Hafa upprætt 5.000 kannabisplöntur í ár 30. mars 2009 05:00 Kannabishús í Úlfarsárdal Gríðarlega öflugar plöntur voru í þessu parhúsi í Grafarvogi sem útbúið var sem kannabisverksmiðja.Fréttablaðið/Stefán
Frá því um áramót hefur lögreglan lagt hald á um fimm þúsund kannabisplöntur víða um höfuðborgarsvæðið. Flett var ofan af nýjustu kannabisverksmiðjunni í langri röð slíkra á laugardagskvöld. Var þar um að ræða framleiðslu í kjallara fokhelds parhúss í Grafarvogi. Brotinn hafði verið veggur á milli íbúðanna tveggja og kjallararnir sameinaðir í stórfelldri kannabisræktun þar sem um 200 stórar plöntur voru í miklum blóma. Þrír menn sem færðir voru til yfirheyrslu munu tengjast annarri kannabisverksmiðju sem uppgötvaðist í Hafnarfirði fyrir nokkrum dögum. Einn eigenda parhússins, 29 ára karlmaður, hefur meðal annars unnið við garðyrkju. Karl Steinar Valsson, yfirmaður fíkniefnadeildar lögreglunnar, segir að á þessu stigi sé erfitt að meta hversu mikið af tilbúinni söluvöru hefði verið mögulegt að framleiða úr þessum mikla fjölda plantna sem upprættar hafa verið á árinu. „Það eina sem hægt er að segja er að úr þessu væri hægt að vinna magn sem hleypur á hundruðum kílóa,“ segir Karl Steinar. Á vef SÁÁ er reglulega birt yfirlit yfir götuverð á algengum tegundum fíkniefna. Verðskráin er byggð á upplýsingum frá sjúklingum sem sækja sér meðferð á Vogi. Samkvæmt henni er eitt gramm af maríjúana sem framleitt er úr kannabisplöntunum nú selt á um 3.400 krónur. Sem dæmi má nefna að hafi verið unnt að framleiða 300 kíló af maríjúana úr plöntunum fimm þúsund yrði markaðsvirði þess efnis um einn milljarður króna. gar@frettabladid.is
Mest lesið Evrópuvaktin: Úrslitin ráðast Innlent „Ég sé fram á að senda dúndurteymi, dúndurlandslið út“ Innlent „Skammist sín og bíti aðeins í sápu“ Innlent Íslendingar hafna aðildarviðræðum við Evrópusambandið Innlent Lokatölur úr Norðvesturkjördæmi: Nei-ið með 25 prósentustiga forskot Innlent Bein útsending: Kosningavaka Sýnar Innlent Ætla að opnan nýjan unglingaskóla í Ármúla Innlent Lítil breyting í lokatölum Reykjavíkurkjördæmis suður Innlent Sprengisandur: Kosningarnar gerðar upp Innlent Lokatölur í Norðausturkjördæmi: Nei jók forskotið undir lokin Innlent Fleiri fréttir Sprengisandur: Kosningarnar gerðar upp Lokatölur úr Suðvesturkjördæmi: Fullvissuðu þjóðina um að svarið væri nei Íslendingar hafna aðildarviðræðum við Evrópusambandið Ofurölva ungmenni hlupu öll á brott nema eitt Ætla að opnan nýjan unglingaskóla í Ármúla Lokatölur í Norðausturkjördæmi: Nei jók forskotið undir lokin Lokatölur úr Norðvesturkjördæmi: Nei-ið með 25 prósentustiga forskot Lokatölur úr Suðurkjördæmi: Sextíu prósent sögðu nei Lítil breyting í lokatölum Reykjavíkurkjördæmis suður Dró saman á milli fylkinga í lokatölum Reykjavíkur norður Margra ára vegferð í vændum sigri já-ið „Ég sé fram á að senda dúndurteymi, dúndurlandslið út“ „Skammist sín og bíti aðeins í sápu“ „Alveg skýrt að unga fólkið segir nei“ „Hefði viljað meira afgerandi stuðning við Nei-ið í fyrstu tölum“ Allt hnífjafnt í Kraganum samkvæmt fyrstu tölum Sextíu prósent segja já í Reykjavík norður 56 prósent segja nei í Norðausturkjördæmi Meirihluti segir já í Reykjavík suður „Ég er mjög kátur“ Nei-liðar umtalsvert fleiri samkvæmt fyrstu tölum í Norðvesturkjördæmi Sextíu prósent segja nei samkvæmt fyrstu tölum í Suðurkjördæmi Hvenær birtast tölurnar í kvöld og nótt? Bjargað úr sjálfheldu í Reynisfjöru Bein útsending: Kosningavaka Sýnar Evrópuvaktin: Úrslitin ráðast Hvað segja veðbankarnir? Valkyrjurnar halda blaðamannafund Tíu dósir ratað í ruslafötuna en rest á jörðina Geri lítið úr fyrirmyndarstarfi Sjá meira