Lífið

Heitustu böndin 2009

ingo og veðurguðirnir
ingo og veðurguðirnir
Nýtt ár er gengið í garð. Þótt það sé kreppa og harmakvein á mörgum vígstöðvum má fastlega búast við áframhaldandi góðæri í íslenska poppinu og rokkinu. Dr. Gunni rýndi í kristalskúluna og reyndi að sjá fram í tímann.

Ingó og Veðurguðirnir
Dynamo fog
Að öðrum ólöstuðum var Ingó og Veðurguðirnir spúttnikksveit ársins 2008 í poppinu. „Bahama" varð svokallaður rosasumarsmellur og næsta lag „Drífa" gerði það einnig gott. Þótt bandið sé af ættkvísl íslenskra „sveitaballa"-banda á það líka rætur í pönkinu því stór hluti þess var einu sinni í Haltri hóru. Fyrsta platan hlýtur að vera á teikniborðinu en á meðan aðdáendurnir bíða geta þeir huggað sig við að Ingó syngur annað lag Hallgríms Óskarssonar í Eurovision-forkeppninni.

Dynamo Fog
sudden weather change
Hljómsveitin Dynamo Fog hefur vakið lukku með laginu „Rock n roll", sem er nógu einfalt og grípandi til að smellpassa í handboltaauglýsingu. Hljómsveitin vakti athygli á síðustu Airwaves-hátíð og má fastlega búast við frekari afrekum hjá henni á þessu ári, plötu til dæmis. Bandið er tríó, skipað vönum mönnum. Axel Árnason fyrsti trommari Naglbíta, þenur nú bassann og syngur, Jóndóri Ólafssyni, áður í Lada Sport, syngur og spilar á bassa, og Arnar Ingi Viðarsson, sem hefur trommað með Retron og Ísidór, situr við settið.

Sudden Weather Change
nögl
Listaháskólabandið Sudden Weather Change hefur verið að geta sér gott orð í indie-senunni frá því 6-laga heimabrennd plata kom út árið 2006. Nú er von á fyrsta albúminu í mars/apríl og miðað við lögin sem liggja með sveitinni á Netinu er von á feitum jaðarpakka.

Nögl
for a minor reflection
Gruggið lifir á Grundarfirði þaðan sem þessir þéttu náungar koma. „My world" hefur hljómað ítrekað á Xinu og Nögl er langt komin með sína fyrstu plötu sem kemur út með hækkandi sól. Nú er að sjá hvort gruggið eigi inni fyrir kom­bakki.

For a minor reflection
eberg
Þessir ungu póst-rokkarar eru á góðri siglingu eftir Sigur Rósar upphitunartúra og jákvæðar umsagnir í erlendum tónlistarblöðum. Þeir ætla sér eflaust stórt hlutverk og ný plata hlýtur að vera útslitaatriði. Fyrsta platan kom út 2007 þegar bandið var nýbyrjað svo næsta plata er orðin löngu tímabær.

Eberg
Árstíðir
Einar Tönsberg, öðru nafni Eberg, sannaði sig eftirminnilega á annarri plötunni sinni, Voff Voff, sem kom út árið 2006. Hann hefur að undanförnu unnið að þriðju sólóplötunni sinni, Antidote, og mun bera hana á borð á árinu. Einar syngur nú á íslensku í fyrsta skipti og gæti það fært honum meiri og verðskuldaðri útbreiðslu en áður. Lagið „Niðurlönd" hefur þegar gert það gott.

Árstíðir
Ólöf Arnalds
Þetta fjögurra manna band hefur verið að vekja athygli og mun eflaust halda því áfram í ár. Tónlistin er ljúf og minnir bæði á gamla meistara eins og Simon & Garfunkel og yngra efni eins og Turin Breaks og Damien Rice. Hún er knúin áfram af tveimur kassa­gíturum, baritón-gítar, sellói og angurværum samsöng.

Hvað annað?
Mugison
Árið 2008 var fínt í íslenskri tónlist og þetta ár verður eflaust jafn gott ef ekki betra. Í kreppu blómstrar menningin og allt það. Ýmsir kunningjar músikáhugamanna eru í startholunum með nýjar plötur. Mugison verður með nýja plötu og hún verður „óhefðbundin". Ný plata frá Ensími verður líklega að staðreynd og líka ný plata frá Leaves. Gus Gus eru nærri því tilbúnir með nýja plötu og eðalrokkararnir í Kimono hugsa sér alvarlega til hreyfings. Agent Fresco kýlir líklega á plötu í fullri lengd og Morðingjarnir hnoða í eina feita. Langt er síðan FM Belfast tóku upp plötuna sína How to Make Friends og því má fastlega búast við nýrri frá þeim. Einnig er næsta víst að Múm, Ólöf Arnalds og Hjaltalín komi með nýjar plötur og að Slow Blow verði með tvær, nýja hljóðversplötu og plötu með lögum úr kvikmyndinni The Good Heart. Og þetta er auðvitað bara toppurinn á ísjakanum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.