Innlent

Skjalafalsarinn í Árósum: Ég er í sjokki

Frá Árósum.
Frá Árósum.

„Ég er í sjokki," skrifar Magnús Már Þorvarðarson á Facebook síðu sína en hann hlaut 40 daga skilorðsbundinn fangelsisdóm í Vestur Landsrétti Danmerkur fyrir skjalafals. Magnús var sakfelldur fyrir að hafa falsað inntökubréf í Arkitektaskólann í Árósum.

Áður hafði Magnús verið sýknaður í undirrétti en það var einróma álit þriggja dómara í landsrétti að maðurinn væri sekur um skjalafals.

Ekki náðist í Magnús þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir en hann er augljóslega vonsvikin yfir málinu samkvæmt Facebook.

Á síðuna sína skrifar hann: „Lögfræðingur minn sagði að þetta ætti ekki að vera flókið og ég myndi vinna þetta en það fór nú heldur betur á annan veg."

Aðferð Magnúsar við fölsunina samkvæmt Landsrétti Danmerkur var með þeim hætti að hann skipti út neðri hluta bréfsins þar sem kom fram að hann hefði ekki hlotið inngöngu, og skeytti þess í stað við hluta þar sem stóð að hann hefði hlotið inngöngu. Útskýrði hann undarlegt útlit bréfsins með þeim hætti að hann hefði hellt kaffi yfir bréfið en blessunarlega verið búinn að skanna bréfið inn áður.

Magnús hafði verið við nám í tvö ár í skólanum og því langt kominn með að öðlast BA-gráðu. Ólíklegt þykir að hann fái að ljúka námi sínu við skólann.

„Verst að ég get ekki áfrýjað þessu djöfulsins rugli heldur þarf ég að kyngja þessu," segir Magnús Már að lokum á Facebook síðu sinni ósáttur en að óbreyttu hefði hann lokið námi eftir eitt ár.


Tengdar fréttir

Svindlaði sér inn í Arkitektaskólann í Árósum

25 ára gamall Íslendingur hlaut í dag 40 daga skilorðsbundinn fangelsisdóm í Vestur Landsrétti Danmerkur fyrir skjalafals. Maðurinn var sakfelldur fyrir að hafa falsað inntökubréf í Arkitektaskólann í Árósum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×