Eignir bankans rýrna og skuldabyrði eykst 23. júní 2009 05:30 FUndur efnahags- og skattanefndar Helgi Hjörvar, formaður efnahags- og skattanefndar, ræðir uppfært mat á eignum Landsbankans.fréttablaðið/anton
Samkvæmt nýju mati skilanefndar Landsbanka Íslands hf. er gert ráð fyrir því að 83 prósent fáist upp í forgangskröfur miðað við stöðuna 30. apríl síðastliðinn. Matið hefur lækkað úr 89 prósentum í febrúar. Ef matið reynist rétt munu nettóskuldir íslenska ríkisins vegna Icesave-samningsins hækka úr 72 milljörðum í 115 milljarða. Þar að auki munu vaxtagreiðslur af Icesave-samningnum bætast við þessa fjárhæð. Lárus Finnbogason, formaður skilanefndar Landsbankans, segir að sá hluti sem eftir varð í gamla Landsbankanum hafi verið langsamlega verstu lánin í lánasafni bankans. Það skýri að hluta ástæður þess að endurheimtuhlutfall lána íslenska lánasafnsins sé einvörðungu 23 prósent, það langlægsta af þeim lánasöfnum sem bankinn á hlut að. Endurheimtuhlutfall áhættusömustu útlána Landsbankans í London séu 63 prósent og 97 prósent í svokölluðum eignatryggðum flokki. Því eru lán Landsbankans erlendis að skila sér mun betur en útlán hérlendis. Lárus segir að í sumum tilfellum sé einungis verið að fá smáræði upp í milljarðakröfur íslenskra eignarhalds- og fjárfestingarfélaga. Hann segir að þessi félög dragi endurheimtuhlutfallið umtalsvert niður. Hann segir jafnframt að óvissan um eignasafnið sé enn ákaflega mikil og erfitt sé að meta það. Lárus bætir við að birt verði uppfært mat á verðmæti eigna í ágúst. „Ég verð stöðugt áhyggjufyllri yfir því að það eigi að samþykkja þennan Icesave-samning," segir Tryggvi Þór Herbertsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins.Hann segir samninginn ótraustari en hann gerði ráð fyrir og hann vilji sjá ákveðið hámark á þær skuldbindingar sem íslenska ríkið taki á sig. Hann er ekki ánægður með þá óvissu og miklu áhættu sem er viðloðandi samninginn og segir erfitt að skrifa undir við þessar aðstæður. „Ég tel þó að tjónið af völdum Icesave-samninganna verði af þeirri stærðargráðu að það sé viðráðanlegt," segir Helgi Hjörvar alþingismaður, sem jafnframt er formaður efnahags- og skattanefndar. Helgi segist ánægður með að matið frá því í febrúar gangi í aðalatriðum eftir en það sé vissuleg slæmt að eignirnar séu að rýrna. bta@frettabladid.is
Tengdar fréttir Harmar að hafa aukið á hneyksli Kaupsýslumaður sem réði ungar konur til að fara í veislur heima hjá Silvio Berlusconi, forsætisráðherra Ítalíu, hefur beðist afsökunar á því að leggja til efni í nýtt hneykslismál. 25. júní 2009 06:00 Mest lesið „Ég hef aldrei lent í öðru eins“ Innlent Skipverjarnir áttu að fá 2,5 milljónir króna á haus Innlent „Ef við fáum enga ferðamenn, verðum við að skjóta hundana“ Innlent Slasaðist alvarlega við heyskap Innlent Brotist inn í þrjá gáma og dýr verkfæri tekin ófrjálsri hendi Innlent Drykkurinn komi úr flösku ráðherra Innlent Mótorhjól og bíll skullu saman Innlent Ferðamaðurinn fundinn heill á húfi á Suðurlandi Innlent Sjötugur maður tapað hundrað og átta milljónum til fjárkúgara Innlent Stórbruni í Drammen og dularfull staða moskítóflugunnar Innlent Fleiri fréttir Skynet langt undan en íslensk stjórnvöld þurfa að vera undirbúin „Klappað eins og það væri stórstjarna að koma inn“ Óttast að „bottar“ muni ýta undir ágreining í aðdraganda atkvæðagreiðslu Íslensk hjón þurft að flýja undan gróðureldum á Spáni Báti var siglt yfir kajakræðara Kvöldfréttir í heild sinni „Ég hef aldrei lent í öðru eins“ Fimm fluttir til aðhlynningar eftir árekstur Skipverjarnir áttu að fá 2,5 milljónir króna á haus Endurkoma Herjólfs vekur upp ýmsar spurningar Standa með félagsmanni sem var sviptur frelsi Íslendingur á Benidorm stöðvaður eftir tíu daga svikahrinu Halda samráðsfund vegna innbrotahrinu Auka nákvæmni rauntímaupplýsinga Vara við hviðum á landinu suðaustanverðu Sólmyrkvinn ógnar fjarskiptum og Mærudagar ganga í garð Úttekt landlæknis á Hraunbúðum: Fagmenntað starfsfólk langt undir lágmarksviðmiðum „Ef við fáum enga ferðamenn, verðum við að skjóta hundana“ Ekið á dreng á hjóli og aðrir fluttir á slysadeild eftir hjólaslys Á sjúkrahús eftir að hafa flogið af mótorhjólinu Eldur kviknaði á Fiskislóð Reið en þakklát fyrir lífsbjörgina Kominn til Akureyrar eftir alvarlegt slys á skemmtiferðaskipi „Það er verið að dreifa athyglinni, það er verið að auka óvissu“ „Gott og vel við skulum trúa ráðherranum“ Utanríkisráðherra svarar og kona stórslasaðist á hlaupahjóli Ekki um „týndar skýrslur“ að ræða Hart tekist á um ESB Burðardýr Stúarts litla dæmd í sex ára fangelsi Tekinn úr umferð vegna ótrúlegrar brotahrinu Sjá meira
Harmar að hafa aukið á hneyksli Kaupsýslumaður sem réði ungar konur til að fara í veislur heima hjá Silvio Berlusconi, forsætisráðherra Ítalíu, hefur beðist afsökunar á því að leggja til efni í nýtt hneykslismál. 25. júní 2009 06:00