Lífið

Landslið tengt hommamynd

Þeir Logi Geirsson og Ásgeir Örn fagna innilega sigri íslenska landsliðsins. Þeir hafa þó vafalítið ekki búist við því að myndin yrði bendluð við hommakvikmynd.
Þeir Logi Geirsson og Ásgeir Örn fagna innilega sigri íslenska landsliðsins. Þeir hafa þó vafalítið ekki búist við því að myndin yrði bendluð við hommakvikmynd.
Ísland er stundum ekki alveg jafn stórt og íbúar þess vilja láta. Það sannast kannski best í spænsku myndbandablaði.

Starfsmenn þess hlupu aðeins á sig fyrir skömmu. Íslenska kvikmyndin Strákarnir okkar kom út á spænskar myndbandaleigur fyrir skömmu. Myndin, sem er í leikstjórn Júlíusar Kemp, fjallar um knattspyrnukappann Óttar Þór sem leikur með meistaraliði KR. Hann kemur út úr skápnum í blaðaviðtali og í kjölfarið hefst kolsvört kómedía, Óttar byrjar að spila með hommaliði og myndin fjallar um ástalíf þessarar fyrrum hetju Vestubæjarstórveldisins.

Spænska myndbandablaðið tæpir aðeins á söguþræði myndarinnar og birtir opinbert veggspjald hennar. Og þetta væri eflaust ekki í frásögur færandi ef ekki væri fyrir litla mynd sem skotið er með í umfjöllun blaðsins.

Þar gefur nefnilega hvorki að líta Björn Hlyn Haraldsson né aðra leikendur myndarinnar heldur þá Loga Geirsson og Ásgeir Örn Hallgrímsson, silfurdrengi íslenska landsliðsins í handbolta. Vissulega eru leikmennirnir í innilegum faðmlögum eftir einhvern frækinn sigur landsliðsins en þeir Logi og Ásgeir koma hvergi fyrir í myndinni. Svo vitað sé. Sé orðinu „Strákarnir okkar“ slegið inn á myndaleit google-leitarvélarinnar skýrist málið hins vegar því myndin af silfurdrengjunum er ein af þeim fyrstu sem koma upp þegar niðurstöðurnar birtast. Svo er náttúrulega spurning hvort um sé að ræða gáskafullan hrekk spænskra blaðamanna sem máttu horfa upp á „strákana okkar“ rúlla spænska liðinu upp í undanúrslitaleik Ólympíuleikanna síðasta sumar. - fgg





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.