Sendiherraskipti Kínverja - tímasetning er tilviljun 3. júní 2009 19:25 Dalai Lama skekur Kína sem og fréttastofu RÚV.
Sendiherraskipti voru í undirbúningi samkvæmt Steingrími J. Sigfússyni, fjármálaráðherra, sem lét kanna málið varðandi sendiherra Kína í dag. Hann telur að hugsanlega sé um tilviljun að ræða sem ekki tengist diplómatískum viðbrögðum vegna heimsóknar Dalai Lama. Fréttastofa RÚV greindi frá því í gær að kalla ætti Zhang Keyuan, sendiherra Kína á Íslandi, heim. Í viðtali við Fréttastofu Vísis og Stöðvar 2 í gær sagði sendiherrann sjálfur það fráleitt. Það var svo í dag sem mbl.is náði sambandi við aðstoðarmann sendiherrans en hann sagði í viðtali að það væri ekki búið að kalla sendiherrann heim, hvorki vegna heimsóknar Dalai Lama, né af nokkrum öðrum ástæðum. Steingrímur sagði í Kastljósi að hann hefði kannað málið og þá komið í ljós að sendiherrann væri á leiðinni heim, aftur á móti yrði annar skipaður í hans stað. Tímasetningin sé því tilviljun. Dalai Lama var áður í heimsókn hjá Danmörku en þá hittu bæði utanríkisráðherra og forsætisráðherra Danmerkur andlega leiðtogann. Sendiherra Dana í Kína var kallaður á fund utanríkisráðherra í Kína í kjölfarið og honum tjáð ónánægja með málið. Eins v ar gert með þann íslenska. Engu að síður hefur engin krafa verið uppi um að kalla sendiherra Kína frá Danmörku. Hvorki utanríkisráðherra né forsætisráðherra Íslands hittu Dalai Lama. Aftur á móti hitti Katrín Júlíusdóttir, iðnaðarráðherra og Ögmundur Jónasson, heilbrigðisráðherra, andlega leiðtogann. Þau gerðu það sem óbreyttir borgarar að sögn Steingríms J. Sigfússonar, fjármálaráðherra. Því er þess enn beðið eftir staðfestingu á því að sendiherrann hafi í raun verið kallaður heim. Þess má geta að RÚV hefur ekki náð tali af sendiherranum sjálfum.
Tengdar fréttir Vísar á kínversk stjórnvöld „Þetta er mál Kínverja og við vitum ekkert meira um það og staðfestum ekkert til eða frá," segir Kristján Guy Burgess, aðstoðarmaður Össurar Skarphéðinssonar, aðspurður hvort að utanríkisráðuneytinu eða utanríkisráðherra hafi borist tilkynning um að Kínverjar hafi eða ætli að kalla sendiherra sinn hér á landi heim. 3. júní 2009 11:31 Formleg tilkynning hefur ekki borist frá Kínverjum Utanríkisráðuneytinu hefur ekki borist tilkynning frá kínverska sendiráðinu um að Kínverjar hafi eða ætli að kalla sendiherra sinn hér á landi heim. Þetta segir Urður Gunnarsdóttir, upplýsingafulltrúi ráðuneytisins. 3. júní 2009 09:56 Sendiherra Kína ekki á förum Sendiherra Kína, Zhang Keyuan, segir að það sé algerlega fráleitt að hann hafi verið kallaður heim til Kína vegna heimsóknar Dalai Lama til Íslands. 2. júní 2009 18:26 Harkaleg viðbrögð Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra segir enn óljóst hvað felst í því að Kínverjar hafi ákveðið að kalla sendiherra sinn heim frá Íslandi vegna komu Dalai Lama, trúarleiðtoga Tíbeta. Hann segist lítið hafa frétt af málinu þótt hann hafi heyrt það í gærkvöldi að sendiherrann hafi sjálfur upplýst að hann væri á heimleið. Sendiherrann neitaði því í samtali við fréttastofu í gærkvöldi í framhaldi af því að Ríkisútvarpið greindi frá því að hann væri á heimleið. 3. júní 2009 08:24 Helstu ráðamenn fjarri Dalai Lama Sendiherra Kína á Íslandi lýsti í gær óánægju ríkisstjórnar sinnar með fundi íslenskra ráðamanna með Dalai Lama, leiðtoga Tíbeta. Fjórir ráðherrar og rúmlega tíu alþingismenn hittu Dalai Lama í gær og fyrradag. 