Frelsi fagnað í einangrun 15. desember 2009 05:15 Ismail Haniyeh Leiðtogi Hamas ætlar ekki að láta sér nægja Gasa. Nordicphotos/AFP
Tugir þúsunda komu saman í Gasaborg í gær til að fagna 22 ára afmæli Hamas-samtakanna og sýna að samtökin njóti enn víðtæks stuðnings á Gasasvæðinu, þrátt fyrir að Ísrael haldi svæðinu í nánast algerri einangrun með viðvarandi fátækt. Samtökin hafa farið með völd á Gasasvæðinu eftir að Palestínustjórn hraktist þaðan í kjölfar blóðugra átaka milli Hamas og Fatah, hinna tveggja helstu hreyfinga Palestínumanna. Gasaborg var fagurlega skreytt í tilefni dagsins með grænum borðum og fánum Hamas-hreyfingarinnar. Nokkrir helstu leiðtogar Hamas fluttu ræður og hljómsveitir komu fram. „Gasa er frjáls, Gasa er staðföst," söng karlakór og Ismail Hanyeh, leiðtogi Hamas, sagði að hreyfingin muni hvorki leggja niður vopn né viðurkenna tilverurétt Ísraelsríkis. „Þessi hreyfing frelsaði Gasasvæðið með hjálp herskárra hópa," sagði hann, og bætti því við að samtökin ætli ekki að láta sér nægja Gasa, heldur horfi til allrar Palestínu. „Frelsun Gasasvæðis er aðeins skref í áttina að frelsun allrar Palestínu." Ísrael lokaði Gasasvæðinu í júní 2006 eftir að herskáir Palestínumenn tengdir samtökunum rændu ísraelska hermanninum Gilad Schalit. Einangrunin var hert ári síðar þegar Hamas hrakti sveitir tengdar Fatah-samtökunum og Palestínustjórn frá svæðinu. Ghazi Hamad, einn af hófsamari leiðtogum samtakanna, segir að þau geti ekki stjórnað svæðinu upp á eigin spýtur til lengdar: „Enginn getur rekið Hamas út af leiksviði stjórnmálanna, en Hamas getur ekki leikið einleik og það getur Fatah ekki heldur." gudsteinn@frettabladid.is
Mest lesið Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Erlent Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Innlent Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Innlent Samtökin séu ekki í baráttu gegn einkabílnum Innlent Rúmlega eitt og hálft ár fyrir ítrekaðan akstur undir áhrifum Innlent Möguleg tengsl við heilabilun Innlent Sjálfstæðisflokkurinn tapar fylgi Innlent „Ég hélt að svefnlyfin væru að hjálpa henni“ Innlent Úrskurðaður í fjögurra vikna gæsluvarðhald Innlent „Ég held ég keyri þetta ekkert aftur í bráð“ Innlent Fleiri fréttir Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Fundu eldsneyti en engin sprengiefni í bílunum Hafa enn ekki ákveðið hvort rétta eigi aftur yfir Clancy Skoða byggingu evrópskrar geimstöðvar Enn lítið um svör í Englandi Fundu lúxusíbúð með golfhermi innan veggja fangelsis Síðustu hermennirnir fara frá Írak, aftur Eistar saka Rússa um fjölþáttaárás Búa í „helvíti á jörðu“ og borða illgresi til að halda lífi „Háfhrifavaldur“ fastur í kóresku síki Kynna fyrsta „núllosunarsvæði“ Danmerkur Norlén tekinn aftur við og boðar formenn á fund Kallaði ráðherra á fund vegna handtöku mannanna við herstöðina Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Sækja fram gegn Rússum í Dónetsk Hryðjuverkamönnunum grunuðu sleppt úr haldi Starship á sporbraut í fyrsta sinn Allir mennirnir breskir ríkisborgarar Spurði Xi hvort hann vildi kaupa bandarísk vopn Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Vilja formlega afsökun frá Selenskí Trump vill fleiri bensínháka á göturnar Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Aðeins samningaviðræður geti leyst deiluna Forseti Serbíu segir af sér í skugga mótmæla Tvö lík fundin eftir að snjóðflóð lenti á búðum Yfirgefa heimili sín og flykkjast í neyðarskýlin Meintu hryðjuverkamennirnir lengi undir eftirliti Sjá meira