Smygluðu kókaínvökva frá Hondúras 27. mars 2009 14:12 Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi tvo menn fyrir að smygla kókaínvökva til landsins.
Tveir menn voru dæmdir í annarsvegar átján mánaða fangelsi og svo tólf mánaða fangelsi fyrir að hafa smyglað fljótandi kókaíni til landsins frá Hondúras í Suður-Ameríku. Fíkniefnalögreglan fékk fyrst pata af smyglinu þegar bandaríska fíkniefnalögreglan, DEA, hafði samband við fíkniefnalögregluna hér á landi síðasta haust. Þeim var kunngjört að rommflaska full af kókaínvökva væri á leið til Íslands með póstþjónustunni FedEx. Þegar flaskan kom til landsins kannaði fíkniefnalögreglan innihald hennar. Í ljós kom að í flöskunni voru rúm átján hundruð grömm af kókaínvökva. Hægt var að drýgja efnið upp í rúmt hálft kíló af kókaíndufti. Lögreglan skipti efninu út fyrir annan vökva, síðan fór lögreglumaður í dulagervi sendils til viðtakanda flöskunnar sem veitti henni viðtöku. Í kjölfarið var hann handtekinn ásamt öðrum manni. Við yfirheyrslur kom í ljós að mennirnir höfðu ekki fengið sambærilegar sendingar áður. Í dómsorði segir að hægt sé að koma efninu í neytanlegt form með því að láta vatnið og áfengið gufa upp úr því og sía það síðan í gegnum kaffipoka með aseton. Heildarverðmæti efnisins var á bilinu 6 til 7 milljónir króna. Báðir mennirnir sættu gæsluvarðhaldi vegna málsins og dregst það frá dómi þeirra. Við húsleit fann lögreglan 11 grömm af kókaíni, rúm 4 grömm af maríjúana, MDMA og 150 millilítra af hassolíu. Öll efnin voru gerð upptæk.
Mest lesið Fólk búi í hesthúsunum: „Þarna kom að því sem við höfum varað við í mörg ár“ Innlent Kristinn Örn lést eftir hitaslag á Spáni Innlent Segir leigubílstjórastéttina hafa verið „eyðilagða“ Innlent Veita útlendingum greiðari aðgang að heilbrigðiskerfinu en er skylt Innlent Hátt í þrjú hundruð mótmæla útlendingastefnu stjórnvalda Innlent Hitamet aldarinnar slegið Veður Talsverðar skemmdir eftir mikinn eld í Hafnarfirði Innlent Íslendingur lést vegna hitaslags Innlent „Það hefði auðvitað verið betra“ Innlent Vatn flæddi upp úr klósettum og niðurföllum Innlent Fleiri fréttir Furðuísar hjá Kjörís og 70 ára afmæli Heilsustofnunar Hlaupa sex maraþon á jafnmörgum dögum í jakkafötum Eldur á svölum reyndist vera íbúi að grilla Rýnt í fund Trump og Pútíns og jakkafataklæddir raðmaraþonhlauparar „Það hefði auðvitað verið betra“ Kristinn Örn lést eftir hitaslag á Spáni Grunaðir um hópárás með kylfu Funda með foreldrum barna á Múlaborg á morgun Vilja stórefla samgöngur á Vesturlandi Sóttu mann sem féll niður bratta Hátt í þrjú hundruð mótmæla útlendingastefnu stjórnvalda Fólk búi í hesthúsunum: „Þarna kom að því sem við höfum varað við í mörg ár“ Íslendingur lést vegna hitaslags Ókeypis veðmálasíður „ekki eins og áfengislaus bjór“ „Staðan er alvarleg en við vitum ekki hversu alvarleg hún er“ Vatn flæddi upp úr klósettum og niðurföllum Stuð og stemning á fjölskyldudögum í Vogum Fagna sekt vegna veðmálaauglýsinga og tjón eftir vatnsveður Segir leigubílstjórastéttina hafa verið „eyðilagða“ Talsverðar skemmdir eftir mikinn eld í Hafnarfirði Veita útlendingum greiðari aðgang að heilbrigðiskerfinu en er skylt Þrjú hjólhýsi „splundruðust“ á Holtavörðuheiðinni Sekta Símann fyrir að auglýsa erlenda veðmálasíðu „Sprengingarnar eru að skemma húsin okkar“ Sveitastjórn Rangárþings ytra gefur út framkvæmdaleyfi fyrir Hvammsvirkjun Foreldrar verði að halda ró sinni þegar kynferðisbrot eru rædd við börn Vatnstjón á Kjarvalsstöðum og sautján öðrum stöðum Kynferðisbrot á leikskóla og tímamótafundur forseta Líkamsárás á borði lögreglu Hjólhýsi hafa „sprungið“ á Holtavörðuheiðinni Sjá meira