Gagnrýna lögreglu vegna handtöku hústökufólks 21. apríl 2009 11:18 Frá handtöku hústökufólksins við Vatnsstíg á miðvikudaginn í síðustu viku. MYND/Vilhelm
Torfusamtökin gagnrýna vinnulag lögreglunnar við handtöku hústökufólks við Vatnsstíg í síðustu viku. Þau segja að furðu veki að slíkri hörku hafi verið beitt gagnvart aðgerðum hóps sem hafi haft það eitt að markmiði að benda á leiðir til að bæta umhverfi og samfélag í miðbænum. Lögregla braut sér leið inn í hús við Vatnsstíg, þar sem hústökufólk hafði komið sér fyrir, á miðvikudaginn í síðustu viku og rýmdi það. Yfir tuttugu voru handteknir og þar af átján sem voru inni í húsinu. Torfusamtökin segja að hliðstæðri hörku hafi að jafnaði ekki verið beitt gagnvart ógæfumönnum sem í lengri eða skemmri tíma hafi tekið sér bólfestu í auðum húsum, enda þótt bæði nágrönnum og húseignunum sjálfum stafi mun meiri ógn af slíkum gestum. „Frá sjónarhóli meðalhófs og jafnræðis verður lögreglan að huga að því hverra hagsmuna hún er að gæta í tilvikum sem þessum," segir í tilkynningu frá Torfusamtökunum. Skipulagsmál í eldri hverfum eru vandmeðfarin og þar takst á ólíkir hagsmunir, að mati samtakanna. Sjónarmið um varðveislu menningarminja og eflingu jákvæðs mannlífs í miðbænum fari ekki alltaf saman við fjárhagslega hagsmuni þeirra sem eiga auðu húsin. Þeir hafi í mörgum tilvikum ótvíræðan hag af hrörnun þeirra. „Það liggur fyrir að ekki er komin formleg niðurrifsheimild fyrir þetta tiltekna hús við Vatnsstíg, en allar ákvarðanir um breytingar eða niðurrif á húsum sem byggð eru fyrir 1918 falla undir lög um húsafriðun." Torfusamtökin beina þeim tilmælum til lögreglunar að hún gæti að húsum sem hafa minjagildi og standi svo að málum að aðgerðir hennar valdi ekki tjóni á sögulegum minjum.
Mest lesið Eigi ekki að kosta milljónir króna að klæðast landsliðsbúningnum Innlent Fleygt fram af svölum á fyrstu hæð fjölbýlishúss Innlent Drykkurinn komi úr flösku ráðherra Innlent Ferðamaðurinn fundinn heill á húfi á Suðurlandi Innlent Einbreiðar brýr við Berufjörð og Reyðarfjörð líklega næstar Innlent Jákvætt ef stjórnvöld séu loksins farin að horfast í augu við stöðuna Innlent „Það er brjálað að gera með stóru B-i“ Innlent Facebook og tengdir miðlar liggja niðri Innlent Tímafrek verkefni kennara, umferðaröryggi í Hvalfirði og stemningin á Spáni Innlent Breikkun á Kjalarnesi boðin út eftir margra ára seinkun Innlent Fleiri fréttir Eldur í sumarbústað við Suðurlandsveg Þúsund ára gömul mynt fannst í gamalli verbúð Íslendingur í grennd við Madríd og met í sjúkraflugferðum Fleiri en þeir sem tókust á lentu í átökum ungmenna Áttu eitthvað vantalað við manninn sem endaði fram af svölunum Ari úrskurðaður í gæsluvarðhald á Kýpur Fleygt fram af svölum á fyrstu hæð fjölbýlishúss Eigi ekki að kosta milljónir króna að klæðast landsliðsbúningnum Skynet langt undan en íslensk stjórnvöld þurfa að vera undirbúin „Klappað eins og það væri stórstjarna að koma inn“ Óttast að „bottar“ muni ýta undir ágreining í aðdraganda atkvæðagreiðslu Íslensk hjón þurft að flýja undan gróðureldum á Spáni Báti var siglt yfir kajakræðara Kvöldfréttir í heild sinni „Ég hef aldrei lent í öðru eins“ Fimm fluttir til aðhlynningar eftir árekstur Skipverjarnir áttu að fá 2,5 milljónir króna á haus Endurkoma Herjólfs vekur upp ýmsar spurningar Standa með félagsmanni sem var sviptur frelsi Íslendingur á Benidorm stöðvaður eftir tíu daga svikahrinu Halda samráðsfund vegna innbrotahrinu Auka nákvæmni rauntímaupplýsinga Vara við hviðum á landinu suðaustanverðu Sólmyrkvinn ógnar fjarskiptum og Mærudagar ganga í garð Úttekt landlæknis á Hraunbúðum: Fagmenntað starfsfólk langt undir lágmarksviðmiðum „Ef við fáum enga ferðamenn, verðum við að skjóta hundana“ Ekið á dreng á hjóli og aðrir fluttir á slysadeild eftir hjólaslys Á sjúkrahús eftir að hafa flogið af mótorhjólinu Eldur kviknaði á Fiskislóð Reið en þakklát fyrir lífsbjörgina Sjá meira