Neyðarlínan er fyrir fólk í neyð, punktur Atli Steinn Guðmundsson skrifar 30. desember 2009 07:25
Neyðarsímverðir bresku neyðarlínunnar og lögregla þar í landi hafa fengið meira en nóg af fólki sem hringir í neyðarlínuna vegna mála sem teljast í besta falli hlægileg. Lögreglan í Manchester hefur birt opinberlega upptöku af símtali í neyðarnúmerið 999 með það fyrir augum að brýna fyrir fólki að misnota neyðarsímsvörunina ekki með tilhæfulausu rugli. Símtalið var frá konu sem var felmtri slegin vegna þess að kötturinn hennar var að leika sér með garnhnykil og hafði flækt sig í garninu. Annar borgari hringdi í neyðarlínuna eftir að hafa lagt bíl sínum á ísi lögðum vegi og þorði sá ekki að reyna að aka af stað aftur í hálkunni. Nóg var að gera hjá neyðarsímvörðum í Bretlandi sem fengu tæplega 1,4 milljónir símtala á tímabilinu frá aðfangadagskvöldi til annars í jólum. Að sögn lögreglu snerist einungis brot af símtölunum um raunveruleg neyðartilvik en slík símtöl geta hæglega haldið starfsfólki neyðarlínunnar uppteknu á meðan fólk í raunverulegri hættu bíður á línunni. Karan Lee, yfirmaður neyðarlínunnar, segir það alveg ótækt að fólk hringi skelfingu lostið vegna þess að jólamaturinn sé að brenna við, neyðarlínan sé fyrir fólk í lífsháska. Þar á bæ búa menn sig nú undir hressandi gamlárskvöld en neyðarlínan afgreiddi 2.400 símtöl á fyrstu sex klukkustundum þessa árs.
Mest lesið Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Innlent Möguleg tengsl við heilabilun Innlent Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Innlent „Ég held ég keyri þetta ekkert aftur í bráð“ Innlent Kókaínið hafi verið lykilþáttur í vinskapnum Innlent Brynhildur nýr formaður og Gísli Marteinn í stjórn Innlent „Ég hélt að svefnlyfin væru að hjálpa henni“ Innlent Hló að svari sambýliskonunnar Innlent Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Erlent Kona með alvarlega áverka eftir líkamsárás Innlent Fleiri fréttir Fundu eldsneyti en engin sprengiefni í bílunum Hafa enn ekki ákveðið hvort rétta eigi aftur yfir Clancy Skoða byggingu evrópskrar geimstöðvar Enn lítið um svör í Englandi Fundu lúxusíbúð með golfhermi innan veggja fangelsis Síðustu hermennirnir fara frá Írak, aftur Eistar saka Rússa um fjölþáttaárás Búa í „helvíti á jörðu“ og borða illgresi til að halda lífi „Háfhrifavaldur“ fastur í kóresku síki Kynna fyrsta „núllosunarsvæði“ Danmerkur Norlén tekinn aftur við og boðar formenn á fund Kallaði ráðherra á fund vegna handtöku mannanna við herstöðina Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Sækja fram gegn Rússum í Dónetsk Hryðjuverkamönnunum grunuðu sleppt úr haldi Starship á sporbraut í fyrsta sinn Allir mennirnir breskir ríkisborgarar Spurði Xi hvort hann vildi kaupa bandarísk vopn Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Vilja formlega afsökun frá Selenskí Trump vill fleiri bensínháka á göturnar Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Aðeins samningaviðræður geti leyst deiluna Forseti Serbíu segir af sér í skugga mótmæla Tvö lík fundin eftir að snjóðflóð lenti á búðum Yfirgefa heimili sín og flykkjast í neyðarskýlin Meintu hryðjuverkamennirnir lengi undir eftirliti Fimm handteknir og grunaðir um skipulagningu hryðjuverks Sjá meira