Veittu 12.600 milljarða leynilán 25. nóvember 2009 01:00 king og darling Þingmenn hafa krafið Alistair Darling um skýringar á því hvers vegna láninu var haldið leyndu.
Seðlabanki Englands veitti tveimur bönkum 62 milljarða punda leynilegt lán þegar bankakreppan skall á haustið 2008. Þetta kom fram í máli Mervins King seðlabankastjóra sem í gær sat fyrir svörum breskrar þingnefndar. Það voru bankarnir Royal Bank of Scotland og HBOS sem fengu lánin sem samtals námu 12.600 milljörðum íslenskra króna. King sagði að bankinn hefði ákveðið að veita lánin vegna ástandsins sem hafði skapast. Gríðarlegur titringur hefði verið á markaðnum og lánalínur bankanna hefðu lokast í kjölfarið á falli Lehman Brothers-bankans. Til þess að reyna að endurheimta traust almennings á bankakerfinu hefði stjórn bankans samþykkt að fara þessa leið. Ákveðið hefði verið að halda lánveitingunni leyndri þar til jafnvægi kæmist á fjármálastarfsemi á ný. King tók fram að lánin hefðu verið endurgreidd að fullu í janúar. Á fundi þingnefndarinnar kom einnig fram að Alistair Darling fjármálaráðherra hefði samþykkt að skrifa undir lánin og þar með verið tilbúinn að afskrifa upphæðina ef allt hefði farið á versta veg. Þingmenn Frjálslyndra demókrata hafa gagnrýnt lánveitinguna og óskað eftir skýringum frá Darling um það hvers vegna henni var haldið leyndri fyrir þinginu. - th
Mest lesið Evrópuvaktin: Úrslitin ráðast Innlent Bein útsending: Valkyrjurnar halda blaðamannafund Innlent „Skammist sín og bíti aðeins í sápu“ Innlent „Ég sé fram á að senda dúndurteymi, dúndurlandslið út“ Innlent Íslendingar hafna aðildarviðræðum við Evrópusambandið Innlent „Stórkostlegur ósigur“ bæði Samfylkingar og Viðreisnar Innlent Sveitarstjórn krefur símafyrirtækin um skýringar eftir alvarlegt vinnuslys Innlent Nei-hliðin vann á ástríðunni Innlent Lokatölur úr Norðvesturkjördæmi: Nei-ið með 25 prósentustiga forskot Innlent Sprengisandur: Kosningarnar gerðar upp Innlent Fleiri fréttir Bresk kona stungin til bana á lestarstöð í Þýskalandi Haraldur Noregskonungur jarðsunginn 9. september „Framkvæmdastjórnin virðir vilja íslensku þjóðarinnar“ Árásarmaðurinn enn ófundinn Skipulögð leit eftir skotárás á hátíð „Nú er komið að mér“ Ávarpar norsku þjóðina í fyrsta skipti sem konungur Milljónir í sekt fyrir að veðja á ræður forsetans Minnst þrjátíu og sjö látin eftir árás Rússa Erlendir fjölmiðlar fylgjast með: Trump hafi þvingað Íslendinga í kjörklefana Kalla bandaríska sendiherrann á teppið vegna svívirðinga um ráðherra Hver er Hákon VIII Noregskonungur? Sagður hafa logið árum saman um morðið á Tupac Er sagður hafa lagt spilin á borðið varðandi Úkraínu Vaktin: Hákon tekur við af föður sínum Haraldur V Noregskonungur er látinn Breytti heiti Ontaríó-vatns í Ameríku-vatn Óttast fleiri flóð vegna skriða í fjöllunum Ljúka greiningu á viðveru í Evrópu fyrr en til stóð „Slátrarinn í Bosníu“ Ratko Mladic látinn Rísandi stjarna AfD umkringd nýnasistum Staðgöngumóðir eignast „tvíbura“ með sitthvora foreldrana Varaði Rússa við því að ráðast á NATO Heilsu Haraldar hrakar enn Að minnsta kosti 165 eru látnir og yfir 1.500 saknað Rýnt í tollana: Ætla að láta Repúblikana finna til tevatnsins Flugvallarstarfsmenn í Frankfurt látnir eftir að hafa smitast af malaríu Harry og Meghan komin aftur eftir sex ára illdeilur Eiginmaður Mörtu Noregsprinsessu fékk nýtt nýra Erlendir fjölmiðlar beina sjónum að þjóðaratkvæðagreiðslunni Sjá meira