Björgólfur Thor: Hugsar daglega um Icesave klúðrið Hafsteinn Gunnar Hauksson skrifar 23. júní 2009 10:41 Björgólfur Thor Bjórgólfsson
Rithöfundurinn Illugi Jökulsson birtir í dag bréf sem hann segir að sé frá Björgólfi Thor Björgólfssyni á heimasíðu sinni. Upphaf bréfaskriftanna voru þau að Illugi sendi Björgólfi opið bréf þar sem hann spurði hvort Björgólfur hyggðist leitast við að borga þá upphæð sem afgangs verður vegna Icesave skuldarinnar eftir að eignir Landsbankans hafa verið seldar. Björgólfur skrifar hreinskilið bréf til baka frá skrifstofu sinni í Bretlandi. Þar segist hann aldrei hafa setið í bankaráði Landsbankans og hafi líkt og aðrir hluthafar fyrirtækisins treyst stjórnendum þess fyrir starfseminni og hlutafé sínu. Engu að síður líði ekki sá dagur sem hann hugsi ekki um þetta Icesave klúður. „En til að svaraspurningu þinni á þann einfalda hátt sem þú óskar get ég aðeins sagt: Já, ég vil af einlægni gera það sem ég get til þess að Icesave skuldir falli ekki á íslenskan almenning," segir jafnframt í bréfi Björgólfs. Á öðrum stað kemur fram að hann vilji hjálpa Íslandi að rétta úr kútnum fjárhagslega og það besta sem hann hafi upp á að bjóða er möguleikinn á að fá erlenda fjárfesta til að taka þátt í uppbyggingu á íslensku atvinnulífi. Að því vinni hann um þessar mundir. Björgólfur aftekur að hafa farið á eyðslufyllerí erlendis fyrir íslenskt lánsfé eða hagnað af sölu fyrirtækja á Íslandi. Hann segir helstu lánadrottna sína erlenda og nær allan hagnað sinn síðustu árin hafa orðið til við kaup og sölu eigna í útlöndum. Hann lýkur bréfinu á þessum orðum: „Að þessu sögðu vona ég að nú fari menn að einbeita sér að uppbyggingu Íslands með markvissum hætti og vonast ég til að geta lagt hendur á þann plóg með öðrum viljugum sem líkt og ég trúa því að lausnir á vanda Íslendinga í dag felast í verðmætasköpun í framtíð." Bréf Illuga má í heild sinni sjá hér. Svar Björgólfs má í heild sinni sjá hér.
Mest lesið „Ég hef aldrei lent í öðru eins“ Innlent „Ef við fáum enga ferðamenn, verðum við að skjóta hundana“ Innlent Skipverjarnir áttu að fá 2,5 milljónir króna á haus Innlent Slasaðist alvarlega við heyskap Innlent Brotist inn í þrjá gáma og dýr verkfæri tekin ófrjálsri hendi Innlent Drykkurinn komi úr flösku ráðherra Innlent Mótorhjól og bíll skullu saman Innlent Ferðamaðurinn fundinn heill á húfi á Suðurlandi Innlent Sjötugur maður tapað hundrað og átta milljónum til fjárkúgara Innlent Stórbruni í Drammen og dularfull staða moskítóflugunnar Innlent Fleiri fréttir „Klappað eins og það væri stórstjarna að koma inn“ Óttast að „bottar“ muni ýta undir ágreining í aðdraganda atkvæðagreiðslu Íslensk hjón þurft að flýja undan gróðureldum á Spáni Báti var siglt yfir kajakræðara Kvöldfréttir í heild sinni „Ég hef aldrei lent í öðru eins“ Fimm fluttir til aðhlynningar eftir árekstur Skipverjarnir áttu að fá 2,5 milljónir króna á haus Endurkoma Herjólfs vekur upp ýmsar spurningar Standa með félagsmanni sem var sviptur frelsi Íslendingur á Benidorm stöðvaður eftir tíu daga svikahrinu Halda samráðsfund vegna innbrotahrinu Auka nákvæmni rauntímaupplýsinga Vara við hviðum á landinu suðaustanverðu Sólmyrkvinn ógnar fjarskiptum og Mærudagar ganga í garð Úttekt landlæknis á Hraunbúðum: Fagmenntað starfsfólk langt undir lágmarksviðmiðum „Ef við fáum enga ferðamenn, verðum við að skjóta hundana“ Ekið á dreng á hjóli og aðrir fluttir á slysadeild eftir hjólaslys Á sjúkrahús eftir að hafa flogið af mótorhjólinu Eldur kviknaði á Fiskislóð Reið en þakklát fyrir lífsbjörgina Kominn til Akureyrar eftir alvarlegt slys á skemmtiferðaskipi „Það er verið að dreifa athyglinni, það er verið að auka óvissu“ „Gott og vel við skulum trúa ráðherranum“ Utanríkisráðherra svarar og kona stórslasaðist á hlaupahjóli Ekki um „týndar skýrslur“ að ræða Hart tekist á um ESB Burðardýr Stúarts litla dæmd í sex ára fangelsi Tekinn úr umferð vegna ótrúlegrar brotahrinu Góðu fréttirnar þær að innlend verðbólga sé á undanhaldi Sjá meira