaður. „Við erum búin að tilnefna nýtt fólk í stjórnina. Í framhaldinu þarf að senda erindi til sjóðsins og Fjármálaeftirlitið þarf að samþykkja breytingarnar,“ segir Kristinn. Fram kom í máli fundarmanna á aðalfundi lífeyrissjóðsins í gærkvöldi að ólöglegt sé að skipta út stjórnarmönnum áður en kjörtímabil þeirra renni út. Kristinn segir að samkvæmt lögfræðiáliti sem unnið hafi verið fyrir VR sé það rangt. Fordæmi séu fyrir breytingum á stjórn á miðju tímabili. Á aðalfundinum í gær kom einnig fram að vegna góðrar stöðu sjóðsins þurfi ekki að skerða greiðslur úr sjóðnum, þrátt fyrir neikvæða afkomu í fyrra. - bj
Mest lesið Stóra aðgerðin valdi titringi á fíkniefnamarkaði Innlent Aðstoðarskólastjóri Stapaskóla biður nærsamfélagið um hjálp Innlent „Ég kann ekki að meta það þegar ég er sökuð um ósannindi eða blekkingar“ Innlent „Áfall fyrir starfsfólk“ Innlent Áslaug Arna boðar endurkomu á Alþingi Innlent „Fokk ðe queers og fullt af atkvæðum?“ Innlent Skólameistari hefur fengið nóg og segir af sér Innlent Hafa fundið nýtt jarðhitasvæði á Hellisheiði Innlent Gripinn í blokk við þvottastúss eftir árásina Innlent Skálmöld stígur ölduna í héraðsdómi Innlent Fleiri fréttir Kennarasambandið mismunaði konu Útlit fyrir að íslensk stjórnvöld brjóti gegn alþjóðasamningum „Fokk ðe queers og fullt af atkvæðum?“ Meitlarnir komust loks í forgang eftir stefnubreytingu Stóra aðgerðin valdi titringi á fíkniefnamarkaði Ekki síður í vandræðum með bóklega kennslu Áhrif smyglmáls og hugsanleg brot stjórnvalda á alþjóðlegum skuldbindingum Flúði heimili sitt eftir að hafa hótað stofnun MMS ekki kunnugt um neinar breytingar á einkunnagjöf Aðstoðarskólastjóri Stapaskóla biður nærsamfélagið um hjálp Félag Ragnars Freys telur uppsögn hans ólögmæta Skálmöld stígur ölduna í héraðsdómi „Áfall fyrir starfsfólk“ Nefndin sammála Ólafi Ragnari um skipun forsetaritara Hækjubræður á þingi Framsókn kynnti tillögu að þjóðarsátt Skólameistari hefur fengið nóg og segir af sér Sprengingin í Fóðurblöndunni enn til rannsóknar hjá lögreglu og Vinnueftirlitinu Bein útsending: Beina sjónum að leit og björgun á norðurslóðum „Ég kann ekki að meta það þegar ég er sökuð um ósannindi eða blekkingar“ Varnarsigur segir formaður bæjarráðs Ísafjarðar Tíu tilvik í fyrra þar sem látnir lágu ófundnir í viku eða lengur 37 prósent landsmanna fylgjandi innheimtu veggjalda Ekkert verður af bankasamruna og Ísafjarðarflugið lifir „Það er ekki hægt að taka jafnaðarmanninn úr mér“ Svavar Sigmundsson er látinn Líkamsárás, húsbrot og eignaspjöll Samið við Icelandair um flug til Ísafjarðar Hafa fundið nýtt jarðhitasvæði á Hellisheiði Fagnar fjölgun skráninga í Þjóðkirkjuna Sjá meira