Tólf ára skopmyndateiknari 5. janúar 2009 06:00 Björn Heimir Önundarson gerir upp árið í sinni nýjustu teikningu sem tók aðeins einn og hálfan dag í vinnslu.
Björn Heimir Önundarson er 12 ára skopmyndateiknari frá Hvolsvelli. Í sinni nýjustu teikningu gerir hann upp árið 2008 þar sem íslenskir stjórnmálamenn, útrásarvíkingar og íþróttamenn eru í aðalhlutverki. Í teikningunni koma einnig við sögu þeir Barack Obama og Gordon „Crazy“ Brown eins og Ólafur kallar hann. Hefur hann greinilega litlar mætur á forsætisráðherranum vegna Icesave-málsins. Davíð Oddsson seðlabankastjóri fær líka sitt pláss, sem og jarðskjálftinn skæði á Suðurlandi. Björn Heimir heillaðist fyrst af skopmyndum hjá Sigmund sem starfaði hjá Morgunblaðinu um árabil. „Síðan þegar ég byrjaði að pæla í litunum meira byrjaði ég að skoða hjá Halldóri,“ segir Björn og á þar við Halldór Baldursson sem starfaði hjá 24 Stundum áður en hann fór yfir á Moggann. Björn er tiltölulega nýbyrjaður að gera skopmyndir og finnst það mjög gaman. Eins og gefur að skilja þarf hann að fylgjast náið með þjóðfélagsumræðunni til að hafa puttann á púlsinum og er hann því duglegur við að lesa blöðin og horfa á fréttirnar í sjónvarpinu. Hann segir að atburðir undanfarinna mánuða hafi veitt honum mikinn innblástur við ársuppgjörið, sem tók aðeins einn og hálfan dag í vinnslu. „Það er mjög mikið að teikna um í kreppunni,“ segir Björn, sem fannst þó árangur handboltalandsliðsins á Ólympíuleikunum standa upp úr á árinu. Enda fá þeir Ólafur Stefánsson og markvörðurinn Björgvin Páll Gústafsson báðir veglegan sess í teikningunni. „Það er ekki erfitt að teikna Óla en það er erfiðara að teikna Björgvin. Hann er ekki með jafnsterkan svip og Ólafur,“ segir hinn ungi og efnilegi teiknari sem á greinilega framtíðina fyrir sér.
Mest lesið Óboðni sturtugesturinn sextán sentímetra kónguló Lífið Stórslasaðist átján ára eftir ölvaðan ökumann: „Braut öll bein á vinstri hliðinni minni“ Lífið Ekkert líf að verða hrædd á hverju vori Lífið Fréttatía vikunnar: NASA, Messi og Mette-Marit Lífið Stærstu rauðu flöggin á stefnumótaforritum Lífið Ósk um öfgafulla ást og bæling í bakherbergjunum Gagnrýni Backstreet Boys frumsýna lag nýrrar Hvolpasveitarmyndar Lífið David Hockney er látinn Menning Myndaveisla: Veðrið leikur við íbúa höfuðborgarsvæðisins Lífið Brennivín hlaut gullverðlaun Matur Fleiri fréttir Óboðni sturtugesturinn sextán sentímetra kónguló Ekkert líf að verða hrædd á hverju vori Fréttatía vikunnar: NASA, Messi og Mette-Marit Stórslasaðist átján ára eftir ölvaðan ökumann: „Braut öll bein á vinstri hliðinni minni“ Myndaveisla: Veðrið leikur við íbúa höfuðborgarsvæðisins Stærstu rauðu flöggin á stefnumótaforritum Gestir geti fengið innsýn í skapandi samfélag Hafnar.hauss Backstreet Boys frumsýna lag nýrrar Hvolpasveitarmyndar Allt að 200 ára veggjakrot fannst við framkvæmdir Marteinn Helgi Sigurðsson er látinn Hefur þegar fengið starfstilboð Hvað veistu um… árið 2010? Lífseigustu mýturnar um offitu: „Það er ekki sjúkdómur að fitna“ Sjö heitustu brúðkaupstrendin í sumar „Ég var löngu tilbúin að giftast honum“ Rassaumhirða karla í sókn Leggja áherslu á liti, gleði og glimmer Segir Weinstein hafa bannað sér að vera lesbía Hætt saman en ennþá vinir Varð ástfanginn á sama tíma og móðir hans kvaddi Lára Clausen lýsir eftir stolnum Mustang Blendnar tilfinningar að fara á vinnumarkað á ný Lofuðu svörtu fólki lækningu en blekktu það til dauða „Ég passaði mig sérstaklega á því að tala ekki um Evrópusambandið“ Vigdís Häsler og Sveinn Andri gengu í hnapphelduna Huggulegustu hommar landsins „loksins“ giftir Adam Páls fann ástina í örmum Moniku Stjörnulífið: Rapparar ástfangnir upp fyrir haus Myndaveisla: Líf og fjör úti á Granda Hringdi strax í pabba og sagði honum frá Bond-leiknum Sjá meira