3. júní 2009 04:15 Ráðamenn hissa kalli Kínverjar sendiherrann heim „Ég er hissa á því ef Kínverjar slíti eða dragi úr stjórnmálaasmskiptum vegna heimsóknar Dalai Lama," segir Steingrímur J. Sigfússon í viðtali við RÚV vegna fréttar Ríkisútvarpsins af því að Kínverjar hafi kallað kínverska sendiherrann heim vegna málsins. 2. júní 2009 22:09 Sendiherra Íslands í Kína tekinn á teppið Sendiherra Íslendinga í Kína var kallaður á fund í kínverska utanríkisráðuneytinu gær vegna heimsóknar Dalai Lama hingað til lands. 3. júní 2009 12:00 Sendiherrann kallaður heim Sendiherra Kína á Íslandi, Zhang Keyuan, hefur verið kallaður heim. Ekki fengust skýringar á því athæfi kínverskra stjórnvalda í gærkvöldi en sendiherrann hefur starfað hér í tæp tvö ár. 3. júní 2009 05:45 Kínversk stjórnvöld óánægð með fundi Dalai Lama Sendiherra Kína gekk á fund ráðuneytisstjóra utanríkisráðuneytisins í morgun og kom á framfæri óánægju kínverskra stjórnvalda og sendiráðsins vegna þeirra funda sem Dalai Lama hefur átt eða kann að eiga með íslenskum ráðamönnum. 2. júní 2009 15:52 Fordæmir ríkisstjórnina fyrir að hitta ekki Dalai Lama Birgitta Jónsdóttir þingmaður Borgarahreyfingarinnar fordæmir ríkisstjórnina fyrir að hitta ekki Dalai Lama trúarleiðtoga Tíbeta sem kom til landsins í gærkvöldi. Hún gagnrýnir einnig forgangsröðun forseta Íslands, sem hafi boðið Mörthu Stewart um landið en sé ekki viðstaddur þegar trúarleiðtogi útlægrar þjóðar Tíbeta heimsækir Ísland. 1. júní 2009 12:17 Mest lesið Opnar sig um gróf ummæli um hjónabandið Innlent Þjónusta þjarka og falskra aðganga gengur kaupum og sölu Innlent Ari þiggur stöðu stjórnarformanns Innlent Eiginmaðurinn fékk krabbameinið sem hún hræddist mest Innlent Sakar ráðherra um alræðistilburði í nafni mannréttinda Innlent Uggur í ferðaþjónustu fyrir vestan: „Sjö afbókanir í nótt, fjórar á morgun“ Innlent Barn réðst með belti á önnur börn Innlent NASA mun fylgjast með íslenska himinhvolfinu Innlent Marius sleppur ekki eftir allt saman Erlent Fær nýjar kröfur fimmtán mánuðum eftir andlát eiginkonunnar Innlent Fleiri fréttir Þjónusta þjarka og falskra aðganga gengur kaupum og sölu Opnar sig um gróf ummæli um hjónabandið Ari þiggur stöðu stjórnarformanns „Staðreynd að matarkarfan mun lækka í verði“ NASA mun fylgjast með íslenska himinhvolfinu Sakar ráðherra um alræðistilburði í nafni mannréttinda „Ríkisstjórnin getur ekki flúið eigin vandræði inn í Evrópusambandið“ Í beinni: Eldhúsdagsumræður á Alþingi Sturlaugur nýr bæjarstjóri Akranessbæjar Evrópumet í verðhækkunum og vígbúnaðarkapphlaup Mál Steinu fer fyrir Hæstarétt Sofandi á akbraut Heitavatnslaust í miðborg í kvöld Enn bólar ekkert á fleiri ákærum vegna netverslunar Framkvæmdir við Hvammsvirkjun í vari út árið Almenningur ekki talinn eiga rétt á upplýsingum um ETS-sérlausn Barn réðst með belti á önnur börn Hæstiréttur hafnar beiðni Elju um að taka fyrir meiðyrðamál Virkjunarleyfi vegna Hvammsvirkjunar fær grænt ljós Tóku ákvörðun um að skrá fólk úr flokknum Eiginmaðurinn fékk krabbameinið sem hún hræddist mest Ferðum Íslendinga til útlanda fækkar Hvetur almenning til að vera á varðbergi Náttúruminjasafn og Náttúrufræðistofnun renna saman Uggur í ferðaþjónustu fyrir vestan: „Sjö afbókanir í nótt, fjórar á morgun“ Ríkisstjórnin beri ábyrgð á hindrunum Þórkötlu Óviðunandi að ákveðnir hópar barna búi enn við svo mikið úrræðaleysi Nýttu takmarkanir á sjúkraflugi til að þrýsta á borgina Ósáttir Grindvíkingar og undirbúningur fyrir þjóðaratkvæði að komast á fullt Fleiri andvígir inngöngu í ESB Sjá meira
