Öryggismálin á einn stað 23. júní 2009 06:00 Forstjórinn og ráðherrann Varnarmálastofnun var sett á laggirnar í núverandi mynd í utanríkisráðherratíð Ingibjargar Sólrúnar Gíslasdóttur, sem hér tekur í hönd Ellisifjar Tinnu Víðisdóttur, forstjóra stofnunarinnar. Mynd/Víkurfréttir „
Ráðuneytið óskar eftir samvinnu um málið við okkur og hana veitum við glöð,“ segir Ellisif Tinna Víðisdóttir, forstjóri Varnarmálastofnunar, um þá ákvörðun utanríkisráðuneytisins að leggja stofnunina af í núverandi mynd. Utanríkisráðuneytið segir að skera eigi niður af 1.200 milljóna króna árlegum útgjöldum til Varnarmálastofnunar án þess að það bitni á varnar- og öryggisskuldbindingum þjóðarinnar. Ekki fengust svör frá ráðuneytinu í gær um það hver áhrif breytinganna kynnu að verða. „Í mínum huga er bara tvennt sem kemur til greina. Það er að hámarka faglega getu og lágmarka kostnað,“ segir Ellisif Tinna. „Ef það að leggja stofnunina niður í núverandi mynd getur á einhvern hátt lækkað kostnað um leið og við getum staðið vörð um faglega getu og varnarskuldbindingar þá er það bara af hinu góða.“ Rætt hefur verið um að sameina Varnarmálastofnun öðrum stofnunum eða búta hana niður. Forstjórinn bendir á að enn liggi ekkert fyrir um hver útkoman verði. Fyrsti fundur verði í dag um málið með fulltrúum utanríkis-ráðuneytisins. „Ég sem forstjóri stofnunarinnar legg áherslu á að fagmennirnir fái að taka þátt í þessari vinnu. Ég veit að utanríkisráðherrann er að leggja sig fram um að gera þetta vel og faglega og við styðjum hann að sjálfsögðu í því,“ segir Ellisif Tinna. Að sögn forstjórans þarf að svara því hvort ætlunin sé að vera í Nató eða ekki. „Ef svarið pólitískt er það að við ætlum að vera í Nató þá fylgja því ákveðnar leikreglur að vera í þeim klúbbi. Menn geta ekki verið í klúbbi ef þeir fylgja ekki leikreglunum. Það eru engin sérkjör fyrir Ísland. Menn verða líka að spyrja sig: Vilja menn setja saman innri og ytri öryggismál og færa allt það vald á eina hendi?“ segir hún. Þá bendir Ellisif Tinna á að Íslendingar eigi ekki sjálfir ratsjárkerfið sem Varnarmálastofnun rekur heldur sé kerfið fjármagnað af mannvirkjasjóði Nató sem lagt hafi fimmtíu til sextíu milljarða króna í kerfið. „Ef við ætlum ekki að nota ratsjárstöðvarnar í varnartilgangi þá gætu þær einfaldlega verið teknar og settar upp annars staðar því það er eftirspurn eftir þeim hjá Nató. Til dæmis er Albanía, sem er nýgengin í bandalagið, að bíða eftir svona ratsjám,“ segir hún. Ellisif Tinna kveðst telja að ef Varnarmálastofnun sameinist annarri stofnun eigi forstjórar beggja stofnana að víkja. Þeir geti svo sótt um nýja starfið ef þeir vilji. „Þetta snýst ekki um stólinn minn eða mína persónu eða hagsmuni einhvers annars forstjóra eða einhvers ráðuneytis. Þetta snýst um faglega hagsmuni og þetta snýst um hagsmuni Íslands. Í mínum huga er allt annað úti.“ gar@frettabladid.is
Mest lesið Sex handteknir og um verulegt magn sterkra efna að ræða Innlent „Ég reikna sterklega með því að karma banki upp á hjá þeim“ Innlent Hafi selt alls konar fíkniefni í gegnum „Kannabis Inc“ Innlent Góðkunningjar lögreglu grunaðir í stóru dópmáli Innlent Tveir handteknu starfsmenn Eimskipa Innlent Segist ekki munu biðja páfa afsökunar Erlent Áfrýja ekki dómi vegna dauða dóttur þeirra Innlent Hyggst banna mánaðarlega hækkun leigu Innlent Unnar kjötvörur af matseðli í skólum: „Stranglega bannað að hafa pylsupartý“ Innlent Vilja verða áheyrnarfulltrúar og hækka laun sín gríðarlega Innlent Fleiri fréttir „Það gerist ekkert ef ljósin eru slökkt“ Ný atvinnustefna vanmeti stærstu tæknibreytingu samtímans Eftirför lögreglu endaði á Sorpu Tveir handteknu starfsmenn Eimskipa Skorað á Guðmund að snúa aftur heim Slagsmál, falsað ökuskírteini og ölvunarakstur Keyrðu utan í bílinn í eftirförinni Endurskoða gjaldsvæði borgarinnar Verulegt magn fíkniefna og hönnunarbolli í vorgjöf Flogið til Vestmannaeyja til mánaðamóta „Þyngra fyrir fæti að fá vinnu“ Hælisleitendamálin settu þrýsting á Reykjanesbæ Vilja verða áheyrnarfulltrúar og hækka laun sín gríðarlega Unnar kjötvörur af matseðli í skólum: „Stranglega bannað að hafa pylsupartý“ Sex handteknir og um verulegt magn sterkra efna að ræða Ekki hægt að taka framboð gilt þó flokkur misskilji reglur Góðkunninginn í vikulangt gæsluvarðhald vegna smygls Kvikuhlaup enn líklegasta sviðsmyndin Áfrýja ekki dómi vegna dauða dóttur þeirra Slökkti í málskotsbeiðni Matvís vegna Flame Sundlaugar opnar lengur um helgar í sumar Hyggst banna mánaðarlega hækkun leigu Ari hlær að gagnrýni á myndbandið Kosningapallborð fréttastofu: Baráttan um Reykjanesbæ Fimm hundruð bleikjur sluppu úr landeldisstöð „Ég reikna sterklega með því að karma banki upp á hjá þeim“ Betur fór en á horfðist við Mývatn: Lenti á þvervegi og tókst á loft Ekkert að frétta af rannsókn þjófnaðarins í Freysnesi Góðkunningjar lögreglu grunaðir í stóru dópmáli Byrja ekki að sekta á morgun Sjá meira