Indverjar skutu eldflaug í tilraunaskyni Atli Steinn Guðmundsson skrifar 24. nóvember 2009 07:14 Þessi eldflaug er af gerðinni Agni-III.
Indverjar hafa skotið á loft meðaldrægri kjarnorkueldflaug í tilraunaskyni en flaugin getur borið kjarnavopn. Eldflaugin Agni-II, en agni þýðir eldur á hindí og sanskrít, hóf sig til flugs í gærkvöldi að indverskum tíma frá eyju við austurströnd Indlands. Um var að ræða tilraunaskot en Agni-II hefur rúmlega 2.000 kílómetra flugþol og getur borið kjarnaodd sem vegur allt að eitt tonn. Agni-eldflaugarnar eru þær fullkomnustu sem Indverjar luma á í vopnabúri sínu en ekki er lengra síðan í fyrra að flaggskipið Agni-III var prufukeyrt en það er langdræg flaug sem hæft getur skotmörk í yfir 3.000 kílómetra fjarlægð sem táknar að borgir á borð við Peking og Shanghai í Kína eru innan færis hennar. Skotið í gær markar þau tímamót að það er fyrsta tilraunaeldflaugaskot indverska hersins sem fram fer að kvöldlagi. Eftir þessa tilraun á herinn að vera fær um að skjóta á loft eldflaug án aðstoðar vísindamanna en það þykir töluvert skref í varnarmálum landsins. Flaugin er 20 metrar að lengd en þó þannig úr garði gerð að auðvelt er að flytja hana á hreyfanlegum skotpalli og skjóta henni á loft með litlum fyrirvara.
Mest lesið Icelandair hættir rekstri stærstu flugvéla sinna Innlent Handtekinn fyrir að vara við gyðingahatri á samfélagsmiðlum Erlent Íslenskur morðingi í Bandaríkjunum: „Gerðu það pabbi, ekki gleyma mér“ Innlent „Vandræðalegt“ að stjórnin hafi ekki mannað eigin þingfund Innlent Nýtt íslenskt hundaleikfang slær í gegn Innlent Skammvinnu vopnahléi virðist lokið Erlent Veittu eftirför í Árbæ Innlent Pirraður yfir því hvað friður er langt utan seilingar Erlent „Hreint og tært málþóf í sinni skýrustu mynd“ Innlent Fundu, lögðu hald á og drápu snáka Innlent Fleiri fréttir Handtekinn fyrir að vara við gyðingahatri á samfélagsmiðlum Skammvinnu vopnahléi virðist lokið Pirraður yfir því hvað friður er langt utan seilingar Sovéskt geimfar hrapaði til jarðar eftir misheppnað ferðalag til Venus Fundu mögulega eitt af 67 fórnarlömbum hálfri öld síðar Kínverskir verktakar fá ekki að bora skipagöng í Noregi Vopnahlé í höfn milli Indlands og Pakistans Kim lofar hermenn sína sem börðust í Kúrsk sem hetjur Átökin ná nýjum hæðum Borgarstjóri í Bandaríkjunum handtekinn vegna mótmæla Yfirvöld Mexíkó kæra Google Gamlar nektarmyndir felldu glænýjan þjóðaröryggisráðgjafa Svíþjóðar Gerir Pirro að ríkissaksóknara í DC Bein útsending: Fyrsta messa nýs páfa Býst við að bróðir sinn Leó feti í fótspor Frans Stigmögnunin heldur áfram Hvað vitum við um Leó páfa? Norðmenn undirbúi sig undir möguleg stríðsátök „Þvílík spenna og þvílíkur heiður fyrir landið okkar“ Bíða með að stimpla AfD sem öfgasamtök Margrét Þórhildur lögð inn á sjúkrahús Samþykktu Trump-samninginn einróma Takmörkuð eftirspurn eftir ríkisstjórn með flokki Farage Gera enn árásir með drónum og eldflaugum Reyndi til hins síðasta að koma skikki á fjármál Vatíkansins Einhliða vopnahlé Rússa hafið Vesturlönd þurfa að borga milljarðatjón af árás Rússa á Tsjernobyl Heimila hernum að hefna fyrir árásirnar í gær Vaktin: Robert Francis Prevost er nýr páfi Herþota hrapaði til jarðar í Finnlandi Sjá meira