Dóttir Hróa hattar í þýskum banka Óli Tynes skrifar 25. nóvember 2009 10:14 Keira Knightly í hlutverki dóttur Hróa hattar.
Sextíu og tveggja ára gömul þýsk kona hefur verið dæmd fyrir að færa tæplega átta milljónir evra á milli reikninga í bankanum sem hún vann hjá. Það er um einn og hálfur milljarður íslenskra króna. Konan flutti þó ekki peningana yfir á eigin reikning. Hún flutti þá af reikningum auðmanna yfir á reikninga fólks sem átti í fjárhagserfiðleikum. Með því kom hún í veg fyrir að reikningum hinna blönku væri lokað. Þegar svo hagur skjólstæðinganna braggaðist flutti hún peninga af reikningum þeirra og endurgreiddi auðmönnunum. Færslur hennar í þessum tilgangi voru samtals 117 á árunum 2003-2005. Óhjákvæmilega náðu sumir skjólstæðinga konunnar sér ekki aftur á réttan kjöl. Vegna þess tapaðist um ein milljón evra eða um 180 milljónir króna. Sú var staðan þegar upp komst um athæfið. Þessi kvenkyns Hrói Höttur var dæmd í 22 mánaða fangelsi. Þar sem hún viðurkenndi strax sekt sína og tók sér enga peninga sjálf, var dómurinn skilorðsbundinn. Dómarinn sagði að henni hefði verið nægilega refsað með því að missa vinnuna og greiða bankanum bætur. Sky fréttastofan segir að hún lifi nú á agnarlitlum eftirlaunum.
Mest lesið Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Erlent Samtökin séu ekki í baráttu gegn einkabílnum Innlent Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Innlent Rúmlega eitt og hálft ár fyrir ítrekaðan akstur undir áhrifum Innlent Möguleg tengsl við heilabilun Innlent Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Innlent Sjálfstæðisflokkurinn tapar fylgi Innlent Lögmenn fagna niðurstöðu EFTA-dómstólsins Innlent „Ég hélt að svefnlyfin væru að hjálpa henni“ Innlent Úrskurðaður í fjögurra vikna gæsluvarðhald Innlent Fleiri fréttir Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Fundu eldsneyti en engin sprengiefni í bílunum Hafa enn ekki ákveðið hvort rétta eigi aftur yfir Clancy Skoða byggingu evrópskrar geimstöðvar Enn lítið um svör í Englandi Fundu lúxusíbúð með golfhermi innan veggja fangelsis Síðustu hermennirnir fara frá Írak, aftur Eistar saka Rússa um fjölþáttaárás Búa í „helvíti á jörðu“ og borða illgresi til að halda lífi „Háfhrifavaldur“ fastur í kóresku síki Kynna fyrsta „núllosunarsvæði“ Danmerkur Norlén tekinn aftur við og boðar formenn á fund Kallaði ráðherra á fund vegna handtöku mannanna við herstöðina Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Sækja fram gegn Rússum í Dónetsk Hryðjuverkamönnunum grunuðu sleppt úr haldi Starship á sporbraut í fyrsta sinn Allir mennirnir breskir ríkisborgarar Spurði Xi hvort hann vildi kaupa bandarísk vopn Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Vilja formlega afsökun frá Selenskí Trump vill fleiri bensínháka á göturnar Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Aðeins samningaviðræður geti leyst deiluna Forseti Serbíu segir af sér í skugga mótmæla Tvö lík fundin eftir að snjóðflóð lenti á búðum Yfirgefa heimili sín og flykkjast í neyðarskýlin Meintu hryðjuverkamennirnir lengi undir eftirliti Sjá meira