Þórir framleiðir mynd um Charles Bronson 26. janúar 2009 04:00 Eins og sjá má lagði leikarinn Tom Hardy töluvert á sig til að ná líkamsburðum og geðveikisglampa Charles Bronson.
Kvikmyndin Bronson í leikstjórn hins danska Nicholas Winding Refn hefur vakið mikla athygli á Sundance-kvikmyndahátíðinni sem nú er haldin í Utah-ríki í Bandaríkjunum. Þórir Snær Sigurjónsson hjá kvikmyndafyrirtækinu ZikZak, er einn framleiðanda myndarinnar en gagnrýnendur hafa hrósað henni hástert og kvikmyndarýnir karlablaðsins FHM telur hana vera Clockwork Orange 21. aldarinnar. „Jú, hún hefur verið að fá prýðilega dóma," segir Þórir hógvær í samtali við Fréttablaðið en hann var staddur á Sundance til að fylgja eftir sýningum á stuttmynd Rúnars Rúnarssonar, 2Birds sem aldrei þessu vant fór heim verðlaunalaus. Bronsonmyndin er hins vegar lauslega byggð á ævi einhvers þekktasta fanga Bretlands, Michaels Gordons Peterson. Hann breytti síðar nafni sínu í Charles Bronson. Michael þessi er sagður vera hættulegasti fangi Bretlands og þrátt fyrir að hafa „aðeins" framið þrjú afbrot þá hefur honum tekist að halda sér á bak við lás og slá í 34 ár fyrir uppátæki sín innan fangelsismúranna. Þar af er þrjátíu ár í einangrun. Aðalleikari myndarinnar, Tom Hardy, hefur fengið frábæra dóma fyrir frammistöðu sína. Þórir upplýsir að Hardy þessi hafi lagt mikið á sig og hann hafi átt mörg samtöl við umræddan Bronson. „Hann var dæmdur fyrir smáafbrot á sínum tíma og ákvað upp frá því að verða frægasti fangi Bretlandi. Honum tókst það," segir Þórir. Kvikmyndabiblían Varitey gaf kvikmyndinni prýðilega dóma á vefsíðu sinni og vefsíðan Indiwire, sem er ein virtasta sjálfstæða kvikmyndasíða í heimi, hrósar henni í hástert.- fgg
Mest lesið Eins og að vera með kláða sem hverfur aldrei Lífið „Þú ert greinilega manneskja sem hefur strögglað mikið andlega“ Lífið „Erum enn að ná utan um allt sem gerðist“ Lífið Taylor Swift og Travis Kelce eru gift Lífið Allir og amma þeirra á Ítalíu Lífið „Þegar þið eignist ykkar fyrsta barn, má ég þá fá það?“ Lífið Fréttatía vikunnar: EBU, aftaka og Love Island Lífið „Það er gaman að gera erfiða hluti“ Lífið Kyssti ekki Maguire heldur tottaði rafrettu Lífið Melabúðin fagnar sjötíu árum Lífið Fleiri fréttir Melabúðin fagnar sjötíu árum „Þú ert greinilega manneskja sem hefur strögglað mikið andlega“ „Það er gaman að gera erfiða hluti“ Taylor Swift og Travis Kelce eru gift Eins og að vera með kláða sem hverfur aldrei „Erum enn að ná utan um allt sem gerðist“ Fréttatía vikunnar: EBU, aftaka og Love Island „Klukkan er fimm einhvers staðar“ „Þegar þið eignist ykkar fyrsta barn, má ég þá fá það?“ Snæddi með furstanum af Mónakó Kyssti ekki Maguire heldur tottaði rafrettu Allir og amma þeirra á Ítalíu Brúðkaupshátíð Taylor Swift og Travis Kelce hafin Bubbi, Herra og þeir allra rauðhærðustu á Írskum dögum Helga Þóra og Óli Sig ástfangin á Grikklandi Muniz skilinn Tveggja ára dóttir Nöru Smith með krabbamein Hvað veistu um… götur í Reykjavík sem byrja á S? „Mér var sagt að segja ekki eitt fokking orð“ Weinstein á spítala eftir hjartabilun Segir Depp hafa sturlast úr afbrýðissemi Kanada tekur þátt í Eurovision Erna Mist og Þorleifur Örn eignuðust son Leikarapar selur í 101 Grætti nánast alla í athöfninni „Fór fram úr mínum ýktustu björtustu vonum“ Logi fór á skeljarnar við Como-vatn Endaði einn í Færeyjum í sögulegri steggjun Mormónastjarna kemur út úr skápnum Fann ástina og tók sénsinn í New York Sjá meira