Hún var 5 daga gömul og mjólkin nýkomin þannig að ég passaði mig 5. janúar 2009 13:04 Hefna Hallgrímsdóttir og Linda Ásgeirsdóttir. MYNDIR/Fréttablaðið.
Hrefna Hallgrímsdóttir leikkona sem fer með hlutverk Skrítlu eignaðist sitt þriðja barn, heilbrigða dóttur, aðeins fimm dögum fyrir frumsýningu kvikmyndarinnar Skoppa og Srítla í bíó. Vísir hafði samband við Hrefnu og spurði hvernig hún fór að því að mæta á frumsýningu myndarinnar nánast nýbúin að fæða dótturina. „Hún var 5 daga gömul og mjólkin nýkomin þannig að ég passaði mig á að verða ekki kalt," segir Hrefna. „Þetta var ekki alveg planið. Maður reynir nú að plana eitthvað svona en það var allt í góðu. Ég tók þetta á einhverri innri íhugun. Ég reyndi að gera þetta eins auðvelt og hægt var. Mætti til dæmis hálftíma áður en frumsýningin hófs. Svo hljóp ég út í bíl til að gefa henni svo að þetta fór allt vel," segir Hrefna. „Hún átti að vera komin en fæðist síðan daginn sem myndin var tilbúin. Það var ekki annað hægt en að vera viðstödd frumsýninguna. Það hefði verið skrýtið ef Skrítlu hefði vantað á svæðið. Ekki síst fyrir mig sjálfa ef ég hefði ekki komist því það var ótrúlega gaman." „Þetta starf er svo nærandi fyrir sálina. Börnin eru svo yndisleg í alla staði. Þau knúsa mann og kyssa og gera það af fullum hug og maður getur ekki annað en verið snortinn af því og dottið inn í þetta með þeim," segir Hrefna þegar talið berst að ungu áhorfendunum. „Myndin gengur út á það sem við vildum þegar við fórum af stað. Okkur fannst vanta kærleik og mannvirðingu og eitthvað einlægt fyrir börnin." Eruð þið búin að skíra stelpuna? „Hún er óskírð en einhverra hluta vegna finnst öllum hún eiga að heita Sól. Við erum svo sérstök hjónin því við héldum nöfnum drengjanna leyndum þangað til þeir voru skírðir. Hún verður skírð 18. Janúar, þá getum við hætt að kallla hana snúllu," segir Hrefna sem er í fæðingarorlofi. Skoppa og Skrítla í bíó.
Mest lesið Stórslasaðist átján ára eftir ölvaðan ökumann: „Braut öll bein á vinstri hliðinni minni“ Lífið Stærstu rauðu flöggin á stefnumótaforritum Lífið Myndaveisla: Veðrið leikur við íbúa höfuðborgarsvæðisins Lífið Ósk um öfgafulla ást og bæling í bakherbergjunum Gagnrýni David Hockney er látinn Menning Backstreet Boys frumsýna lag nýrrar Hvolpasveitarmyndar Lífið Fann ástina í örmum snyrtifræðings frá Staffordshire Bíó og sjónvarp Gestir geti fengið innsýn í skapandi samfélag Hafnar.hauss Lífið Glansandi hár er nýi lúxusinn – af hverju eru allir að tala um „Gloss Hair“? Lífið samstarf Mig langaði til að öskra: „Ég skal segja allt af létta!“ Gagnrýni Fleiri fréttir Stórslasaðist átján ára eftir ölvaðan ökumann: „Braut öll bein á vinstri hliðinni minni“ Myndaveisla: Veðrið leikur við íbúa höfuðborgarsvæðisins Stærstu rauðu flöggin á stefnumótaforritum Gestir geti fengið innsýn í skapandi samfélag Hafnar.hauss Backstreet Boys frumsýna lag nýrrar Hvolpasveitarmyndar Allt að 200 ára veggjakrot fannst við framkvæmdir Marteinn Helgi Sigurðsson er látinn Hefur þegar fengið starfstilboð Hvað veistu um… árið 2010? Lífseigustu mýturnar um offitu: „Það er ekki sjúkdómur að fitna“ Sjö heitustu brúðkaupstrendin í sumar „Ég var löngu tilbúin að giftast honum“ Rassaumhirða karla í sókn Leggja áherslu á liti, gleði og glimmer Segir Weinstein hafa bannað sér að vera lesbía Hætt saman en ennþá vinir Varð ástfanginn á sama tíma og móðir hans kvaddi Lára Clausen lýsir eftir stolnum Mustang Blendnar tilfinningar að fara á vinnumarkað á ný Lofuðu svörtu fólki lækningu en blekktu það til dauða „Ég passaði mig sérstaklega á því að tala ekki um Evrópusambandið“ Vigdís Häsler og Sveinn Andri gengu í hnapphelduna Huggulegustu hommar landsins „loksins“ giftir Adam Páls fann ástina í örmum Moniku Stjörnulífið: Rapparar ástfangnir upp fyrir haus Myndaveisla: Líf og fjör úti á Granda Hringdi strax í pabba og sagði honum frá Bond-leiknum Krakkatía vikunnar: Jónas, þjóðardýr og einmanalegt áhugamál Verður yngsta skvettan í þingflokki Sjálfstæðismanna Vesturbæingar kvöddu sögufræga bensínstöð Sjá meira