Innlent

Nokkur fíkniefnamál um helgina

Nokkur fíkniefnamál komu upp um helgina hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu.
Nokkur fíkniefnamál komu upp um helgina hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu.

Nokkur fíkniefnamál komu til kasta lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu um helgina. Kannabisefni fundust við húsleit á heimili fimmtugs karls í austurborginni. Marijúana fannst í húsi í miðborginni og var maður um fertugt yfirheyrður í þágu rannsóknar málsins.

Piltur um tvítugt var handtekinn í Mosfellsbæ en hann var með fíkniefni í fórum sínum. Þá var karl á fertugsaldri handtekinn í Breiðholti en viðkomandi er grunaður um fíkniefnamisferli. Sá var á stolnum bíl en í honum fundust ýmsir munir sem grunur leikur á að séu þýfi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×