Bjórkippuveðmál í uppnámi 5. janúar 2009 08:00 Kom fyrstur INN sem Ceres 4 Gói telur sig eiga inni bjórkippu.
Félagarnir Jói og Gói léku báðir í fyrsta Áramótaskaupinu sínu á dögunum. Þeir veðjuðu um hvor myndi birtast fyrstur. Erfiðlega gengur að útkljá veðmálið. „Ég er ekki búinn að fá kippuna, nei, Jói er með eitthvað vesen,“ segir Guðjón Davíð Karlsson, Gói, en eins og kom fram í Fréttablaðinu í síðustu viku veðjuðu hann og Jóhannes Haukur Jóhannesson, Jói, um það hvor myndi birtist fyrst í Skaupinu. Báðir voru að leika í sínu fyrsta Skaupi og bjórkippa var lögð undir. „Þetta var reyndar bara spurning um nokkrar sekúndur, en samt,“ heldur Gói áfram, þungur á brún. „Hann kom fast á hæla mér en það sáu allir að ég birtist fyrstur. Mér finnst skrýtið að hann geti ekki staðið við veðmálið, þetta var jú hans hugmynd. En hann áttar sig eflaust á endanum, enda heiðarlegur inn við beinið.“ Gói var í hlutverki Ceres 4 úr Merzedes Club í upphafsatriðinu og Jói lék Gazman. „Ég krafðist þess að horfa á Skaupið einn heima með konu og syni,“ segir Gói. „Fannst kjánalegt að vera við hliðina á einhverju fólki sem væri að hlæja bara af því að ég væri við hliðina á því. Svo vildi ég geta hlaupið beint upp í rúm til að gráta ef þetta væri eitthvað ömurlegt. Þess gerðist náttúrulega ekki þörf.“ Þeir Jói og Gói hafa fylgst að lengi í leiklistinni og leika nú báðir í Fló á skinni og Fólkinu í blokkinu hjá Borgarleikhúsinu. „Svo verðum við báðir í Sound of Music sem á að frumsýna í maí. Æfingar hefjast í febrúar. Ég leik nasistastrák og fæ að syngja eitt lag, en Jói leikur sjálfan Van Trapp. Hann þarf alltaf að vera aðal.“ Og Gói telur að kippan komi seint eða aldrei. „Það var búið að vera draumur í þrjú ár að fá að komast í Skaupið en nú er eiginlega kominn stærri draumur, sem er sá að vera boðið aftur. Svo ég á ekkert endilega von á að fá þessa kippu. Ég held að næsta veðmál okkar Jóa verði um það hvorum verði boðið fyrr að leika aftur í Skaupinu. Double or nothing." drgunni@frettabladid.is
Mest lesið Ætla valdasjúkir tækifærissinnar að steypa okkur í glötun? Lífið Hvað veistu um... flugvelli? Lífið Vignir Vatnar opnar sig um sjálfsvígshugsanir Lífið Rick og Morty á stóra skjáinn Bíó og sjónvarp Svona færðu pallinn í toppstand fyrir sumarið Lífið samstarf Tónlistariðnaðurinn mikið til „klám og rúnk“ Menning Fyrrverandi þingmaður selur í Laugardalnum Lífið Nítján ára þegar Óskarsverðlaunahafi sýndi henni punginn Bíó og sjónvarp Ari Edwald og Ingibjörg keyptu súkkulaðihöllina Lífið Þurfti hjálp við að anda og lítið var um svör Lífið Fleiri fréttir Ætla valdasjúkir tækifærissinnar að steypa okkur í glötun? Hvað veistu um... flugvelli? Vignir Vatnar opnar sig um sjálfsvígshugsanir Lygilega erfið þrautabraut Nemendur í Seljaskóla graffa 56 metra listaverk við skólann Fyrrverandi þingmaður selur í Laugardalnum Eyþór og Ástríður eignuðust lítinn Arnalds Þurfti hjálp við að anda og lítið var um svör Kvikmyndagerðarmenn framtíðarinnar í fíling Frumsamin kórverk í heimabruggi bílskúrsbands Ari Edwald og Ingibjörg keyptu súkkulaðihöllina Naglbíts-barn á leiðinni Sólveig Anna og Marta María léku á als oddi og Óli tottaði vindil Ívar Halldórs var týndi sonur Jóhanns G. Jóhannssonar Flúði land vegna fátæktar og atvinnuleysis Aron Can og Erna keyptu „óvart“ hús Stjörnufans í matarboði Loga Pedro Ormstunga og Óresteia með flestar tilnefningar Stuð í kosningavökum flokkanna „Já, þau eru alvöru“ „Ætlið þið í pottinn?“ Valgerður og Kjartan Vald eiga von á barni Stjörnulífið: „Ég elska sjálfan mig“ Krakkatía vikunnar: Bragðlaukar, kosningar og gulrófur Setur ávallt á sig varalit á kjördag en verður ekki með hann í kvöld Alma himinlifandi með soninn sem lofar 45 prósenta fylgi næst Sigurræða Ásdísar: Ætlaði allt að koll um keyra þegar Ásdís mætti Búlgaría fór fram úr Ísrael á síðustu stundu og sigraði Eurovision Stjörnuleikarar sendu yfirlýstum aðdáanda kveðju Ljóðelskir frambjóðendur sýna hvað í þeim býr Sjá meira