Innlent

Kræklingarækt verði græn stóriðja

Kristján Már Unnarsson skrifar

Kræklingarækt á eftir að verða græn stóriðja við Ísland og gæti skapað mörghundruð störf. Þetta staðhæfir einn þeirra sem eru byrjaðir og segir aðstæður hérlendis afar góðar.

 

Fyrirtækið Norðurskel í Hrísey er komið lengst í að þróa kræklingaræktina hérlendis, þar byrjuðu menn fyrir nærri áratug. Bóndinn á Gróustöðum við Gilsfjörð er meðal þeirra sem farnir eru af stað en hann stundar ræktina í Króksfirði utan við Króksfjarðarnes.

 

Hann segir tíu aðra byrjaða og enn aðrir tíu séu að hugsa sér til hreyfings.

 

Lykilinn segir hann góð skilyrði við Ísland og betri en víðast hvar annarsstaðar.

Hann nefnir sem dæmi að á Prins Edward eyju stundi milli fimmhundruð og þúsund manns kræklingarækt við erfiðari skilyrði og á margfalt minna svæði en hér býðst við Ísland, nánast allt í kringum landið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×