Vísar á kínversk stjórnvöld „Þetta er mál Kínverja og við vitum ekkert meira um það og staðfestum ekkert til eða frá," segir Kristján Guy Burgess, aðstoðarmaður Össurar Skarphéðinssonar, aðspurður hvort að utanríkisráðuneytinu eða utanríkisráðherra hafi borist tilkynning um að Kínverjar hafi eða ætli að kalla sendiherra sinn hér á landi heim. 3. júní 2009 11:31
Formleg tilkynning hefur ekki borist frá Kínverjum Utanríkisráðuneytinu hefur ekki borist tilkynning frá kínverska sendiráðinu um að Kínverjar hafi eða ætli að kalla sendiherra sinn hér á landi heim. Þetta segir Urður Gunnarsdóttir, upplýsingafulltrúi ráðuneytisins. 3. júní 2009 09:56
Sendiherra Kína ekki á förum Sendiherra Kína, Zhang Keyuan, segir að það sé algerlega fráleitt að hann hafi verið kallaður heim til Kína vegna heimsóknar Dalai Lama til Íslands. 2. júní 2009 18:26
Harkaleg viðbrögð Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra segir enn óljóst hvað felst í því að Kínverjar hafi ákveðið að kalla sendiherra sinn heim frá Íslandi vegna komu Dalai Lama, trúarleiðtoga Tíbeta. Hann segist lítið hafa frétt af málinu þótt hann hafi heyrt það í gærkvöldi að sendiherrann hafi sjálfur upplýst að hann væri á heimleið. Sendiherrann neitaði því í samtali við fréttastofu í gærkvöldi í framhaldi af því að Ríkisútvarpið greindi frá því að hann væri á heimleið. 3. júní 2009 08:24
Helstu ráðamenn fjarri Dalai Lama Sendiherra Kína á Íslandi lýsti í gær óánægju ríkisstjórnar sinnar með fundi íslenskra ráðamanna með Dalai Lama, leiðtoga Tíbeta. Fjórir ráðherrar og rúmlega tíu alþingismenn hittu Dalai Lama í gær og fyrradag. 3. júní 2009 04:15
Ráðamenn hissa kalli Kínverjar sendiherrann heim „Ég er hissa á því ef Kínverjar slíti eða dragi úr stjórnmálaasmskiptum vegna heimsóknar Dalai Lama," segir Steingrímur J. Sigfússon í viðtali við RÚV vegna fréttar Ríkisútvarpsins af því að Kínverjar hafi kallað kínverska sendiherrann heim vegna málsins. 2. júní 2009 22:09
Sendiherra Íslands í Kína tekinn á teppið Sendiherra Íslendinga í Kína var kallaður á fund í kínverska utanríkisráðuneytinu gær vegna heimsóknar Dalai Lama hingað til lands. 3. júní 2009 12:00
Sendiherrann kallaður heim Sendiherra Kína á Íslandi, Zhang Keyuan, hefur verið kallaður heim. Ekki fengust skýringar á því athæfi kínverskra stjórnvalda í gærkvöldi en sendiherrann hefur starfað hér í tæp tvö ár. 3. júní 2009 05:45
Kínversk stjórnvöld óánægð með fundi Dalai Lama Sendiherra Kína gekk á fund ráðuneytisstjóra utanríkisráðuneytisins í morgun og kom á framfæri óánægju kínverskra stjórnvalda og sendiráðsins vegna þeirra funda sem Dalai Lama hefur átt eða kann að eiga með íslenskum ráðamönnum. 2. júní 2009 15:52
Fordæmir ríkisstjórnina fyrir að hitta ekki Dalai Lama Birgitta Jónsdóttir þingmaður Borgarahreyfingarinnar fordæmir ríkisstjórnina fyrir að hitta ekki Dalai Lama trúarleiðtoga Tíbeta sem kom til landsins í gærkvöldi. Hún gagnrýnir einnig forgangsröðun forseta Íslands, sem hafi boðið Mörthu Stewart um landið en sé ekki viðstaddur þegar trúarleiðtogi útlægrar þjóðar Tíbeta heimsækir Ísland. 1. júní 2009 12:17